Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar sveitastjórnarkosningum sem fram fóru 16. maí 2026.


Fréttamynd

Hjónasjálfa, gleði og faðm­lög í Við­ey

Það dró til tíðinda í morgun þegar fréttamenn voru kallaðir út í Viðey ellefu dögum eftir borgarstjórnarkosningar. Blaðamannafundurinn var boðaður með skömmum fyrirvara og þurfti fjölmiðlafólk að hafa snör handtök líkt og oft áður til að geta miðlað viðburðinum til landsmanna. Þétt var setið í Viðeyjarferjunni á ellefta tímanum og fylgdu svo fleiri borgarfulltrúar í kjölfarið.

Innlent
Fréttamynd

Drauga­gangur, búrtíkur og öngull í rassi

Fólk bregst vægast sagt misvel við nýmynduðum borgarstjórnarmeirihluta á Facebook og ljóst að hægra megin við miðju þykja berin gallsúr en eins og Baldur Hermannsson bendir á þá er lífið nú einu sinni þannig að „oft kemur grátur eftir skellihlátur.“

Innlent
Fréttamynd

„Þetta vita Einar og Björg“

Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segist óttast að fyrirætlanir nýs meirihluta um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins muni fela í sér miklar tafir á framkvæmdum og viðhalda umferðarhnútum í borginni til næstu ára. Hann segist ekki sjá handbragð Viðreisnar í meirihlutasáttmálanum og furðar sig á því að Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar vilji nú endurskoða samgöngusáttmála sem hann hafi skrifað undir fyrir átján mánuðum síðan.

Innlent
Fréttamynd

Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann

Oddvitar nýs meirihluta í Reykjavík hafa þegar átt samtal við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þeir segja ætlunina ekki að tefja framkvæmdir heldur þurfi að endurskoða tillögur um veggjöld og flýta Miklubrautargöngum.

Innlent
Fréttamynd

Mun dæma meiri­hlutann af verkunum

„Ég fagna góðu gengi Sjálfstæðisflokksins í borginni. Kjósendur voru að kjósa um breytingar og Sjálfstæðismenn eru komnir til valda í borginni og munu leiða þær breytingar,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Vísi. Þar tjáir hún sig um nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í borginni.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­menn og Fram­sókn í eina sæng í Múla­þingi

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Múlaþingi skrifuðu í dag undir málefnasamning og staðfestu myndun nýs meirihluta þar. Samningurinn er sagður byggja á sameiginlegri sýn um öflugt samfélaga, ábyrga fjármálastjórn, eflingu atvinnulífs og áframhaldandi uppbyggingar.

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki frið­þægingu

Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri segist hafa gert atlögu að því að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokki. Það hafi ekki gengið eftir og segist hún telja meirihluta Viðreisnar og Framsóknar líklegri til að skapa sátt heldur en meirihluta með Miðflokki. Hún segir boð til Ara Edwalds um að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur enga friðþægingu.

Innlent
Fréttamynd

„Á­kveðin svik við úr­slit kosninganna“

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki.

Innlent
Fréttamynd

Hildur Björns­dóttir nýr borgar­stjóri

Hildur Björnsdóttir verður nýr borgarstjóri Reykjavíkurborgar. Einar Þorsteinsson verður formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar en þau munu skiptast á hlutverkum þann 1. júní 2027.

Innlent
Fréttamynd

Svona kynntu oddvitarnir nýjan meiri­hluta í Við­ey

Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson, oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar í Reykjavík, kynntu nýtt meirihlutasamstarf flokkanna í borgarstjórn á fréttamannafundi í Viðey sem hófst klukkan 11:10 í dag.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkur, Við­reisn og Fram­sókn mynda meiri­hluta

Náðst hefur samkomulag milli oddvita Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að mynda meirihluta í Reykjavíkurborg. Þetta herma heimildir fréttastofu. Miðflokkurinn hefur ekkert heyrt í oddvita Sjálfstæðisflokksins síðan á föstudag. Boðað hefur verið til blaðamannafundar í Viðey upp úr klukkan ellefu.

Innlent
Fréttamynd

Vaktin: Hildur valdi Við­reisn og Fram­sókn

Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn hafa myndað tólf manna meirihluta í Reykjavík. Skipting verka og áherslur meirihlutans voru kynnt á blaðamannafundi í Viðey upp úr klukkan ellefu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstu­dag

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur ekkert heyrt í Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, síðan á föstudag. Ekki er von á tíðindum af meirihlutaviðræðum í borginni í dag en dregið gæti til tíðinda á morgun. Hildur var fjarverandi á síðasta fundi fráfarandi borgarstjórnar í dag.

Innlent
Fréttamynd

Kveðju­stund í ráð­húsinu

Síðasti fundur borgarstjórnar á kjörtímabilinu fór fram í dag. Gríðarleg endurnýjun er í borgarstjórn en sextán borgarfulltrúar hverfa á braut og sextán nýir koma inn í þeirra stað.

Lífið
Fréttamynd

Taldi kosningarnar ó­gildar vegna ógilds kjör­seðils

Úrskurðarnefnd kosningamála barst kæra vegna sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík daginn eftir þær þar sem þess var krafist að kosningarnar í heild yrðu úrskurðaðar ógildar, vegna þess að Ríkisútvarpið sýndi kjörseðil í beinni útsendingu á kosninganótt. Nefndin féllst ekki á þá kröfu.

Innlent
Fréttamynd

Sann­færður um að finna eitt­hvað spennandi að gera

Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylkingin í Hafnarfirði náðu samkomulagi um meirihlutasamstarf í gær og nú stendur til að kynna málefnasamning á blaðamannafundi í Hamranesi klukkan fimm í dag. Valdimar Víðisson oddviti Framsóknarflokksins er sáttur við störf sín sem bæjarstjóri en finnst miður að vera ekki á leið í meirihluta. 

Innlent
Fréttamynd

Heiða greinir frá morð­hótunum

Heiða Björg Hilmisdóttir fráfarandi borgarstjóri hefur verið hótað lífláti og fengið herta öryggisgæslu síðan hún tók við embættinu. Hún segir gengið hafa á ýmsu og segist hugsi yfir því hvernig talað sé um kjörna fulltrúa hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Borgar­full­trúar kveðja

Síðasti fundur borgarstjórnar á kjörtímabilinu hefst klukkan 12. Kveðjuræður borgarfulltrúar eru á dagskrá en nokkuð margir borgarfulltrúa kveðja í dag þar sem 16 ef 23 kjörnum borgarfulltrúum hafa aldrei áður setið í borgarstjórn. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

„Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“

Þessa spurningu fékk undirritaður nokkrum sinnum yfir helgina frá fólki forvitnu um gang mála við myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Tíu dagar eru liðnir frá kjördegi þar sem Sjálfstæðisflokkurinn náði inn níunda manni og Hildur Björnsdóttir settist óumdeilt í bílstjórasætið í borgarstjórnarrútunni. Óvíst er hverjir komast um borð og virðist Hildur ekki tilbúin að útiloka draumalausn með fjögurra flokka meirihluta.

Innlent
Fréttamynd

Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi

Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokksins og fráfarandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir síðustu daga hafa verið krefjandi og ýmislegt hafi verið sagt sem hann taki nærri sér. Um þúsund hafa mótmælt nýjum meirihluta og að Framsókn sé ekki með í honum. Nýr meirihluti kynnir sáttmála sinn í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Hamast í því að koma í veg fyrir að Mið­flokkurinn komist að“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, óttast að Sjálfstæðismenn í Reykjavík sniðgangi Miðflokkinn og stökkvi frekar í sæng með Viðreisn og Framsókn. Hann kveðst heyra að „hamast“ sé innan Sjálfstæðisflokksins til að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að, þrátt fyrir að hann telji megni sjálfstæðismanna vilja samstarf við Miðflokkinn í höfuðborginni.

Innlent