Taívan

Taívan

Höfuðborg: Taípei. Mannfjöldi: 23,1 milljónir (2025). Flatarmál 36.193 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Auka fjár­út­lát til varnar­mála um tæpan fimmtung

Ríkisstjórn Taívan lagði í gær fram fjárlagafrumvarp sem felur í sér gífurlega aukningu í útlátum til varnarmála. Aukningin samsvarar átján prósentum á milli ára og verði frumvarpið samþykkt mun eyríkið verja 3,1 prósenti af landsframleiðslu til varnarmála. Til stendur að hækka hlutfallið enn frekar vegna hernaðarógnana frá Kína.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Efnt til æfinga í Taí­van fyrir um­fangs­mikið rof á fjar­skiptum

Stjórnvöld á Taívan stóðu í gær fyrir æfingu á fjarskiptatruflunum í kjölfar ímyndaðrar árásar eða innrásar af hálfu Kína. Æfingar vegna mögulegrar árása Kínverja eru reglubundin viðburður en þetta var fyrsta æfing Taívana þar sem gert var ráð fyrir umfangsmiklum fjarskiptatruflunum.

Erlent
Fréttamynd

Auka þrýstinginn á Taí­van veru­lega

Yfirvöld í Taívan segja ferðum skipa Strandgæslu Kína og kínverskra rannsóknarskipa kringum eyjuna hafa fjölgað mjög. Kínverjar séu að auka þrýstinginn á eyríkið verulega og mögulega að undirbúa að setja Taívan í herkví, ef til átaka kemur.

Erlent
Fréttamynd

Trump fer til Kína: „Við erum tvö stór­veldi“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mætir í dag til Kína þar sem hann mun á næstu dögum funda með Xi Jinping, forseta Kína. Líklegt er að viðskipti ríkjanna verði helsta umræðuefni forsetanna en þeir hafa að öðru leyti margt að tala um, eins og átökin í Mið-Austurlöndum, málefni Taívan og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt.

Erlent
Fréttamynd

Líkja for­seta Taí­van við rottu vegna Afríkuferðar

Nýr forseti Taívan hóf opinbera heimsókn sína í Esvatíní í Afríku í morgun með því að segja að Taívan hefði rétt á því að eiga í opinberum samskiptum við önnur ríki. Enginn hefði rétt á að koma í veg fyrir það. Ráðamenn í Taívan segja að Kínverjar hafi reynt að koma í veg fyrir ferðina en Kínverjar hafa fordæmt forsetann taívanska sem „rottu“.

Erlent
Fréttamynd

Sendi Trump tóninn vegna Taí­van

Xi Jinping og Donald Trump, forsetar Kína og Bandaríkjanna, áttu langt símtal í gær þar sem þeir eru sagðir hafa rætt hin ýmsu málefni sem snúa að samskiptum ríkjanna. Meðal annars ræddu þeir stöðuna í Íran og í Úkraínu og væntanlega heimsókn Trumps til Kína í vor en forsetarnir virðast ósammála um helsta málefni viðræðnanna og tón þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Um­kringdu Taí­van og æfðu lokanir hafna

Kínverjar standa nú í umfangsmiklum heræfingum umhverfis Taívan, þar sem þeir líkja eftir lokunum helstu hafna, árásum á skotmörk á sjó og vörnum gegn inngripum þriðju aðila. Yfirvöld í Kína segja um að ræða viðvörun til „aðskilnaðarsinna“ í Taívan.

Erlent
Fréttamynd

Bað for­sætis­ráð­herra Japan að ögra ekki Kín­verjum

Nokkrum dögum eftir að Sanae Takaichi, nýr forsætisráðherra Japan, reitti ráðamenn í Kína til reiði með því að segja að innrás Kínverja í Taívan gæti leitt til hernaðarviðbragðs frá Japönum, ræddi Xi Jinping, forseti Kína, við Donald Trump, kollega sinn í Bandaríkjunum. Xi er sagður hafa verið bálreiður og varði hálftíma af klukkutímalöngu símtalinu í að útskýra fyrir Trump að Kína ætti í raun Taívan.

Erlent
Fréttamynd

„Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“

Ráðamenn í Kína eru enn fjúkandi reiðir í garð Japana vegna ummæla nýs forsætisráðherra Japans um Taívan frá síðustu viku. Meðal annars hafa Kínverjar hótað því að „rústa“ Japan og krefjast þeir þess að Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, dragi ummæli sín um að Japanir myndu mögulega koma Taívönum til aðstoðar, geri Kínverjar innrás í eyríkið, til baka.

Erlent
Fréttamynd

Lagði til að for­sætis­ráð­herrann yrði afhöfðaður

Embættismenn í Kína hafa brugðist reiðir við ummælum nýs forsætisráðherra Japans um að Japanar myndu mögulega koma Taívönum til aðstoðar geri Kínverjar innrás í eyríkið í framtíðinni. Háttsettur kínverskur erindreki í Japan skrifaði til að mynda færslu þar sem hann gaf til kynna að hausinn yrði höggvinn af Sanae Takaichi, forsætisráðherra.

Erlent
Fréttamynd

Taívanir vilja reisa varnarhjúp gegn Kína

Stjórnvöld í Taívan hyggjast reisa loftvarnahjúp til að vernda landið gegn utanaðkomandi ógnum. Þetta tilkynnti William Lai, forseti Taívan, degi eftir að stjórnvöld vöruðu við því að Kínverjar ynnu að því að auka getu sína til að ráðast á landið.

Erlent
Fréttamynd

Vill fá Trump til að gefa Taí­van upp á bátinn

Xi Jinping, forseti Kína, er sagður reyna að nota ákafa Donalds Trump, kollega síns í Bandaríkjunum, til að gera viðskiptasamning ríkjanna á milli til að ná fram sínu helsta baráttumáli. Xi vonast til þess að fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn og standa gegn sjálfstæði eyríkisins.

Erlent
Fréttamynd

Drekinn beraði víg­tennurnar

Kínverjar héldu í morgun stærðarinnar hersýningu í Peking þar sem nýjustu hergögn ríkisins voru opinberuð og mörg þeirra í fyrsta sinn. Þar sýndu ráðamenn í Kína aukinn hernaðarmátt ríkisins.

Erlent
Fréttamynd

Sigldu tveimur flugmóðurskipum lengra en áður út á Kyrra­hafið

Báðum flugmóðurskipum Kína hefur verið siglt um Kyrrahafið undanfarna daga og er það í fyrsta sinn sem skipin eru notuð þar saman. Ráðamenn í Japan hafa áhyggjur af auknum hernaðarumsvifum Kínverja á Kyrrahafinu og víðar. Svipaða sögu er að segja frá Taívan, sem Kínverjar gera tilkall til.

Erlent
Fréttamynd

Lækkanir halda á­fram

Markaðir heims hafa ekki tekið tollaálögum Donald Trump Bandaríkjaforseta vel og héldu lækkanir síðustu daga áfram við opnun í nótt markaða í Asíu, um leið og enn meiri tollahækkanir tóku gildi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Saka Banda­ríkin um kúgun og svara fyrir sig

Yfirvöld í Kína ætla sér að „berjast til endaloka“ ætli Bandaríkin að halda áfram að stigmagna tollastríðið. Í yfirlýsingu frá viðskiptaráðuneyti Kína eru Bandaríkin sökuð um kúgun. Þar segir einnig að hótanir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að hækka enn frekar tolla gegn Kína séu mistök. Hærri tollar taka gildi á morgun víða um heim. 

Erlent
Fréttamynd

Hóta frekari að­gerðum eftir um­fangs­miklar æfingar

Kínverjar héldu í dag gífurlega umfangsmiklar heræfingar kringum Taívan. Æfingarnar voru haldnar í kjölfar þess að forseti eyríkisins hélt í síðustu viku ræðu þar sem hann ítrekaði fullveldi Taívans og sagði ráðamenn Í Peking ekki eiga tilkall til eyjunnar.

Erlent
Fréttamynd

Nýjasti kaf­bátur Kín­verja sökk við bryggju

Nýjasti kjarnorkuknúni kafbátur Kína sökk við bryggju í vor. Um er að ræða nýja gerð kafbáta og er þetta fyrsti báturinn af þeirri gerð. Hann sökk við skipasmíðastöð nærri Wuhan í Kína. Ráðamenn í Kína hafa lagt mikla áherslu á uppbyggingu kínverska kafbátaflotans og var reynt að hylma yfir atvikið.

Erlent
Fréttamynd

Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn

Öll þrjú flugmóðurskip Kína voru á dögunum saman á sjó og er það í fyrsta sinn sem Kínverjar ná þessum áfanga. Stutt er í tólf ára afmæli þess að Kínverjar tóku fyrsta flugmóðurskipið í notkun og er fyrsta skipið sem þróað er og byggt í Kína í sjóprófunum.

Erlent