Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hvers annars. Innlent 18.8.2026 12:18
Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Breskur hagfræðiprófessor sem sat í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands eftir hrun segir Ísland eiga heima í evrusvæðinu. Upptaka evru geti aukið stöðugleika og gerði það afar ólíklegt að hrun eins og það sem varð árið 2008 endurtæki sig. Viðskipti innlent 18.8.2026 11:33
Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Fréttastofa Vísis verður reglulega með Pallborð fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fyrsta Pallborðið fer fram klukkan 14 í dag þar sem fulltrúar tveggja já-hreyfinga og tveggja nei-hreyfinga takast á um helstu álitaefni Evrópuumræðunnar. Innlent 18.8.2026 10:59
Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra telur að deilur sem upp komi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu sem þjóðin standi frammi fyrir þann 29. ágúst séu ekki af því tagi að landsmenn láti tilfinningarnar bera sig ofurliði. Þvert á móti sé tilfinningahiti fólks almennt minni en gengur og gerist í kosningum. Innlent 16. ágúst 2026 17:43
Það er jóker í spilinu Skoðanakannanir síðustu vikna virðast benda til þess að sífellt fleiri kjósendur séu búnir að gera upp hug sinn fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eftir því sem hlutfall óákveðinna fer lækkandi. Þá virðist einnig sem hægt og rólega saxist á það forskot sem já-hliðin naut þegar mælingar hófust fyrst eftir að tilkynnt var um þjóðaratkvæðið. Innlent 16. ágúst 2026 14:56
Sérstaða Íslands útilokar að líkindum aðild að ESB Um samningsmarkmið í hugsanlegum aðildarviðræðum við ESB verður að tala opið og skýrt um sjávarútvegsmálin. Dæmi um skort á þessu er að finna í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar - það er fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna - á tillögu utanríkisráðherra um að haldið verði þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB. Umræðan 16. ágúst 2026 14:44
Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Greiningardeild ríkislögreglustjóra fylgist grannt með gerviaðgöngum á samfélagsmiðlum og grunsamlegum vefsíðum og athuga hvort erlendir aðilar sigli þar undir fölsku flaggi til að að ýta niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar um ESB í aðra hvora áttina. Innlent 16. ágúst 2026 14:01
Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Miðflokksmenn eru helmingi líklegri til að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið en Sjálfstæðismenn. Innlent 15. ágúst 2026 15:41
„Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Umhverfis- og orkumálaráðherra segir engan vafa í sínum huga að möguleikar Íslands til að verja hagsmuni sína hvað varðar losunarheimildir í flugsamgöngum væru meiri innan ESB, jafnvel þó Ísland væri aðeins umsóknarríki. Rík hefð hafi myndast fyrir samstöðumenningu í stjórnarfyrirkomulagi ESB. Innlent 15. ágúst 2026 14:01
Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Miðað við nýjustu kannanir bendir allt til þess að þátttakan sjálf muni skipta mestu máli í komandi þjóðaratkvæðagreiðslum að mati prófessors í stjórnmálafræði. Yngra fólk hallist meira að já-inu en sé sömuleiðis talið ólíklegra til að mæta á kjörstað. Innlent 15. ágúst 2026 12:01
Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Bændur búa sig undir baráttu gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Búnaðarþing hefur hafnað því að aðildarviðræður verði teknar upp að nýju og á næstu dögum hefja Bændasamtökin fundarherferð um landið til að kynna sinn málstað. Innlent 14. ágúst 2026 19:19
Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum Ekki er marktæktur munur á jáurum og neiurum samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup sem gefinn var út nú í dag. Ögn fleiri eru hlynnt áframhaldandi viðræðum en munurinn er tölfræðilega minniháttar. Innlent 14. ágúst 2026 18:33
Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum „Ég heyri utan að mér, að þar sem ég hafi verið staðinn að verki við að hlýða á erindi Dr Carls Baudanbacher á fundi í gamla Sjallanum, hljóti ég að vera genginn í björg andstæðinga Evrópusambandsaðildar. Þá er illa fyrir okkur komið, ef menn mega ekki hlusta á meinta andstæðinga, án þess að kalla yfir sig fordæmingu af einhverju tagi.“ Innlent 14. ágúst 2026 16:41
Bændur segja nei 95 prósent fulltrúa á Bændaþingi hafa samþykkt ályktun þess efnis að Búnaðarþing leggist gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild. Innlent 14. ágúst 2026 16:08
„Þjóðin á rétt á að vita“ Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skýrt eftir viðtal við utanríkisráðherra í Íslandi í dag að ríkisstjórnin vilji fyrst fá umboð þjóðarinnar og síðan ákveða endanleg samningsmarkmið. Guðrún segist treysta þjóðinni. Innlent 14. ágúst 2026 13:26
„Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Utanríkisráðherra segist ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg þegar hún var spurð að því hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, ef ekki fáist undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla öryggislega ávinning sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. Innlent 14. ágúst 2026 07:01
Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Varnir Íslands hvað varðar erlent eignarhald í íslenskum sjávarútvegi veikjast við inngöngu í Evrópusambandið að mati Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Þau leggja til fjögur atriði sem þurfi að tryggja verði af aðildarviðræðunum. Innlent 14. ágúst 2026 06:02
Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður Vinstri grænna, ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið þann 29. ágúst næstkomandi. Ástæðan sé meðal annars reynsla hans af viðræðunum árið 2009 en að þá hafi hvorki gengið né rekið að ræða undanþágur frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu. Innlent 13. ágúst 2026 22:22
Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Forskot Já-hliðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið mælist 4,4 prósentustig í nýrri könnun Maskínu. Það mældist 6,2 prósentustig í júní. Breytingin er þó innan skekkjumarka. Innlent 13. ágúst 2026 18:31
„Ég get ekki orða bundist“ Ingibjörgu Davíðsdóttur, þingmanni Miðflokksins og fyrrverandi sendiherra, þykir utanríkisráðuneytið fara yfir strikið með því að deila grein sem utanríkisráðherra ritar í Bændablaðið í dag. Ráðuneytið bendir henni á að löng hefð sé fyrir því að skrifum utanríkisráðherra sé deilt á miðlum ráðuneytisins. Innlent 13. ágúst 2026 16:43
Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Jónas Hagan og Hjálmar Vilhjálmsson, stjórnarmenn í samtökunum Sjá, munu mæta þeim Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Diljá Mist Einarsdóttur, þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, í kappræðum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Utanríkisráðherra var boðið að taka þátt í kappræðunum en þekktist ekki boðið. Innlent 13. ágúst 2026 13:16
„Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, verður til viðtals í Ísland í dag strax að loknum kvöldfréttum Sýnar þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan verður til umræðu. Viðtalið verður aðgengilegt öllum landsmönnum. Innlent 13. ágúst 2026 10:00
Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Utanríkisráðherra telur pólitískt líf sitt og flokks síns ekki að veði í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB. Rödd Viðreisnar verði enn mikilvægari ef aðildarviðræðum verður hafnað. Innlent 13. ágúst 2026 08:46
Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir Já-hreyfinguna hafa farið hægt af stað og skorta skýra leiðtoga. Traustur sigur náist ekki nema Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra beiti sér af fullum þunga. Á sama tíma hafi Ólafur Ragnar Grímsson orðið nánast óskoraður leiðtogi Nei-hreyfingarinnar og bundið pólitíska arfleifð sína við úrslitin. Innlent 12. ágúst 2026 14:39