Úkraína

Úkraína

Höfuðborg: Kænugarður. Mannfjöldi: 36,7 milljónir (2025). Flatarmál: 603.500 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Hóta frekari á­rásum og hvetja sendi­full­trúa til að flýja Kænugarð

Stjórnvöld í Rússlandi hafa hótað kerfisbundnum árásum á Kænugarð þar sem skotmörkin yrðu stjórnstöðvar og drónaframleiðsla Úkraínumanna. Sendifulltrúar og erlendir ríkisborgarar eru hvattir til þess að yfirgefa höfuðborgina sem fyrst og almennir borgarar til að halda sig frá opinberum byggingum og hernaðarinnviðum.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Þriggja daga vopna­hlé í Úkraínu

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað þriggja daga vopnahlé í innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti staðfestir að vopnahléð hefjist á morgun, laugardag.

Erlent
Fréttamynd

Ekkert vopna­hlé heldur um­fangs­miklar á­rásir í Rúss­landi

Bæði Rússar og Úkraínumenn hafa sakað hvor annan um að brjóta gegn vopnahléi sem Vladimír Pútín, forseti Rússlands, krafðist einhliða um helgina á meðan að Rússar halda upp á sigur sinn á Þýskalandi í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir að Rússar gerður umfangsmiklar árásir á Úkraínu í gær hafa Úkraínumenn gert dróna- og eldflaugaárásir víðsvegar um Rússland í dag.

Erlent
Fréttamynd

Áttu langt sím­tal

Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddu við hvor annan í síma í einn og hálfan tíma.

Erlent
Fréttamynd

Sjö felldir í Úkraínu

Hið minnsta sjö voru felldir í umfangsmiklum loftárásum Rússa víða í Úkraínu í fyrrinótt og þar af fimm í Dnípró, þar sem sprengja lenti á íbúðahúsnæði. Þessa sömu nótt sóttu úkraínskir drónar djúpt inn í Rússland.

Erlent
Fréttamynd

Vestur­lönd tali opin­skátt um fyrirætlað stríð við Rúss­land

Utanríkisráðherra Rússlands segir Vesturlönd hafa lýst Rússlandi stríði á hendur með Úkraínu í broddi fylkingar. Vestrænir leiðtogar tali opinskátt um fyrirætlaða styrjöld við Rússland og vilji nota „Kænugarðsstjórnina“ sem múrbrjót. Þetta er þrátt fyrir að Rússland hafi gert allsherjarinnrás í landið fyrir fjórum árum síðan og staðið í árásum á það í á annan áratug.

Erlent
Fréttamynd

Lýsir yfir fyrsta sigri vél­menna á víg­vellinum

Rússneskir hermenn gáfust upp fyrir fjarstýrðum land- og flugdrónum þegar úkraínski herinn tók stöðu þeirra á vígvellinum. Forseti Úkraínu segir þetta í fyrsta skipti sem slíkur sigur náist á vígvellinum eingöngu með vélum.

Erlent
Fréttamynd

Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt út­lit í könnunum

Kálið er ekki endilega sopið þótt í ausuna sé komið hjá ungversku stjórnarandstöðunni þrátt fyrir að hún mælist með töluvert forskot á flokk Viktors Orbán forsætisráðherra fyrir kosningar sem fara fram á sunnudag. Stórveldi fylgjast grannt með úrslitunum en Orbán er helsti bandamaður bæði Rússa og Bandaríkjamanna í Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Bauð Pútín að vera „músin“ hans

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, bauð Vladímír Pútín Rússlandsforseta alla þá aðstoð sem hann gæti veitt honum í haust. Ungverski leiðtoginn, sem hefur komið í veg fyrir lánveitingar ESB til Úkraínu, sagðist geta verið músin sem hjálpaði ljóninu Pútín.

Erlent
Fréttamynd

Ekki vopna­hlé um páskana heldur regn sjálf­sprengi­dróna

Rússneskur sjálfsprengidróni varð fimm mönnum að bana og særði 19 aðra í borginni Nikopol í austurhluta Úkraínu á laugardag en Rússar hafa hert árásir sínar að degi til í skugga stríðs Bandaríkjanna og Íran. Zelensky hefur boðið fram aðstoð vegna Hormússunds en hann segir Úkraínumenn hafa öðlast sérþekkingu í stríði sínu við Rússa.

Erlent
Fréttamynd

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rúss­land

Stríðið í Úkraínu hefur að miklu leyti fallið í skugga stríðs Bandaríkjanna og Íran gegn Ísrael, sem Rússar virðast græða töluvert á. Hermenn Rússlands sækja enn hægt áfram í austurhluta Úkraínu í kostnaðarsamri framsókn. Á sama tíma virðist sífellt færast meiri þungi á langdrægar árásir bæði Rússa en þó sérstaklega Úkraínumanna sem virðast hafa aukið framleiðslu á langdrægum drónum og stýriflaugum.

Erlent
Fréttamynd

Úkraínskir drónar brotlentu í Finn­landi

Tveir sjálfsprengidrónar, sem taldir eru frá Úkraínu, féllu til jarðar í Finnlandi í gærmorgun. Annar sprakk við lendingu en hinn mun hafa verið sprengdur í loft upp af sérfræðingum í morgun. Engan sakaði en talið er að drónarnir hafi verið notaðir til árása í Rússlandi, nærri landamærum Finnlands.

Erlent
Fréttamynd

Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu á­fram

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur beðið rússneska auðjöfra um að gefa peninga í ríkissjóð til að bæta fjárstöðu ríkisins. Á fundi með auðjöfrum í gær hét Pútín því að halda stríðinu í Úkraínu áfram, í það minnsta þar til Rússar hefðu náð stjórn á öllu Donbas-svæðinu svokallaða.

Erlent