Aðallega Glock-skammbyssur og MP5-byssur í 185 milljóna króna vopnapakka Ríkislögreglustjóri keypti vopn og skotfæri fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins fyrir um 185 milljónir króna. Þetta kemur fram í samantekt á vef lögreglunnar þar sem segir að engar hríðskotabyssur hafi verið keyptar. 2.6.2023 15:24
Kjarasamningar grunn- og leikskólakennara samþykktir Rúmlega tveir þriðju félagsmanna í Félagi grunnskólakennara annars vegar og Félagi leikskólakennara greiddu atkvæði með nýjum kjarasamningum. Samningarnir hafa því verið samþykktir. 2.6.2023 14:43
Leggja til að leggja niður „aggressíva“ auglýsingadeild RÚV Meirihluti allsherjar- og menntamálefndar leggur til að auglýsingadeild Ríkisútvarpsins verði lögð niður. Deildin sé agressív í sölumennsku sinni sem einkareknir fjölmiðlar finni fyrir með ýmsum hætti. RÚV verði þó ekki tekið af auglýsingamarkaði því auglýsendur geti áfram pantað auglýsingar í gegnum vef Ríkisútvarpsins samkvæmt verðskrá. Sextán manns starfa á auglýsingadeildinni. 1.6.2023 17:05
Í öðrum erindagjörðum í Króatíu en að sóla sig með frúnni Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er kominn til landsins frá Króatíu þar sem hann hélt erindi um efnahagsmál á alþjóðlegri ráðstefnu í Dubrovnik í Króatíu. Hann stýrði pallborðsumræðum um alþjóðlega bankakerfið á ráðstefnunni. 1.6.2023 15:39
Garðar og Smári bætast í hópinn hjá Endor Garðar Rúnarsson netsérfræðingur og Smári Ívarsson netöryggissérfræðingur hafa gengið til liðs við Endor. Frá þessu segir í tilkynningu frá fyrirtækinu sem sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði upplýsingatækni. 1.6.2023 15:03
Dreifingardeila heim í hérað vegna skorts á sérfræðingi Hæstiréttur hefur ómerkt dóma í héraði og Landsrétti yfir Símanum fyrir brot gegn ákvæðum fjölmiðlalaga með því að beina viðskiptum Sjónvarps Símans að dótturfélagi sínu Mílu. Hæstiréttur telur að meðferð málsins hafi farið úr skorðum í héraði með því að kalla ekki til sérfróðan matsmann um fjölmiðlaumhverfi. 1.6.2023 11:20
Erfiðast að hafa ekki getað sagt bless við fólkið hjá Festi Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, forstöðukona markaðssviðs N1, segir erfiðast við nýtilkomin starfslok hjá Festi að hafa ekki getað sagt bless við fólkið sitt. Festi tilkynnti um sjö uppsagnir til Kauphallar í gær. 31.5.2023 15:33
Bjóða upp á flug milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar Icelandair ætlar að bjóða upp á flug á milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar í tengslum við millilandaflug sitt frá 15. október til 30. nóvember. Flogið verður þrisvar í viku. 25.5.2023 14:21
Taka stikkprufur á meðan ný lausn sannar gildi sitt í Bónus Viðskiptavinir Bónus á Smáratorgi geta nú gripið sér skanna við inngang verslana og skannað vörur beint ofan í poka á leið sinni um verslunina. Nýja sjálfsafgreiðslulausnin heitir Gripið og greitt eins og samnefnd verslun sem lagði upp laupana snemma á öldinni. Helsti samkeppnisaðilinn Krónan hefur í hálft annað ár boðið upp á svipaða lausn þar sem viðskiptavinir geta skannað vörur með notkun apps. 25.5.2023 13:52
Bergþóra hlaut Maístjörnuna fyrir Allt sem rennur Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur hlaut verðlaunin Maístjörnuna fyrir bók sína Allt sem rennur. Verðlaunin voru veitt í sjöunda sinn í gær. Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn veita verðlaunin. 25.5.2023 12:39