Línan umdeilda fær enn eitt græna ljósið Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað Landsnet og Sveitarfélagið Voga af öllum kröfum landeigenda í Vogum, sem kröfðust þess að framkvæmdarleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 yrði ógilt. 23.4.2025 13:21
Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Litáískur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli evrópskrar handtökutilskipunar. Hann hefur ekki afplánað fjögurra og hálfs árs dóm vegna kynferðisbrota gegn barnungri stúlku í heimalandinu. 23.4.2025 10:47
Bærinn vildi húsið en þurfti svo að borga tvöfalt meira Fjarðabyggð hefur verið dæmd til að kaupa hús á Reyðarfirði á 139 milljónir króna. Fasteignamat hússins er 72,25 milljónir króna, rétt rúmlega helmingur kaupverðsins. 22.4.2025 16:22
Barn á óskoðuðum bíl á 151 kílómetra hraða Talsverður erill var hjá Lögreglunni á Norðurlandi vestra yfir páskana. Meðal verkefna var að hafa afskipti að ökumanni á barnsaldri sem ók óskoðuðum bíl á 151 kílómetra hraða á klukkustund. 22.4.2025 12:05
Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð Í lok maí 2025 mun Meta hefja þjálfun gervigreindar með því að nýta færslur, myndir og athugasemdir frá notendum Facebook og Instagram í Evrópu. Notendur sem vilja ekki að gögn þeirra verði notuð þurfa að grípa til aðgerða. 22.4.2025 10:45
Sjálfstæðisflokkur fengi tæpan þriðjung Ef kosið yrði í Reykjavík á morgun fengi Sjálfstæðisflokkurinn tæpan þriðjung atkvæða, ef marka má nýja skoðanakönnun. Samfylking fengi fjórðung en enginn annar flokkur næði meira en tíu prósentum atkvæða. 16.4.2025 14:56
Annað veiðifélag rannsakað vegna ólöglegs fiskeldis Matvælastofnun hefur meint ólöglegt fiskeldi veiðifélags á Suðurlandi til rannsóknar. Innan við vika er síðan stofnunin beitti veiðifélag á Suðurlandi stjórnvaldssekt fyrir sams konar brot. 16.4.2025 14:21
Mál áfengisnetverslana send aftur til lögreglu Mál tveggja netverslana með áfengi eru komin aftur á borð lögreglu til rannsóknar. Þau fóru frá lögreglu til ákærusviðs í september í fyrra og höfðu þá verið í rannsókn nokkur ár. 16.4.2025 13:37
Rekstur hestaleigu stöðvaður Matvælastofnun hefur stöðvað starfsemi hestaleigunnar Alhesta í Þorlákshöfn. 16.4.2025 11:59
Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Elísabet Austmann og Bergsveinn Guðmundsson hafa tekið við nýjum stöðum markaðsstjóra hjá Ölgerðinni. Elísabet hefur tekið við stöðu markaðsstjóra óáfengra drykkja og Bergsveinn markaðsstjóra áfengra drykkja. 16.4.2025 11:19