Birgitta Líf og Enok birta fyrstu myndina af barninu Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, og kærasti hennar, Enok Jónsson hafa birt fyrstu myndina af barni þeirra. Það kom í heiminn þann 8. febrúar. 11.2.2024 13:09
Sumir með heitt vatn en eiga alls ekki að nota það Heitt vatn rennur nú um kerfi einhverra húsa í Reykjanesbæ. Lögreglan á Suðurnesjum segir vatnið alls ekki vera til notkunar íbúa. 11.2.2024 10:46
Byggð á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesskaginn og kjaramálin Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur og Hlökk Theodórsdóttir, skipulagsfræðingur, ætla að velta fyrir sér framtíðarmynstri byggðarinnar í kringum höfuðborgarsvæðið á Sprengisandi. Staðan á Reykjanesskaganum og á vinnumarkaði koma einnig við sögu. 11.2.2024 09:46
Segja göng Hamas liggja undir höfuðstöðvum UNRWA Talsmenn Ísraelshers segja að mörg hundruð metra langt ganganet Hamas hafi fundist á Gasa. Göng hryðjuverkasamtakanna liggi meðal annars undir höfuðstöðvum Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, UNRWA. 11.2.2024 08:39
Festist í póstkassa Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst heldur óvenjulegt útkall í gærkvöldi. Þá hafði íbúi í miðbæ Reykjavíkur ætlað að spara sér að sækja lykla að póstkassa en orðið fyrir því óláni að festa hendurnar í póstkassanum. 11.2.2024 07:35
Barn lamið í höfuðið með skóflu Tilkynnt var um slagsmál í Kópavogi í gærkvöldi. Þegar lögreglu bar að garði var mikill æsingur á vettvangi. Flytja þurfti einn á bráðamóttöku sem hafði verið laminn í höfuðið með skóflu. Barnavernd var gert viðvart um málið, þar sem hinn lamdi er ekki orðinn sjálfráða. 11.2.2024 07:27
Almannavarnir boða til upplýsingafundar Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar klukkan 17. Á fundinum verður farið yfir atburði síðustu daga á Reykjanesskaganum. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér á Vísi. 10.2.2024 14:50
Kokkar í Krýsuvík hjá fyrrverandi eiginmanni og vini sínum Sólveig Eiríksdóttir, sem oftast er kölluð Solla og kennd við Gló eða Grænan kost, er komin í draumastarfið á meðferðarheimilinu í Krýsuvík. Elías Guðmundsson, framkvæmdarstjóri Krýsuvíkursamtakanna og fyrrverandi eiginmaður Sollu, bauð henni að vinna þar sem kokkur. Hún segir alla sína fyrrverandi vera vini sína. 10.2.2024 14:33
Segir að málið hefði dáið hefði lögregla beðið átekta Verjandi manns sem grunaður er um tilraun til hryðjuverka segir það sem komið hefur fram í aðalmeðferð hryðjuverkamálsins í vikunni benda til þess að lögregla og ákæruvaldið hafi hlaupið upp til handa og fóta að ástæðulausu. 10.2.2024 12:10
Ráðgátan um hundadauðann verður ekki leyst Rannsókn á dularfullum dauða tíu hunda á Austurlandi var hætt eftir að engar vísbendingar komu fram um hvað varð hundunum að aldurtila. 10.2.2024 09:50