Allra augu á boðuðum ráðherrakapal: „Ég hef ekki hugmynd um það“ Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa hugmynd um það hvenær hún tekur við embætti dómsmálaráðherra, sem henni var lofað í kjölfar myndunar ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. 9.6.2023 21:31
Aðalmeðferð í Bankastræti Club-málinu fer fram í veislusal Aðalmeðferð í Bankastræti Club-málinu svokallaða mun fara fram í veislusal í veitingahúsinu Gullhömrum í Grafarholti í Reykjavík. Sakborningar í málinu eru á þriðja tug og því er ekki hægt að halda aðalmeðferði í dómshúsinu að Lækjartorgi. 9.6.2023 20:27
Boris Johnson segir af sér Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur sagt af sér þingmennsku. 9.6.2023 19:22
Hafa virkjað eitt hundrað 5G senda Fjarskiptafyrirtækið Vodafone hefur virkjað 5G þjónustu á eitt hundrað sendum um landið, sem er hluti af verkefninu 5G allan hringinn, sem hófst haustið 2020. 9.6.2023 19:01
Fernando Torres hámaði í sig súpu í Friðheimum Knattspyrnugoðsögnin Fernando Torres er á ferð um landið. Liverpoolmaður sem dýrkar hann og dáir hitti kappann í dag en beið með að nálgast hann þangað til hann var búinn að borða. 9.6.2023 18:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 9.6.2023 18:00
Borgari elti uppi stút á stolnum bíl Í dag barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann í annarlegu ástandi ganga á milli bíla og reyna að komast inn í þá. Svo fór að hann komst inn í bíl einn og ók af stað, þrátt fyrir ástand sitt. Sá sem tilkynnti elti manninn þar til lögregla náði að stöðva för hans. 9.6.2023 17:34
Reyndi að drepa vinnufélaga og stórslasaði annan með klaufhamri Nazari Hafizullah hefur verið dæmdur til fimm og hálfs árs fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps og sérlega hættulega líkamsárás, með því að hafa veist að tveimur vinnufélögum sínum á vinnusvæði við hús á Seltjarnarnesi. Landsréttur þyngdi dóm mannsins um tvö ár. 9.6.2023 16:09
Samtalið umdeilda hafi verið milli embætta Seðlabankastjóri segist ekki hafa greint frá því sem fór tveggja manna á milli, þegar hann upplýsti um samskipti sín við Ríkissáttasemjara í viðtali í Morgunblaðinu í gær. Hann segir að um samskipti embættanna tveggja hafi verið að ræða en ekki tveggja manna tal. 9.6.2023 14:59
Mátti ekki þyngja dóm föður sem káfaði á dóttur sinni Hæstiréttur hefur mildað dóm Landsréttar yfir manni sem sakfelldur var fyrir að káfa á dóttur sinni í tvö skipti. Málið er eitt þeirra sem fór fyrir Endurupptökudóm í kjölfar Landsréttarmálsins svokallaða. 7.6.2023 17:14