Segir starfmenn hafa hindrað starf fjölmiðla fyrir misskilning Dómsmálaráðherra segir að líklegasta skýringin á því að starfsmenn Isavia á Keflavíkurflugvelli trufluðu starf fjölmiðla, þegar flóttafólk var flutt úr landi af lögreglu í nóvember síðastliðnum, sé að þeir hafi misskilið beiðni stoðdeildar ríkislögreglustjóra. 15.5.2023 22:00
Landsvirkjun greiðir 19,5 milljarða í arð Hagnaður Landsvirkjunar fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 14,8 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi, en var 10,7 milljarðar á sama tímabili í fyrra og hækkar því um 40,6 prósent milli ára. Aðalfundur félagsins samþykkti að greiða eiganda sínum íslenska ríkinu um 19,5 milljarða króna í arð. 15.5.2023 21:34
Ríkið mátti ekki lækka laun dómara Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari vann í dag mál á hendur íslenska ríkinu, sem hún höfðaði eftir að henni var tilkynnt um að hún hefði fengið ofgreidd laun. 260 af æðstu embættismönnum þjóðarinnar fengu sams konar tilkynningu. 15.5.2023 19:46
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttatíma kvöldsins verður fjallað ítarlega um undirbúning leiðtogafundarins, en allt er að verða klárt í Hörpu. Þungvopnaðir lögreglumenn og leyniskyttur hafa komið sér fyrir og öryggisgæslan er af stærðargráðu sem við höfum aldrei séð hér á landi. 15.5.2023 18:01
Hildur endurheimti hljóðfærið Tónskáldið Hildur Guðnadóttir hefur endurheimt einstakt hljóðfæri, sem stolið var þegar brotist var inn á heimili hennar í Berlín í fyrradag. Hljóðfærið, sem minnir á selló og er kallað dórófónn í höfuðið á hönnuði þess Halldóri Úlfarssyni, vakti heimsathygli árið 2020 þegar Hildur notaði það í tónlist stórmyndarinnar Joker. 15.5.2023 17:43
„Ansi dýrt áhugamál hjá einum karli“ Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir einsýnt að stöðva þurfi hvalveiðar Íslendinga hið snarasta, ekki eingöngu vegna þess að fjárhagslegt tap er af þeim heldur einnig vegna gríðarlegra jákvæðra áhrifa hvala á loftslagið. 14.5.2023 15:14
Óðs manns æði hafi gripið um sig á Sauðárkróki Eins og gefur að skilja bíða Sauðkrækingar í ofvæni eftir leik Tindastóls gegn Íslandsmeisturum Vals í úrslitaeinvígi Subway-deildar karla sem fram fer á morgun. Verður það fjórða viðureign liðanna í úrslitaeinvíginu og með sigri tryggja Stólarnir sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögunni. 14.5.2023 14:45
Voru sextán klukkustundir að ná konunni af jöklinum Um klukkan þrjú í gær óskaði hópur gönguskíðafólks á Vatnajökli eftir aðstoð viðbragðsaðila eftir að kona úr hópnum hafði fengið sleða sem hún dró á eftir sér í höfuðið. Björgunarsveitir héldu af stað úr tveimur áttum, en þegar komið var á staðinn þar sem talið var að fólkið væri, bólaði ekkert á hópnum. 14.5.2023 13:57
Loreen kemur til landsins: „Nafnið hans byrjar á Ólafur“ Nýbakaður sigurvegari Eurovision kemur senn til landsins til þess að starfa með íslenskum tónlistarmanni. Til þessa hefur hún ekki viljað gefa upp hver það er en í viðtali á dögunum sagði hún að nafnið hans byrjaði á „Ólafur.“ Ólafur Arnalds tónlistarmaður deildi myndskeiði af viðtalinu á Twitter. 14.5.2023 11:03
Sonur Arons og Ernu kominn með nafn Sonur tónlistarmannsins Arons Can og flugfreyjunnar Ernu Maríu Björnsdóttir fékk nafnið Theo Can Gultekin í gær. 14.5.2023 10:12