Diljá var einu sæti frá því að komast áfram Veðbankar höfðu rétt fyrir sér að þessu sinni og Diljá Pétursdóttir komst ekki áfram í aðalkeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir Íslands hönd. Hún var hins vegar eins nálægt því og hugsast getur, aðeins einu sæti frá því að komast áfram. 14.5.2023 09:40
Hvalur tapaði þremur milljörðum á hvalveiðum á áratug Miðað við gögn úr ársreikningum Hvals hf. hafa hluthafar félagsins ekki riðið feitum hesti frá umdeildum hvalveiðum. Á árunum 2012 til 2020 var tap félagsins af hvalveiðum þrír milljarðar króna. Félagið hagnast á sama tíma verulega á fjárfestingum ótengdum útgerð. 14.5.2023 07:00
Skíðagöngufólkið er fundið Hópur skíðagöngufólks, sem leitað hafði verið frá því um klukkan 15 í dag, er fundinn. Í kvöld náðist samband við fólkið en langan tíma tók að fá staðsetningu þeirra staðfesta. Ástand fólksins er gott miðað við aðstæður, það var komið í tjöld og enginn kennir sér meins nema konan sem fékk sleða í höfuðið í dag. 13.5.2023 23:24
Svíþjóð vann Eurovision Svíar eru sigurvegarar söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Loreen vann keppnina öðru sinni fyrir hönd Svía, sem hafa nú unnið keppnina sjö sinnum. Engin þjóð hefur unnið keppnina oftar. 13.5.2023 23:01
Skrúfa fyrir valið efni korter í kosningar Samfélagsmiðillinn Twitter hefur tilkynnt að ákveðið efni á miðlinum verði ekki aðgengilegt notendum hans í Tyrklandi. Gríðarlega mikilvægar kosningar verða í landinu á morgun en litlu sem engu munar á sitjandi forsetanum Erdogan og keppinauti hans Kemal Kilicdaroglu í skoðanakönnunum. 13.5.2023 21:24
Ísak Harðarson er látinn Ísak Harðarson, ljóðskáld og þýðandi, er látinn aðeins 66 ára að aldri. 13.5.2023 20:21
Skíðafólkið á Vatnajökli finnst ekki Síðdegis í dag óskaði hópur gönguskíðafólks á Vatnajökli eftir aðstoð viðbragðsaðila eftir að kona úr hópnum datt og fékk sleða, sem hún var með í eftirdragi, í höfuðið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang ásamt björgunarsveitarfólki frá Höfn í Hornarfirði. Þegar björgunarsveitin kom að þeim stað þar sem talið var að hópurinn væri bólaði ekkert á honum. Nú er víðtæk leit hafin að fólkinu. 13.5.2023 19:54
Áform um nýja selalaug sett á ís Borgaryfirvöld hafa ákveðið að fresta framkvæmdum við nýja selalaug í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum um óákveðinn tíma. Framkvæmdir hófust síðasta haust og búið var að grafa stærðarinnar holu þar sem laugin átti að vera. Nú verður fyllt upp í holuna. 13.5.2023 18:21
Þyrlusveitin reynir að sækja slasaða skíðakonu Óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar nú síðdegis vegna skíðaslyss á Grímsfjalli í Vatnajökli. Þyrlusveit gæslunnar er á leið á vettvang en óvíst er hvort hún komist að slysstað vegna veðurs. 13.5.2023 17:37
Viðsnúningur í milljarðadeilu ALC og Isavia Landsréttur hefur snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að flugvélaleigan ALC og íslenska ríkið skyldu greiða Isavia 2,5 milljarða króna í skaðabætur vegna kyrrsetningar á flugvél sem hið sáluga Wow air hafði haft á leigu. 12.5.2023 16:57