Tveir slasaðir eftir árekstur strætós og fólksbíls Nokkrar umferðartafir voru fyrir skömmu neðst á Suðurlandsbraut í vesturátt eftir að strætisvagni var ekið aftan á fólksbíl á gatnamótum. Sjúkralið fór vettvang að hlúa að tveimur, sem eru með minniháttar áverka. 12.5.2023 16:21
Sneri við blaðinu og fékk þriggja ára dóm skilorðsbundinn Árni Khanh Minh Dao var í dag sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnabrot, með því að hafa flutt inn rétt tæplega tvö kíló af sterku metamfetamíni, sem er í daglegu tali kallað spítt, í ferðatösku sem hann tók með sér í áætlunarflug árið 2019. Athygli vekur að fullnustu refsingar hans var frestað til fimm ára. 12.5.2023 15:27
Biðja fyrrverandi nemanda afsökunar fyrir að hafa ekki tekið á sögusögnum Menntaskólinn á Akureyri hefur beðið fyrrverandi nemanda skólans afsökunar fyrir að hafa ekki tekið á sögusögnum um meint kynferðisbrot hans. Nemandinn hætti námi við skólann vegna sögusagnanna og ásakana á hendur honum. Mál sama nemanda var í hámæli síðasta haust þegar nemendur MH mótmæltu því að hann fengi að stunda nám við skólann þrátt fyrir meint brot. 12.5.2023 14:13
Slær líka á putta Kópavogs vegna nemendakerfis Persónuvernd hefur gert Kópavogsbæ að greiða fjögurra milljóna króna stjórnvaldssekt vegna notkunar bæjarins á nemendakerfinu Seesaw. Reykjavíkurborg var gert að greiða fimm milljónakróna sekt vegna notkunar sama kerfis í fyrra. 12.5.2023 13:32
Á yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi fyrir að brotlenda flugvél af ásetningi Fallhlífastökkskappinn og samfélagsmiðlastjarnan Trevor Jacob hefur játað að hafa hindrað rannsókn bandarískrar lögreglu með því að eyða sönnunargögnum um brotlendingu flugvélar, sem hann brotlenti af ásetningi. 12.5.2023 10:30
Samið um vopnahlé sem er þó frekar í orði en á borði Alþjóðadeild Rauða krossins tókst að senda hjálpargögn til Súdan í dag en áframhaldandi átök gera mannúðarstarfi erfitt fyrir. Samið hefur verið um vopnahlé en loftárásir á Kartúm, höfuðborg landsins, hafa samt sem áður haldið áfram linnulaust. Þörf sé á tafarlausu vopnahléi sem báðar fylkingar þurfi að virða 30.4.2023 23:41
Segja ríki og borg spila með framtíðaröryggi landsbyggðarinnar Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í fjórtán sveitarfélögum hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem áform innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um að hefjast handa við jarðvegsframkvæmdir og þar með undirbúning íbúðauppbyggingar í Skerjafirði eru fordæmd. Þau setji framtíð Reykjavíkurflugvallar, og þar með framtíðaröryggi landsbyggðarinnar í uppnám. 30.4.2023 23:07
Segir Tyrki hafa fellt leiðtoga ISIS Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir tyrknesku leyniþjónustuna hafa fellt Abu Hussein al-Qurashi, sem sagður er hafa tekið við stjórn Íslamska ríkisins eftir að Abu Ibrahim al-Qurayshi lést í árás Bandaríkjamanna á heimili hans í febrúar í fyrra. 30.4.2023 22:39
Systkini boða til hlaups til styrktar Einstökum börnum Systkinin Nína Kristín, Áslaug Arna og Magnús Sigurbjörnsbörn hafa boðið öllum sem vilja að hlaupa, ganga eða rúlla með þeim fimm kílómetra í miðbæ Reykjavíkur á morgun, 1. maí. Hlaupið verður til styrktar Einstökum börnum og til heiðurs móður þeirra, sem átti afmæli 1. maí og lést fyrir ellefu árum. 30.4.2023 22:10
Formlega hættur hjá Twitter: „Ég er mjög ánægður að geta klárað mitt starf í gleði“ Haraldur Þorleifsson hefur endanlega gengið frá starfslokum sínum hjá samskiptamiðlinum Twitter. Hann segir ánægjulegt að farsæl lausn hafi fundist í málinu, en það hefur mikið verið í deiglunni undanfarið. 30.4.2023 20:16