Álagning byggingaverktaka allt að eitt hundrað prósent Hagfræðingur Bandalags háskólamanna segir álagningu á nýbyggingar vera sífellt hækkandi og komna í sögulegar hæðir, heil eitt hundrað prósent. Það orsakist helst af miklum þrýstingi á fasteignamarkaði og ætti ekki að koma á óvart. Hagfræðingur hjá greiningardeild Arion banka segist leyfa sér að efast um að hátt fasteignarverð skýrist af því að byggingaverktakar hafi skyndilega ákveðið að hækka álagningu. 30.4.2023 19:17
Litlu mátti muna að sinubruni læstist í skemmu Brunavörnum Múlaþings gekk vel að ráða niðurlögum sinuelds sem kviknaði á túni við bæinn Dali í Hjaltastaðaþinghá nú síðdegis. Eldurinn logaði alveg við verkfærageymslu á túninu en náði ekki að læsa sér í geymsluna. 30.4.2023 18:20
Ráku konu í fæðingarorlofi og réðu aðra yngri Pólsk kona kærði í mars síðasta árs ákvörðun verslunarkeðjunnar Mini Market ehf. um að segja henni upp störfum í fæðingarorlofi og í kjölfarið rifta ráðningarsamningi á uppsagnarfresti. Verslunin bar fyrir sig samdrátt í rekstri en konan benti á að engum öðrum starfsmanni hefði verið sagt upp og að yngri kona hefði verið ráðin í hennar stað. Kærunefnd jafnréttismála telur verslunina hafa brotið gegn lögum um jafna stöðu kynjanna með uppsögninni. 29.4.2023 22:41
Sjaldgæft sjónarspil á himni Fyrr í kvöld mátti sjá sjaldgæft sjónarspil á himni yfir höfuðborgarsvæðinu þegar sást til rosabaugs með hjásólunum Úlfi og Gíl ásamt regnbogalituðum snertilsboga. 29.4.2023 21:33
Myrti fimm eftir að hafa verið beðinn um að hætta að skjóta úr byssu Karlmaður í Cleveland í Texasfylki í Bandaríkjunum er grunaður um að hafa myrt fimm hondúrska nágranna sína, þar á meðal átta ára gamalt barn, eftir að hann hafði verið beðinn um að hætta að skjóta úr riffli í bakgarði sínum. Tvö fórnarlambanna fundust örend ofan á tveimur börnum, sem lifðu árásina af. 29.4.2023 20:25
Tugir bíla skemmdir í Eyjafirði: „Ég ætlaði að sækja bílinn um síðustu helgi“ Skemmdarvargar tjónuðu um það bil þrjátíu bíla, sem geymdir eru í gamalli námu í Eyjafirði, í gærkvöldi. Eigandi eins bílsins telur tjónið jafnvel geta hlaupið á milljónum króna. 29.4.2023 19:19
Fjögurra ára skammtur stera gæti hafa stöðvað höfnunina Guðmundur Felix Grétarsson hefur legið á spítala undanfarið þar sem hann hefur fengið gríðarlega sterka sterameðferð vegna höfnunar líkama hans á handleggjunum, sem græddir voru á hann fyrir tveimur árum. Hann segist hafa fengið fjögurra ára skammt af sterum á síðustu þremur dögum og að hann gæti hafa stöðvað höfnunina. 29.4.2023 18:30
Hugmynd um flýtimeðferð ekki unnin í samráði við SÁÁ Heilbrigðisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær hugmynd um að veita 170 milljónir króna í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar. Meðal boðaðra aðgerða var stofnun flýtimóttöku þar sem einstaklingum í bráðum vanda er tryggt aðgengi að gagnreyndri heilbrigðisþjónustu á borð við fráhvarfsmeðferð, vímuefnameðferð eða viðhaldsmeðferð sem mætir þeirra þörfum. Forstjóri Vogs fagnar áformunum en segist ekki hafa heyrt af þeim fyrr en hún las um þau í fjölmiðlum í gær. 29.4.2023 17:49
Menntaskólinn í Reykjavík vann MORFÍs Menntaskólinn í Reykjavík vann rétt í þessu Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi, MORFÍs. MR mætti liði Flensborgarskólans í Hafnarfirði í úrslitum. 28.4.2023 23:40
Lögregla verst alla frétta af mannsláti á Selfossi: Misvísandi sögusagnir í umferð Lögreglan á Suðurlandi verst allra frétta af mannsláti á Selfossi síðdegis í gær. Ung kona sá sig knúna til að setja færslu á samfélagsmiðla og upplýsa um að hún væri ekki sú látna, þar sem sögur þess efnis gengu um bæjarfélagið. 28.4.2023 23:07