Stuðningur við Úkraínu eini valmöguleikinn Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fór til Odessa í Úkraínu í morgun ásamt öðrum utanríkisráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, sem höfðu verið á fundi í Moldóvu. Ekki hafði verið tilkynnt um heimsóknina fyrirfram af öryggisástæðum. 28.4.2023 22:43
Rekstrarhalli ríflega milljarði meiri en gert var ráð fyrir Rekstrarhalli samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2022 var 3,1 milljarður króna. Samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir tveggja milljarða króna halla. 28.4.2023 21:25
Tilkynnt um reyk í tilraunastöðinni að Keldum Allt tiltækt slökkvilið var sent að Keldum í Reykjavík eftir að tilkynnt var um reyk í einu húsa tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum. 28.4.2023 19:55
Öllu starfsfólki Niceair sagt upp Öllum sextán starfsmönnum Niceair hefur verið sagt upp störfum og félagið mun ekki hefja flugið aftur í sumar. 28.4.2023 19:17
Þrír hermenn létust þegar þyrlur skullu saman Þrír bandarískir hermenn létust í Alaska í Bandaríkjunum í dag þegar tvær herþyrlur skullu saman og hröpuðu til jarðar. Tveir hermenn voru í hvorri þyrlunni. Einn komst lífs af úr slysinu og er á sjúkrahúsi. 28.4.2023 18:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisstjórnin hefur samþykkt að verja eitt hundrað og sjötíu milljónum króna til að sporna gegn ópíóðafaraldrinum. Samstaða ríkir hins vegar ekki um afglæpavæðingu neysluskammta. Fjallað verður nánar um málið og rætt við yfirlækni Vogs um mögulegt fyrirkomulag boðaðrar viðbragðsþjónustu vegna vímuefnaneyslu. 28.4.2023 18:00
Sjö bíla árekstur í Ártúnsbrekku Laust eftir klukkan 17 í dag varð árekstur í Ártúnsbrekku við eldsneytisstöð N1 í austurátt. Alls voru sjö bílar sem lentu saman. Einn var fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka. 28.4.2023 18:00
Krefjast gæsluvarðhalds yfir mönnunum á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi hefur krafist þess að tveir karlmenn verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir andlát konu á Selfossi. Grunur er um að andlát konunnar hafi borið að með saknæmum hætti. 28.4.2023 15:57
Konan sem lögregla lýsti eftir fannst heil á húfi Uppfært 9:00: Konan sem lögregla lýst eftir fundin heil á húfi. 17.4.2023 22:42
„Aðeins skrímsli gæti gert barni þetta“ Danskur karlmaður var í dag ákærður fyrir að nema 13 ára gamla stúlku á brott. Hann er grunaður um að hafa nauðgað stelpunni ítrekað meðan hann frelsissvipti hana í rúman sólarhring. Saksóknari útilokar ekki að hann hafi haft vitorðsmenn. Móðir Filippu segir ómögulegt að setja sig í spor hennar og að fjölskyldan geri allt sem í hennar valdi stendur til þess að styðja hana. 17.4.2023 20:30