Reyndi að komast um borð í skemmtiferðaskip Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út þegar tilkynnt var um ölvaðan mann sem var til vandræða við Skarfabakka í Reykjavík, en maðurinn hafði reynt að komast um borð við skemmtiferðaskip sem þar lá við bryggju. 9.9.2022 07:42
Sendir úrkomusvæði yfir stóran hluta landsins í dag Lægð er nú stödd vestur af Reykjanesskaga og sendir hún úrkomusvæði sitt yfir stóran hluta landsins í dag. 9.9.2022 07:19
Vaktin: Syrgir móður sína ásamt heimsbyggðinni Elísabet II Bretadrottning lést í gær, 96 ára að aldri, í faðmi fjölskyldu sinnar í Balmoral kastala í Skotlandi. Karl sonur hennar er nú orðinn konungur Bretlands en hann mun ávarpa þjóð sína í fyrsta sinn sem konungur hennar í dag. 9.9.2022 07:15
Sýslumaður Íslands verði staðsettur á Húsavík Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur ákveðið að sýslumaður Íslands verði staðsettur á Húsavík, þegar öll sýslumannasembætti landsins hafa verið sameinuð undir eina stjórn. 9.9.2022 07:10
Svona verður dagskráin við setningu Alþingis á þriðjudag Alþingi verður sett þriðjudaginn 13. september og hefst þingsetningarathöfnin klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni, venju samkvæmt. 8.9.2022 15:05
Fréttaþulurinn Bernard Shaw er látinn Bandaríski fréttaþulurinn Bernard Shaw, sem starfaði lengi sem aðalfréttaþulur bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN, er látinn, 82 ára að aldri. 8.9.2022 14:27
Réttur fjöldi marka gæti gefið 650 milljónir króna Íslenskar getraunir mun síðar í mánuðinum taka upp nýjan getraunaleik sem felst í því að þátttakendur giska á hversu mörk verði skoruð í heild í hverjum þeim þrettán leikja sem eru á hinum hefðbundna enska getraunaseðli. Leikurinn verður nefndur XG og er það vísun í „Expected goals“ – mörkum sem reiknað sé með. 8.9.2022 14:00
Mesta hækkun stýrivaxta í sögu Seðlabanka Evrópu Seðlabanki Evrópu hefur ákveðið að hækka strýrivexti sína um 0,75 prósentustig, úr 0,5 í 1,25 prósent. Stýrivaxtahækkunin er sú mesta í sögu bankans frá árinu 1998. 8.9.2022 12:55
Drottningin undir sérstöku eftirliti lækna Elísabet önnur Bretlandsdrottning er nú undir sérstöku eftirliti lækna í Balmoral-kastalanum í Skotlandi. Ákvörðun þessa efnis var tekin í kjölfar þess að heilsu hennar hrakaði í morgun. Allir í nánustu fjölskyldu drottningar eru þegar komin til Balmoral eða eru nú á leiðinni þangað. 8.9.2022 11:51
Matthías frá Arion banka til Héðins Matthías Stephensen hefur verið ráðinn fjármálastjóri Héðins. Hann kemur frá Arion banka þar sem hann hefur starað frá 2011, síðast sem forstöðumaður rekstrar og sölu á viðskiptabankasviði, ásamt því að vera innlánastjóri bankans. 8.9.2022 10:09