Starfsmaður sendiráðs Úkraínu særður eftir bréfsprengju Einn starfsmaður úkraínska sendiráðsins í Madrid, höfuðborg Spánar, er sagður særður eftir bréfsprengja sprakk þar um miðjan dag. Lögreglan virkjaði viðbúnað vegna hryðjuverka og sprengjusérfræðingar voru sendir á staðinn. 30.11.2022 13:54
Fyrrverandi forseti Kína látinn Jiang Zemin, fyrrverandi forseti Kína og leiðtogi Kommúnistaflokksins, er látinn, 96 ára að aldri. Hann komst til valda eftir mótmælin á Torgi hins himneska friðar og hafði meðal annars umsjón með því þegar Kínverjar tóku aftur við Hong Kong úr höndum Breta. 30.11.2022 09:30
Borgin bótaskyld eftir að nemandi brenndist í eldgostilraun Reykjavíkurborg var dæmd bótaskyld vegna líkamstjóns unglingsstúlku sem brenndist þegar samnemandi hennar helti eldfimum vökva yfir eldgostilraun í efnafræðitíma. Stúlkan er með ör eftir slysið og örorka hennar metin tíu prósent. 30.11.2022 09:07
Selja Freyju eftir yfir fjörutíu ára rekstur Matvælafyrirtækið Langisjór hefur fest kaup á sælgætisgerðinni Freyju og fasteignum sem tengjast rekstri hennar. Freyja er elsta sælgætisgerð landsins og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu í yfir fjörutíu ár. 29.11.2022 15:14
Mótmæla því að Kóralrifið verði sett á hættulista Ástralska ríkisstjórnin ætlar að þrýsta á menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðananna að setja Kóralrifið mikla ekki á lista yfir heimsminjar í hættu. Stofnunin varaði við því að rifið væri í hættu yrði ekki gripið til róttækra aðgerða til þess að vernda það í gær. 29.11.2022 13:49
Rjúfa þögnina um rasistafund Trumps Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, og hópur þingmanna Repúblikanaflokksins rufu þögnina og gagnrýndu Donald Trump, fyrrverandi forseta, fyrir fund sem hann átti með Kanye West og þekktum kynþáttahatara. Pence hvatti Trump til þess að biðjast afsökunar. 29.11.2022 11:53
Hælisleitendur fá tíu þúsund króna desemberuppbót Ríkisstjórnin samþykkti að greiða umsækjendum um alþjóðlega vernd viðbótargreiðslur í desember líkt og fyrri ár. Þær nema tíu þúsund krónum til fullorðinna og fimm þúsund krónum fyrir börn til viðbótar við fastar framfærslugreiðslur. 29.11.2022 10:09
Musk segist ætla í stríð við Apple Elon Musk, eigandi samfélagsmiðilsins Twitter, bölsótaðist út í tæknirisann Apple og sakaði fyrirtækið óbeint um að hata tjáningarfrelsi í gær. Ef eitthvað er að marka yfirlýsingar Musk er Apple að íhuga að henda Twitter út úr snjallforritaverslun sinni. 29.11.2022 09:12
Mótmælin í Kína kæfð í fæðingu Mikill viðbúnaður lögreglu var í nokkrum stórum borgum Kína og svo virðist sem að mótmæli sem brutust út víða um helgina hafi nú fjarað út. Stjórnvöld eru sögð byrjuð að leita uppi fólk sem tók þátt í þeim. 29.11.2022 08:31
Þögn eftir að Trump fundaði með þekktum rasistum Leiðtogar og þingmenn Repúblikanaflokksins hafa að mestu þagað þunnu hljóði eftir að í ljós kom að Donald Trump, fyrrverandi forseti, hitti tvo þekkta rasista og gyðingahatara heima hjá sér í Flórída á dögunum. Trump vísar gagnrýni annarra á fundinn á bug. 28.11.2022 15:20