Sást til rússneskra herskipa nærri lekastaðnum í vikunni Evrópskar öryggisstofnanir eru sagðar hafa fylgst með ferðum rússneskra herskipa nærri staðnum þar sem lekar komu á Nord Stream-gasleiðslurnar í Eystrasalti í vikunni. Atlantshafsbandalagið telur að um skemmdarverk hafi verið að ræða. 29.9.2022 14:04
Illviðrið mögulega ákafara vegna hlýnunar jarðar Mögulegt er að öfgafullt illviðri sem gekk yfir landið um helgina hafi verið ákafara en ella vegna þeirrar hnattrænu hlýnunar sem hefur átt sér stað, að mati veðurfræðings. Leifar af fellibyl sem hafði áhrif á lægðina voru óvenjuöflugar vegna sjávarhlýnunar sem er beintengd hlýnun loftslags. 29.9.2022 12:52
Segir FÍ hafa leyft fararstjórum að starfa þrátt fyrir ásakanir um áreitni Fyrrverandi forseti Ferðafélags Íslands segir að stjórn þess hafi leyft fararstjórum að starfa áfram þrátt fyrir ásakanir um áreitni. Ekki hafi verið tekið á öllum málum sem tengdust kynferðislegri áreitni eða ofbeldi innan félagsins í samræmi við reglur, þvert á yfirlýsingar nýs forseta. 29.9.2022 10:29
Tvær milljónir án rafmagns og fólk innlyksa eftir Ian Fjöldi fólks er innlyksa í húsum sínum vegna flóða og tvær milljónir manna eru án rafmagns á suðvestanverðum Flórídaskaga í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Ian gekk þar yfir í nótt. Fellibylurinn er einn sá öflugasti sem gengið hefur á land í Bandaríkjunum. 29.9.2022 09:05
Dæmdur fyrir ítrekuð brot gegn barnungri frænku en gengur laus á Íslandi Karlmaður sem var dæmdur í sex ára fangelsi í heimalandi sínu í Evrópu fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn barnungri frænku sinni hefur verið úrskurðaður í farbann. Lögregla fór fram á gæsluvarðhald yfir manninum en dómstólar hér á landi höfnuðu kröfunni. 28.9.2022 15:06
Telja gasleiðslurnar geta skemmst varanlega Óttast er að rússnesku gasleiðslurnar tvær í Eystrasalti kunni að skemmast varanlega eftir skemmdarverk sem virðast hafa verið unnin á þeim. Þýski sjóherinn ætlar að taka þátt í rannsókn á lekanum. 28.9.2022 14:36
Siðgæðislögreglan sögð horfin af strætum og torgum Ekkert hefur sést til fulltrúa siðgæðislögreglu sem á að fylgjast með klæðaburði kvenna á strætum Teheran í Íran undanfarna daga. Raddir um að slaka ætti á ströngum reglum um klæðaburð kvenna hafa orðið háværari eftir dauða ungrar konu í haldi siðgæðislögreglunnar fyrr í þessum mánuði. 28.9.2022 12:20
Óttast loftslagsstórslys vegna gaslekans Losun gróðurhúsalofttegunda frá lekanum í Nord Stream-gasleiðslunum tveimur í Eystrasalti gæti jafnast á við árslosun heillrar borgar. Vísindamenn óttast loftslagshamfarir en losun vegna lekans gæti í versta falli orðið umtalsvert meiri en árslosun Íslands. 28.9.2022 10:54
Hvetja bresk stjórnvöld til að endurskoða skattalækkunaráform Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur bresku ríkisstjórnina til að endurskoða áform sín um stórfelldar skattalækkanir. Hagfræðingar sjóðsins vara við því að aðgerðin verði eldsneyti á frekara verðbólgubál og magni upp ójöfnuð. 28.9.2022 08:54
Vilja enn að Alþingi biðji ráðherra í landsdómsmáli afsökunar Fjórir þingmenn Mið- og Sjálfstæðisflokksins lögðu fram ályktun um að Alþingi biðji Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og tvo aðra ráðherra afsökunar vegna ákæru til landsdóms. Í þingsályktunartillögu þeirra segir að rangt hafi verið að leggja fram ályktun um að höfða mál gegn þeim. 27.9.2022 15:21
Dagur brjálaður á blaðamannafundi: Króatía eins og frosinn kjúklingur í skyndibitakeðju EHF Handbolti
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti