Opinber störf vegna fiskeldis fari á sunnanverða Vestfirði Forystumenn á Vestfjörðum þrýsta á að rannsóknar- og eftirlitsstörf vegna fiskeldis verði staðsett í fjórðungnum enda séu vestfirsk samfélög og firðir undir. Formaður bæjarráðs Vesturbyggðar segir að til þessa hafi ekkert einasta opinbert starf vegna greinarinnar komið á sunnanverða Vestfirði. 2.3.2023 21:42
Vill á hrossi yfir Þorskafjörð áður en hún ekur yfir brúna Brúarsmiðir í Þorskafirði eru búnir að ná landi beggja vegna fjarðar og flæða sjávarföll núna óhindrað undir sjálfa brúna. Bóndi í sveitinni, sem jafnframt er formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga, vill fyrst fara á hrossi yfir fjörðinn en segist mest hlakka til að losna við auruga malarvegina. 1.3.2023 22:11
Segir veginn um Teigsskóg verða hluta af landslaginu Vegagerð um Teigsskóg stendur núna sem hæst og er aðeins hálft ár í að hinn umdeildi vegur verði opnaður fyrir umferð. Bóndi í sveitinni, sem jafnframt er gröfumaður hjá verktakanum, segir að þetta verði mjög falleg leið og spáir því að vegurinn verði orðinn hluti af landslaginu eftir nokkur ár. 28.2.2023 21:41
Hyggst sækja verulega hækkun orkuverðs í viðræðum við Alcoa Landsvirkjun hyggst sækja verulega hækkun í viðræðum sem eru að hefjast við Alcoa um endurskoðun raforkuverðs fyrir álverið í Reyðarfirði. Þetta er langstærsti raforkusamningur Landsvirkjunar og tekur til þriðjungs af orkusölu fyrirtækisins. 27.2.2023 22:42
Byggja nýja blokk á bestu lóð Bíldudals Tíu íbúða fjölbýlishús er í smíðum á Bíldudal, það stærsta sem þar hefur risið í nærri hálfa öld. Sveitarfélagið Vesturbyggð og fyrirtækið Arnarlax beittu sér fyrir húsbyggingunni og vonast menn til að fljótlega verði byggt annað álíka stórt, svo mikil er húsnæðisþörfin. 27.2.2023 20:40
Segir óábyrgt að leysa orkuskiptin með því að flytja framleiðslu annað Ekki verður sérstaklega virkjað vegna nýrrar stóriðju, að mati forstjóra Landsvirkjunar, sem segir orku nýrra virkjana fremur fara til fjölbreytts hóps smærri fyrirtækja sem og til orkuskipta. 25.2.2023 22:20
„Þetta var svakalegt að sjá eldtungurnar“ Viðbragðsaðilar náðu að bjarga verðmætum Arctic Fish í Tálknafirði þegar húsnæði þess brann í gær og getur regluleg starfsemi fyrirtækisins því haldið áfram, að sögn sveitarstjóra, sem var með þeim fyrstu á vettvang brunans í gær. 24.2.2023 22:40
Beygð en ekki brotin eftir stórbrunann á Tálknafirði Framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish segir að bruninn í húsnæði fyrirtækisins á Tálknafirði sé mikið áfall. Tjónið kunni að hlaupa á milljörðum króna. 23.2.2023 19:32
Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti. 22.2.2023 22:45
Methagnaður Landsvirkjunar fyrst og fremst sóttur til stóriðjunnar Landsvirkjun á núna Kárahnjúkavirkjun skuldlausa sem og allar virkjanir byggðar fyrir hennar tíma. Forstjórinn segir methagnað fyrirtækisins fyrst og fremst sóttan til stóriðjunnar en ekki til almennings. 21.2.2023 22:30