Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Konur eru ekkert að leika sér að því að láta taka af sér brjóstin“

Formaður Brakkasamtakanna, Jóhanna Lilja Eiríksdóttir, telur ótækt að Sjúkratryggingar Íslands semji ekki við fyrirtækið Intuens ehf. um segulómtækismyndatöku. Fyrirtækið sé það eina á landinu sem eigi brjóstaspólur fyrir myndatöku, utan Landspítalans. Konur sem séu með BRCA genið fái aðeins þjónustu á Landspítalanum og að hún sé of óáreiðanleg.

Rektor HR segir mikil­vægt að verja val­frelsi nem­enda

Alls útskrifuðust 692 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík í gær með alls 701 prófgráðu. Í ræðu sinni ræddi Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, meðal annars þá ákvörðun HR fyrr á árinu að afnema ekki skólagjöld, í kjölfar tilboðs frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu um fulla fjármögnun ríkisins gegn afnámi skólagjalda.

Hundrað manna hjúkrunar­heimili gæti sparað tugi milljóna með smáforriti

Á hundrað manna hjúkrunarheimili væri hægt að spara um 24 milljónir árlega ef smáforritið Iðunn yrði innleitt í starfsemina. Þetta er meðal niðurstaða í lokaverkefni Önnu Bjarkar Baldvinsdóttur í hagfræði. Hún gerði í verkefninu kostnaðarábatagreiningu við innleiðingu Iðunnar á landsvísu.

Veiði­­hundar í Laugar­­dal grunaðir um að hafa banað ketti

Dýraþjónusta Reykjavíkur er nú með til skoðunar mál þriggja veiðihunda, ungverskra viszla, í Laugardal í Reykjavík. Hundarnir eru grunaðir um að hafa drepið heimiliskött á fimmtudaginn síðasta. Sömu hundar eru grunaðir um að hafa drepið tvo ketti áður. 

Festu særðan Palestínumann á húdd herjeppa

Ísraelski herinn segir hermenn sína hafa brotið reglur þegar þeir festu særðan Palestínumann á húdd jeppa síns í miðju áhlaupi hersins í Jenín á Vesturbakkanum í gær. Myndband af atvikinu er í mikilli dreifingu og er fjallað um málið á mörgum stórum erlendum fréttamiðlum. Atvikið átti sér stað snemma á laugardagsmorgun.

Lengsti þingfundurinn fimm­tán klukku­stundir

Þingi var frestað í nótt fram að hausti hafði þá verið að störfum frá 12. september til 16. desember 2023 og frá 22. janúar til 23. júní 2024. Í tilkynningu frá Alþingi kemur fram að alls hafi þingfundir verið 131 og að þeir hafi samtals staðið í rúmar 649 klst. Meðallengd þingfunda var fjórar klukkustundir og 55 mín. Lengsti þingfundur stóð í 15 klukkustundir og 43 mínútur.

Eyra bitið af manni í stór­felldri líkams­á­rás í nótt

Tveir voru handteknir í gær eða nótt vegna stórfelldrar líkamsárásar þar sem eyra var bitið af manni. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Ekki er tekið fram í tilkynningunni hvar eða hvenær árásin átti sér stað en málið er skráð hjá lögreglunni á Hverfisgötu.

Suð­vestan­átt með skúrum

Í dag fara skil sem komu með rigningu í gær og í nótt til norðurs frá landinu. Þá snýst vindurinn í suðvestanátt með skúrum, en léttir til á Norðausturlandi. Hiti verður á bilinu átta til fimmtán stig samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings. Hlýjast verður austanlands.

Lilja Rafney segir sig úr VG vegna svika flokksins

Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður Vinstri grænna hefur sagt sig úr flokknum. Það gerði Lilja Rafney eftir að samþykkt var á þingi frumvarp um kvótasetningu grásleppu. Í aðsendri grein segir Lilja Rafney að hún segi sig úr flokknum vegna svika hans við eigin sjávarútvegsstefnu.

Sjá meira