Krefjast þess að ráðherra dragi fyrirmæli sín til lögreglu til baka Eigendur netverslunarinnar Sante.is hafa sent fjármálaráðherra bréf þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við „óeðlileg afskipti ráðherra af lögreglurannsókn.“ Í bréfinu er þess krafist að fyrirmæli ráðherrans til lögreglunnar verði dregin til baka og að ráðuneytið fjarlægi bréfið sem hann sendi lögreglunni af opinberum vefsvæðum. 21.8.2024 18:00
Hellisheiði lokuð að hluta á fimmtudag til föstudags Hellisheiði verður lokuð til austurs við Þrengslavegamót frá því klukkan níu um morgun á fimmtudag til klukkan sjö föstudagsmorgun vegna malbikunarframkvæmda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 20.8.2024 14:57
Verðlag á matvöru lækkar í fyrsta sinn frá því í mars Verðlag á matvöru hefur lækkað, samkvæmt greiningu verðlagseftirlits ASÍ, í fyrsta sinn frá því að nýir kjarasamningar voru undirritaðir í mars. Þróunin var komin vel á leið fyrir opnun lágvöruverðsverslunarinnar Prís um helgina. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ. 20.8.2024 14:28
Lögregla leitar manna vegna ráns í Skeifunni Lögregla leitar nú manna vegna ráns í Skeifunni í morgun. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar vegna ránsins. 20.8.2024 12:14
Ekki ráðlegt að drekka orku eða neyta einnar fæðutegundar Ný norræn næringarviðmið voru gefin út nýlega. Jóhanna Eyrún Torfadóttir, verkefnastjóri næringar hjá embætti Landlæknis og næringarfræðingur, segir ekki miklar breytingar frá fyrri ráðleggingum. Það séu hærri viðmið um D-vítamín á Íslandi og að í nýjum ráðleggingum sé lögð meiri áhersla á að borða meira úr jurtaríkinu og minna rautt kjöt til að minnka kolefnisspor mataræðis. Jóhanna ræddi þessi mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 20.8.2024 11:47
Óvenju mikið að gera í Laugardalslaug í morgun Mikið var að gera í Laugardalslaug í Reykjavík í morgun. „Við héldum að það væri ættarmót,“ segir Birna Rún Kolbeinsdóttir starfsmaður laugarinnar. „Nú er allt flóttafólkið að koma hingað,“ segir hún og á þá við þá íbúa höfuðborgarsvæðisins sem þurfa að flýja heimili sín vegna heitavatnsleysis. 20.8.2024 08:25
Engin útköll vegna vatnsleka í nótt Nóttin var róleg hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og engin fleiri útköll vegna leka. Í tilkynningu frá slökkviliðinu kemur fram að síðasta sólarhringinn hafi þeir farið í átta útköll á dælubíla. Flest verkefnin voru leyst á nokkrum klukkustundum en um var að ræða bæði smáelda og vatnsleka. 20.8.2024 07:40
Léttskýjað og allt að fimmtán stig á Suður- og Vesturlandi Í dag er útlit fyrir norðlæga golu á landinu, en ákveðnari vindur austast. Dálítil rigning norðaustantil og svalt á þeim slóðum. Það verður yfirleitt léttskýjað og fallegt veður á Suður- og Vesturlandi með hita að 15 stigum þegar best lætur. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. 20.8.2024 07:13
Hleypur hálfmaraþon fyrir Sindra: „Það sem skiptir máli er að klára þetta fyrir Sindra“ Anna María Pálsdóttir ætlar næstu helgi að hlaupa sitt fyrsta hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu. Hún hleypur fyrir Hjálpartækjasjóð Sindra en hún hefur síðustu fimm ár sinnt liðveislu fyrir Sindra Pálsson. Fjölskylda Sindra safnar nú fyrir sérstakri útvistarkerru fyrir Sindra. 19.8.2024 08:01
Frægir kynnar á ráðstefnu Demókrata Kerry Washington, Tony Goldwyn, Mindy Kaling og Ana Navarro verða kynnar á ráðstefnu Demókrataflokksins sem hefst í Chicago í Illinois á morgun. Ráðstefnan stendur alla vikuna og mun hvert þeirra vera kynnir eina kvöldstund. 18.8.2024 23:25