Frumsýning á Vísi: Sigga Beinteins rifjar upp rokktakta frá níunda áratugnum í Reykjavík brennur Sigga Beinteins og Karl Orgeltríó gáfu saman út lagið Reykjavík brennur í gær og nú frumsýnir Vísir tónlistarmyndbandið við lagið. Að sögn Karls Olgeirssonar er lagið afturhvarf til uppruna Siggu Beinteins þegar hún var í rokkhljómsveitinni Kikk á níunda áratugnum. 8.7.2022 11:02
Segir Sievieródonetsk á barmi mannúðarhörmunga Ástandið í hinni hersetnu Sievieródonetsk „er á barmi mannúðarhörmunga,“ segir Serhai Haidai, ríkisstjóri Lúhansk í Úkraínu. Hann segir ekkert miðlægt vatnsveitu-, gasveitu- eða rafveitukerfi í borginni, um 80 prósent alls húsnæðis hafi verið eyðilagt og að Rússar fari ránshendi um borgina. 8.7.2022 08:21
Tveir alvarlega slasaðir í umferðarslysi nálægt Kirkjubæjarklaustri Tveir eru alvarlega slasaðir eftir að bíll sem ók eftir Meðallandsvegi nálægt Kirkjubæjarklaustri hafnaði utan vegar í nótt og valt. Þyrla landhelgisgæslunnar lenti með tvo sjúklinga á Landspítalanum klukkan hálf sex í morgun. 8.7.2022 07:13
Shinzo Abe skotinn til bana Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japan, hefur látist af sárum sínum eftir að hann var skotinn í bakið í nótt. Abe var að flytja ræðu í Nara í vestur Japan í nótt þegar skotmaður skaut hann með haglabyssu og hæfði hann í bakið. Abe var fluttur á spítala í kjölfar árásinnar en nú hefur japanka ríkisútvarpið NHK staðfest að hann sé látinn. 8.7.2022 06:12
Til mikils að vinna slái maður ekki garðinn sinn Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur mætti í Bítið til að ræða um Villigarðahreyfinguna sem hefur talað fyrir því að fólk slái ekki garða sína og hvað maður gæti grætt á að leyfa garðinum að vaxa villtum. Hún segir að slái maður ekki garðinn sinn geti ýmsar skemmtilegar plöntur farið að vaxa auk þess sem það viðhaldi líffræðilegum fjölbreytileika. 7.7.2022 14:30
Árni Friðriksson í makrílrannsóknum Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lét úr höfn 4. júlí til að taka þátt í alþjóðlegum leiðangri sem stendur yfir til 23. júlí. Eitt af meginmarkmiðum leiðangursins er að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmunna og norsk-íslenskrar síldar í norðaustur Atlantshafi að sumarlagi. 7.7.2022 13:40
Múgur og margmenni við opnun Elko og Krónunnar í Skeifunni Elko og Krónan opnuðu ný útibú í Mylluhúsinu í Skeifunni klukkan 9 í morgun. Áður en verslanirnar opnuðu var mikill fjöldi fólks mættur í röð fyrir utan Elko enda hundrað eintök af Playstation 5 til sölu í versluninni auk fjölda tilboða vegna opnunarinnar. 7.7.2022 10:55
Gul viðvörun víða um land Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðausturland, miðhálendi og Norðurland eystra og vestra í dag. Á miðhálendi og Norðurlandi verður viðvörunin í gildi til klukkan 21 en á Suðausturlandi verður hún í gildi alveg fram á miðnætti. Veðurstofan hvetur vegfarendur til að aka varlega á þessum slóðum. Að auki verður rigning með köflum í flestum landshlutum. 7.7.2022 08:07
Olís hyggst loka þremur þjónustustöðvum Þjónustustöðvum Olís á Skagaströnd, Ólafsfirði og í Fellabæ verður breytt í ÓB sjálfsafgreiðslustöðvar. Bæjarráð Fjallabyggðar hefur lýst yfir vonbrigðum með lokun þjónustustöðvar í Ólafsfirði og hefur óskað eftir fundi með Olís. Fyrirtækið ætlar á næstu árum að fækka þjónustustöðvum sínum og stækka þær sem verða eftirstandandi. 7.7.2022 07:24
Maður handtekinn vegna líkamsárásar í gærkvöldi og nokkuð um þjófnað Lögreglan handtók mann í gærkvöldi í kjölfar tilkynningar um líkamsárás í heimahúsi í hverfi 104 í Reykjavík. Einnig var lögreglan kölluð til nokkurra verslanna í Breiðholti vegna þjófnaða og áreitis. Þá var lögreglan kölluð til í Hafnarfirði vegna slagsmála á skemmtistað en þetta kemur fram í dagbók lögreglu. 7.7.2022 06:38