Sigvaldi Björn frá vegna höfuðhöggs Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson fékk þungt högg á höfuðið í vináttuleik með liði sínu Vive Kielce í gær. Hann missir því af leik liðsins gegn Füchse Berlin í dag. 19.8.2021 15:30
Klopp biður stuðningsfólk Liverpool um að hætta níðsöngvum um samkynhneigð Jurgen Klopp, þjálfari enska knattspyrnuliðsins Liverpool, hefur beðið stuðningsfólk félagsins um að hætta öllum hómófóbískum söngvum. Slíkir söngvum var beint að Billy Gilmour, leikmanni Norwich City, í leik liðanna um liðna helgi. 19.8.2021 15:01
Lewandowski vill nýja áskorun og ætlar að yfirgefa Bayern Framherjinn Robert Lewandowski hefur gefið það út að hann sé í leit að nýrri áskorun og vilji því yfirgefa herbúðir Þýskalandsmeistara Bayern München. Þýska félagið er talið vilja fá rúmlega 100 milljónir punda fyrir þennan magnaða leikmann. 19.8.2021 08:14
Ødegaard búinn að semja við Arsenal Enska knattspyrnufélagið Arsenal er við það að festa kaup á norska sóknartengiliðnum Martin Ødegaard. Skrifar hann undir fimm ára samning við félagið. Sá norski mun kosta Arsenal tæplega 40 milljónir evra. 18.8.2021 16:31
Fjórir lykilmenn fjarverandi í toppslag Víkings og Vals Næsta helgi í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu hefur alla burði til að verða ein sú áhugaverðasta í langan tíma. Toppslagur deildarinnar fer fram á sunnudag er Íslandsmeistarar Vals mæta í Víkina. Bæði lið verða án tveggja byrjunarliðsmanna í leiknum. 18.8.2021 15:00
Sigrún Sjöfn síðasta systirin til að yfirgefa Skallagrím Fjölnir hefur heldur betur styrkt sig fyrir komandi tímabil í efstu deild kvenna í körfubolta. Hin 32 ára gamla Sigrún Sjöfn Ámundadóttir mun leika með liðinu á komandi leiktíð. 18.8.2021 14:30
Kristianstad hafði betur í Íslendingaslagnum í Meistaradeildinni Íslendingalið Kristianstad tók á móti Bröndby í forkeppni Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í dag. Fór það svo að Kristianstad vann 1-0 og fer áfram í næstu umferð forkeppninnar á meðan Bröndby er úr leik. Þrír Íslendingar voru í byrjunarliði liðanna í dag. 18.8.2021 14:01
Þórólfur telur að fullir leikvangar muni koma í bakið á Bretum Fólki brá í brún þegar enska úrvalsdeildin fór af stað liðna helgi. Uppselt inn á hvern einasta leikvang þó svo að hlutfallslega hafi færri verið bólusettir þar heldur en hér á landi. 18.8.2021 13:00
Gugga um lífið eftir ferilinn : Stefndi á EM 2021, gat ekki neitað tilboði Eskilstuna og vildi vera meira með tvíburunum Guðbjörg Gunnarsdóttir lagði hanskana nokkuð óvænt á hilluna nýverið eftir farsælan feril hér heima, erlendis sem og með íslenska landsliðinu. Ólíkt öðru atvinnuíþróttafólki sem hættir keppni þá hefur Gugga nú þegar tekið næsta skref og er orðinn markmannsþjálfari Eskilstuna í Svíþjóð. 18.8.2021 10:00
Popovich sendi gagnrýnendum tóninn: Hvernig í fjandanum líst ykkur á okkur núna? Eftir óvænt töp í aðdraganda Ólympíuleikanna sem og fyrsta leik á leikunum sjálfum var umræðan í kringum bandaríska landsliðið í körfubolta ekki jákvæð. Gregg Popovich, þjálfari liðsins, sendi spekingum tóninn í ræðu sem hann hélt inn í klefa eftir að Bandaríkin höfðu tryggt sér gullið. 17.8.2021 17:01