Lof og last: Frammistaða FH, Kristall Máni, tíu KR-ingar, hiti í Kórnum og síðari hálfleikur Fylkis 17. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur vægast sagt mikið gengið á undanfarna tvo daga. Hér að neðan má sjá hvað á skilið lof, hvað á skilið last og hvað flokkast sem hvorki né. 17.8.2021 16:30
Aron Snær óbrotinn en fékk heilahristing Aron Snær Friðriksson, markvörður Fylkis, þurfti að fara af velli í 0-3 tapi Fylkis gegn Víkingum í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu eftir harkalegan árekstur. Aron Snær er óbrotinn en fékk heilahristing og veit ekki hversu lengi hann verður frá. 17.8.2021 16:01
Locatelli til Juventus Ítalski miðjumaðurinn Manuel Locatelli er á leið til Juventus frá Sassuolo. Hann skrifar undir samning til ársins 2026. 17.8.2021 13:36
Afganskar knattspyrnukonur í felum og kalla á hjálp Talibanar náðu Kabúl, höfuðborg Aftanistan, undir sitt vald á sunnudag. Leikmenn afganska kvennalandsliðsins í knattspyrnu hafa nær allar farið í felur enda óttast þær um líf sitt í kjölfar valdaskiptanna. 17.8.2021 13:01
Ekki oft sem maður sér svona frá ungum íslenskum leikmanni í þessari deild Kristall Máni Ingason átti magnaðan leik er Víkingar unnu sinn fyrsta deildarleik í Árbænum síðan 1993. Kristall Máni skoraði tvö mörk í 3-0 sigri og var óheppinn að bæta ekki við mörkum. Þá bjó hann til fjölda færa fyrir samherja sína. 17.8.2021 12:01
Kjartan Henry sagði Hjörvari að „skíta ekki á sig“ Mikill hiti var í leik HK og KR í Pepsi Max deild karla í gærkvöld. KR-ingar lönduðu mikilvægum 1-0 sigri þrátt fyrir að vera manni færri í rúmar 80 mínútur. 17.8.2021 11:15
Bakvörðurinn Basile til Njarðvíkur Bandaríkjamaðurinn Dedrick Basile mun leika með Njarðvík í efstu deild karla í körfubolta á komandi leiktíð. Basile átti stórgott tímabil með Þór Akureyri á síðustu leiktíð og vonast Njarðvíkingar eftir annarri eins frammistöðu í vetur. 17.8.2021 10:25
Hefur aldrei séð aðra eins syrpu af drauma vörslum í einum leik Jonathan Klinsmann, markvörður Los Angeles Galaxy, átti rosalega frammistöðu í 1-0 sigri Galaxy gegn Minnesota United um liðna helgi. Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkvörður Íslands undanfarin ár, hefur varla séð annað eins. 16.8.2021 16:30
KSÍ getur ekki staðfest fyrirkomulag miðasölu á landsleikjum haustsins A-landslið karla og kvenna eiga bæði leiki á Laugardalsvelli nú í haust. Vegna samkomutakmarkana getur Knattspyrnusamband Íslands ekki enn staðfest hvernig miðasölu á leikjunum verður háttað. 16.8.2021 14:30
Ekkert fær stöðvað frábæra Framara sem stefna hraðbyr á sæti í efstu deild að ári Eftir súran endi á sumrinu 2020 er Fram svo gott sem komið upp úr Lengjudeild karla í knattspyrnu þó enn séu sex umferðir eftir af deildinni. 16.8.2021 13:30