KR fær leikmann frá Val á láni Bergdís Fanney Einarsdóttir hefur verið lánuð frá toppliði Vals í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu til KR, toppliðs Lengjudeildarinnar. Mun hún klára tímabilið með KR sem reynir nú að tryggja sér sæti í Pepsi Max deildinni á næstu leiktíð. 23.7.2021 18:46
Leiðin lengri en Davíð Þór hafði vonað Davíð Þór Viðarsson, annar af þjálfurum FH, var nokkuð brattur er hann ræddi við Vísi eftir 0-2 tap sinna manna gegn Rosenborg í Sambandsdeild Evrópu. Leikurinn var nokkuð jafn en gestirnir refsuðu heimamönnum fyrir að nýta ekki færin sín í leiknum. 23.7.2021 16:30
Þrír erlendir leikmenn til Njarðvíkur Kvennalið Njarðvíkur í körfuknattleik hefur samið við þrjá erlenda leikmenn um að spila með félaginu í efstu deild á næstu leiktíð. 23.7.2021 15:45
Yfirgefur Djurgården eftir höfuðhögg Rachel Bloznalis hefur ekki spilað með sænska knattspyrnuliðinu Djurgården síðan í mars en þá fékk hún högg á höfuðið. Bloznalis hefur ákveðið að taka sér frí frá knattspyrnuiðkun og hefur því yfirgefið Djurgården. 23.7.2021 15:01
Anton Sveinn og Snæfríður Sól báru íslenska fánann inn á Ólympíuleikvanginn Sundfólkið Anton Sveinn McKee og Snæfríður Sól Jórunnardóttir voru fánaberar Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó sem hófst klukkan 11.00 í dag. 23.7.2021 13:00
Tíu sem gætu sprungið út á Ólympíuleikunum Fótboltinn er byrjaður að rúlla á Ólympíuleikunum og því tók The Athletic saman hvaða tíu leikmenn karla megin gætu sprungið út á leikunum. 23.7.2021 12:02
Tólf ára borðtennisspilari sú yngsta á Ólympíuleikunum Hin 12 ára gamla Hend Zaza er yngst keppenda á Ólympíuleikunum sem hefjast í Tókýó í Japan í dag. Hún er fimmti yngsti Ólympíufari sögunnar. 23.7.2021 11:30
Birkir að endursemja við Brescia og Mikael Egill á leið til Spezia í úrvalsdeildinni Það stefnir allt í að íslenska landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason verði áfram í herbúðum Brescia og að Mikael Egill Ellertsson verði fjórði Íslendingurinn í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, á næstu leiktíð. 23.7.2021 11:01
Alfreð og lærisveinar hans verða ekki viðstaddir opnunarhátíðina Þýska karlalandsliðið í handknattleik verður ekki viðstatt opnunarhátíð Ólympíuleikanna sem fram fer í Tókýó í Japan klukkan 11.00 í dag. 23.7.2021 10:01
Gæti orðið dýrasti leikmaður Man City frá upphafi Framtíð enska landsliðsframherjans Harry Kane virðist enn í lausu lofti. Spurning hversu lengi Tottenham Hotspur geti staðist gylliboð Manchester City en talið er að Englandsmeistararnir gætu boðið allt að 160 milljónir punda til að fá Kane í sínar raðir. 23.7.2021 09:30