Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segir þátttöku dáta hans í stríðinu í Úkraínu og í Rússlandi vera réttláta. Norður-Kórea hafi nýtt fullveldi sitt til að koma bræðraþjóð til aðstoðar. 10.5.2025 09:43
Þjófar réðust á starfsmann verslunar Lögreglunni barst í gærkvöldi tilkynning um fjóra aðila sem voru að stela í matvöruverslun í miðborg Reykjavíkur. Þegar starfsmaður reyndi að stöðva þá réðust þjófarnir á hann. Þegar lögregluþjóna bar að garði voru þjófarnir farnir og fundust þeir ekki, samkvæmt dagbók lögreglu. 10.5.2025 07:47
Átökin ná nýjum hæðum Árásir yfir landamæri Pakistan og Indlands virðast hafa náð nýjum hæðum í gærkvöldi og í nótt. Ráðamenn í Pakistan gerðu árásir gegn indverskum herstöðvum og vopnageymslum í aðgerð sem fékk nafnið „Blýveggur“, lauslega þýtt. Indverjar svöruðu með eigin árásum og meðal annars á herstöð þar sem finna má höfuðstöðvar pakistanska hersins. 10.5.2025 07:33
Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Útflutningur Kínverja til Bandaríkjanna dróst verulega saman í síðasta mánuði, eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, beitti umfangsmiklum tollum á vörur frá Kína. Þrátt fyrir að jókst útflutningur Kínverja á heimsvísu, samkvæmt nýjum tölum frá Kína, þar sem kínversk fyrirtæki hafa leitað til annarra markaða. 9.5.2025 12:16
Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er Forsvarsmenn geimferðafyrirtækisins Rocket Lab hafa gert samning við flugher Bandaríkjanna um að flytja farm með geimflaugum. Þannig á að nota eldflaug til að flytja frá einum stað á jörðinni til annars á einstaklega stuttum tíma, mögulega í neyðartilfellum. 9.5.2025 11:14
Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skipaði í gær sjónvarpskonuna Jeanine Pirro, þáttastjórnanda hjá Fox News, í embætti ríkissaksóknara í alríkisumdæminu Washington DC, sem starfandi ríkissaksóknara. Hún mun leysa af hólmi Ed Martin, sem setið hefur í embætti frá því hann var tilnefndur fyrir um fimmtán vikum. 9.5.2025 10:14
Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Leó fjórtándi, nýr páfi, heldur sína fyrstu messu í Vatíkaninu í dag. Hún er haldin í Sixtínsku kapellunni og eru kardinálar þeir einu sem fá að sitja hana. 9.5.2025 09:01
Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans John Prevost býst við góðum hlutum af bróður sínum, Robert Francis Provost, eða Leó fjórtánda, sem kjörinn var páfi í gær. John segir valið hafa komið sér og fjölskyldu sinni gífurlega á óvart. 9.5.2025 07:40
Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Bill Gates, einn auðugasti maður heims, ætlar að gefa næstum því öll sín auðæfi á næstu tuttugu árum. Hinn 69 ára gamli auðjöfur segist ætla að verja rúmum tvö hundruð milljörðum dala í baráttu gegn fátækt, vannæringu, mænuveiki og annars konar böli sem hrelli heiminn. 9.5.2025 07:02
Skilríkjalaus og með fíkniefni Lögregluþjónar höfðu í gærkvöldi afskipti af manni sem grunaður var um vörslu fíkniefna. Hann var ekki með skilríki og var því ekki hægt að staðfesta hver hann væri. Var hann því vistaður í fangageymslu á meðan mál hans er rannsakað. 9.5.2025 06:47