Fréttamaður

Samúel Karl Ólason

Samúel Karl er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Bein út­sending: Þor­gerður á­varpar mannréttindaráðið vegna Íran

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, ávarpar í dag mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna á sérstökum aukafundi. Hann er haldinn að frumkvæði Íslendinga og verður fjallað um alvarlega stöðu mannréttinda í Íran og mótmælin þar í landi undanfarnar vikur.

Viður­kenna loks, fyrir mis­tök, að Úkraínu­menn hafi sökkt Moskvu

Rússneskur dómstóll hefur dæmt yfirmann í úkraínska hernum fyrir að hafa sökkt beitiskipinu Moskvu, flaggskipi Rússa á Svartahafi, árið 2022. Í úrskurði herdómstóls í borginni Moskvu, sem birtur var á síðu dómstólsins en síðan fjarlægður, var í fyrsta sinn viðurkennt að Úkraínumenn hefðu sökkt skipinu með stýriflaug.

Repúblikanar leita aftur á náðir Musks

Elon Musk, auðugasti maður heims, er að snúa sér aftur að stjórnmálum í Bandaríkjunum eftir að hann lappaði upp á samband sitt við Donald Trump, forseta. Auðjöfurinn ætlar sér að opna veski sitt á nýjan leik fyrir þingkosningarnar í nóvember en háttsettir Repúblikanar eru sagðir hafa leitað á náðir Musks og beðið hann um aðstoð.

Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa

Franskir hermenn gerðu í dag áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er tilheyra Skuggaflota Rússlands. Skipið var undan ströndum Spánar á Miðjarðarhafinu þegar hermennirnir fóru um borð en það var vegna gruns um að skipið væri ekki skráð löglega og mun sá grunur hafa reynst réttur.

Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn

Jared Kushner, tengdasonur og ráðgjafi Donalds Trump, birti í dag sýn sína fyrir framtíð Gasastrandarinnar. Næsta skref segir hann að sé afvopnun Hamas-samtakanna og segist Kushner vilja endurbyggja Gasaströndina á grunni frjáls markaðar.

Sam­komu­lagið sem ekkert sam­komu­lag er um

Mikil óvissa ríkir varðandi meint samkomulag sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gerðu í gær. Óljóst er um hvað þeir sömdu eða hvort þeir sömdu um eitthvað yfir höfuð.

Trump kynnti friðarráðið

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, kynnti hið svokallaða friðarráð sitt á fundi Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss í dag. Ráð þetta þykir nokkuð umdeilt en það átti upprunalega að halda utan um málefni Gasastrandarinnar. Nú er útlit fyrir að Trump vilji að það leysi Sameinuðu þjóðirnar af hólmi.

Sýknaður af á­sökunum um að­gerða­leysi þegar ní­tján börn dóu

Fyrrverandi lögregluþjónn, sem var einn þeirra fyrstu sem mættu á vettvang skotárásar í grunnskóla í Uvalde í Texas árið 2022 var í gær sýknaður af ákærum um að hafa yfirgefið 29 börn vegna aðgerðaleysis þegar táningur myrti nítján nemendur og tvo kennara í skólanum.

Sjá meira