Myndi vilja sjá arfgerðargreiningu á öllu fé á landinu Það var þungt hljóð í fólki á fjölsóttum upplýsingafundi sem haldin var í gærkvöldi á Laugarbakka í Miðfirði. Búið er að skera 1400 fjár á síðustu dögum vegna riðu sem upp kom í sveitinni. Fleiri en 300 manns sóttu fundinn og mátti sjá þónokkra þingmenn í salnum sem og Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra. 19.4.2023 14:41
„Þetta er komið gott og það eru allir á því“ Allt fé á bænum Syðri-Urriðaá í Miðfirði var skorið niður í dag en hins vegar gekk illa að finna stað og verktaka til að urða hræin. Troðið var út að dyrum á upplýsingafundi um fjárskurðinn sem var haldinn á Laugarbakka. Meðal fundargesta voru kjörnir fulltrúar og ríkti þar mikil samstaða. Formaður Félags sauðfjárbænda í Húnaþingi Vestra segir komið nóg af núgildandi verkferlum. 19.4.2023 00:29
„Þetta þarf að vera faglegt mat“ Heilbrigðisráðherra segir að notkun lyfs við taugahrörnunarsjúkdómnum spinal muscular athrophy (SMA) verði ekki samþykkt nema að undangengnu faglegu mati. Nauðsynlegt sé að tryggja bæði öryggi notkunar lyfsins og að nytsemi hennar sé óyggjandi. 14.4.2023 23:45
„Við eigum skilið og eigum rétt á vernd fyrir þessum hækkunum“ Verð á hefðbundnum landbúnaðarvörum hefur hækkað umfram almennt verðlag og stendur nú í hæstu hæðum segir formaður neytendasamtakanna. Verðlagsnefnd búvara hækkaði verð á mjólk nú um mánaðamótin. 9.4.2023 21:07
„Þegar þú átt ekki nóg er lítil verðhækkun mjög erfið“ Stór hópur fólks þarf að leita aðstoðar hjálparsamtaka um Páskana að sögn framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar. Beiðnum um aðstoð hafi fjölgað mikið og verðhækkanir undanfarinna missera eru farnar að bíta. 9.4.2023 12:15
Komum í kvennaathvarfið fjölgað mikið á milli ára Komum í kvennaathvarfið fjölgaði mikið milli áranna 2021 og 2022, þetta sýnir komandi ársskýrsla athvarfsins. Framkvæmdastýra segir að margar ástæður geti skýrt aukninguna, ein sé aukin þekking almennings á starfseminni. 8.4.2023 19:50
Spennandi að fylgjast með þróun bóluefna gegn krabbameini Íslenskur krabbameinslæknir segir fréttir um að bóluefni við krabbameini gætu litið dagsins ljós innan fárra ára vera spennandi. Sagan sýni þó að rannsóknir taki oftast lengri tíma en áætlað er. 8.4.2023 15:46
„Við erum að ná vopnum okkar aftur“ Icelandair og Airbus hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup á þrettán flugvélum og kauprétt að tólf flugvélum umfram það. Ljóst er að um gríðarlegar upphæðir er að ræða og segir fjármálastjóri fyrirtækisins að félagið sé að ná vopnum sínum á ný eftir erfiða tíma. 7.4.2023 21:08
„Leiðinlegar fréttir fyrir samfélagið í heild“ Áhrif vandræða flugfélagsins Niceair á ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi eru enn óljós segir framkvæmdastjóri Skógarbaðana í Eyjafirði. Flugið hafi verið lyftistöng fyrir samfélagið og brotthvarfið því mikil vonbrigði. 6.4.2023 19:09
„Þessi sjúkdómur endar alltaf með dauða“ Vinna er hafin við að slátra öllu fé frá bænum Bergsstöðum í Miðfirði en þar kom upp staðfest tilfelli riðu síðastliðin mánudag. Yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun segir verkið tímafrekt enda smithætta mikil. 6.4.2023 15:32