Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Tugþúsundir Albana mótmæltu í höfuðborginni Tirana í gærkvöldi, þrítugasta og fimmta daginn í röð. Kallað er eftir afsögn forsætisráðherrans Edi Rama, stjórnarskrárumbótum og raunhæfum aðgerðum gegn spillingu í landinu. 5.7.2026 17:05
Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Árlega hlýtur einn landsmanna titilinn rauðhærðasti Íslendingurinn en sigurvegarinn í ár er Guðný Sverrisdóttir frá Hólmavík. Bæjarhátíðin Írskir dagar fór fram á Akranesi í vikunni og hefur val á rauðhærðasta Íslendingnum öðlast sinn sess sem fastur dagskrárliður. 5.7.2026 15:36
Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir það að fylgjast með asanum í meirihlutanum á sínum fyrstu starfsdögum minni á látagang í norsku þáttunum Exit. Hann hefur litla trú á að 300 milljónir muni raunverulega sparast með nýlegum uppsögnum og gagnrýnir að mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hafi verið lögð niður. 5.7.2026 14:19
Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Slys varð á Bryggjuhátíðinni á Stokkseyri í gær þegar ein fjögurra stoða hringekju gaf sig. Tækið er búið svokölluðum „bollum“ sem börnin setjast í og er síðan snúið í hringi. 5.7.2026 11:38
„Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ spyr Kristján Loftsson, eigandi Hvals ehf., í viðtali við breska blaðið The Telegraph. Blaðið slær því upp að ríkisstjórn Íslands sé tilbúin til að banna hvalveiðar til að auðvelda inngöngu í ESB. Ísland sé eitt þriggja landa, auk Noregs og Japans, sem enn geri slíkt eftir að Alþjóðahvalveiðiráðið lagði bann við hvalveiðum árið 1986. 5.7.2026 10:54
Melabúðin fagnar sjötíu árum „Ég svara bara: Til hamingju með afmælið sömuleiðis,“ segir Dýrleif Birna Sveinsdóttir, verslunarstjóri Melabúðarinnar, sem staðið hefur í ströngu í dag meðan haldið var upp á sjötíu ára afmæli búðarinnar. Boðið var upp á vöfflukaffi fyrir gesti og gangandi í tilefni dagsins. 4.7.2026 17:21
Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Umferðarslys varð á Norðurlandi vestra um þrjúleytið í dag þar sem tveir bílar skullu saman. Lögregla og sjúkraflutningamenn voru kölluð á staðinn. 4.7.2026 16:39
Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Mikið er um dýrðir í Bandaríkjunum í dag þar sem landsmenn fagna þjóðhátíðardegi sínum, kenndum við fjórða júlí. Þá fer þar einnig fram Heimsmeistaramót karla í knattspyrnu. Í landinu geisar þó skæð hitabylgja sem útlit er fyrir að setji strik í reikninginn þegar kemur að fagnaðarhöldum. 4.7.2026 15:31
Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið ræst út og er á leið að Fimmvörðuhálsi vegna alvarlegra veikinda sem upp komu hjá göngumanni. Aðgerðir eru enn yfirstandandi. 4.7.2026 12:43
Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Um klukkan fimm í morgun voru björgunarsveitir ræstar út vegna ungs manns sem skilaði sér ekki til baka úr ferð um uppsveitir Suðurlands. Maðurinn hafði haldið af stað í gærkvöldi einsamall og meðal annars ætlað sér að klífa fjöll. 4.7.2026 12:30