Hafði fé af mótsgesti Maður sem í dag var staddur á mótsvæði Norðurálsmótsins á Akranesi í dag gekk sannarlega ekki til góðs. Maðurinn sagðist safna áheitum fyrir góðgerðarfélag og ginnti gest til að greiða í posa. 20.6.2026 23:12
HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Háskólinn í Reykjavík útskrifaði í dag sjö hundruð og tuttugu nemendur. Tvískipt athöfn fór fram í Eldborgarsal Hörpu. 20.6.2026 22:44
Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Fréttastofu bárust ábendingar frá tónleikagestum á Þingvöllum um miklar tafir á tónleikasvæðinu vegna margmennis. Vonsvikinn gestur segir sviðið of lítið, áhorfendasvæðið rúmi ekki mannfjöldann og ekki sé nægt pláss í kringum matarvagnana. Tónlistarhátíðin Bergmál fór þar fram í dag en búist var við tuttugu þúsund gestum. 20.6.2026 22:10
Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina „Það er sól í heiði og allir í brosandi góðu skapi,“ segir Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mikill umferðarþungi hefur verið á leiðinni að Þingvöllum í dag vegna tónlistarhátíðarinnar Bergmáls. 20.6.2026 18:48
Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skoðar mál manns sem ónáðaði hlaupakonur miðsvæðis í Reykjavík í dag. Maðurinn kom aðvífandi á rafskútu og ýmist kleip í eða sló á rass þeirra. 20.6.2026 18:14
Slysið austan við Vík var alvarlegt Alvarlegt umferðarslys varð um fjögurleytið í dag austan Víkur í Mýrdal, nálægt Höfðabrekku, þegar bifhjól og ökutæki sem kom úr gagnstæðri átt rákust saman. 20.6.2026 16:46
Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Ísraelsk stjórnvöld og Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa náð samkomulagi um vopnahlé. Aðgerðir Ísraelshers í sunnanverðu Líbanon hafa staðið yfir síðustu mánuði með það að markmiði að gera út um samtökin sem eru á lista yfir hryðjuverkasamtök víða um heim. 19.6.2026 17:05
Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Alþingi samþykkti frumvarp til laga um nýja stofnun fyrir fólk sem þarf að sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn. Þessi hópur hefur hingað til fallið milli skips og bryggju í kerfinu, hafa þótt ógn við velferð annarra en ekki verið hægt að vista hann til frambúðar innan fangelsa. 19.6.2026 16:43
Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Mótmælaaðgerð Hólmsteins Harðarsonar, þar sem hann kom sér fyrir í tunnu í mastri hvalveiðiskipsins Hvals 9, vakti mikla athygli í gær. Með því vildi hann freista þess að fresta för skipsins út til veiða. Það fór engu að síður svo að skipið lagði úr Reykjavíkurhöfn og sigldi norður til Hvalfjarðar. Sjá mátti tvo áhafnarmeðlimi hlúa að Hólmsteini þegar skipið sigldi inn Hvalfjörðinn. 19.6.2026 14:47
Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Tónlistarhátíðin Bergmál fer fram á Þingvöllum á morgun, laugardag. Ferðamenn reka upp stór augu við sjónina en búið er að stilla upp tjöldum, tugum kamra, risastóru sviði og hljóðprufur eru hafnar. 19.6.2026 13:54