Ísland áfram grænt Ísland er áfram eina „græna“ landið samkvæmt korti Sóttvarnastofnunar Evrópu sem sýnir stöðu kórónuveirufaraldursins í álfunni. 26.3.2021 07:45
„Má reikna með hellingi af nýjum veðurviðvörunum fyrir helgina“ Veðurspáin fyrir helgina er ekkert sérstök og að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands „má reikna með hellingi af nýjum veðurviðvörunum fyrir helgina“. 26.3.2021 06:57
Ekkert útivistarveður á gosstöðvunum Það er spáð ansi leiðinlegu veðri á gosstöðvunum í Geldingadal í dag og í raun er þar ekkert útivistarveður. Svæðinu var lokað í gær af lögreglunni á Suðurnesjum vegna versnandi veðurs og hefur ekki borist nein tilkynning um að það hafi verið opnað aftur. 26.3.2021 06:34
Leikskólabörn í Laugarnesi í úrvinnslusóttkví Leikskólabörn og starfsfólk leikskólanna Laugasólar og Hofs í Laugarneshverfi í Reykjavík eru komin í úrvinnslusóttkví. 25.3.2021 08:32
Hörðustu samkomutakmarkanir til þessa taka gildi Hörðustu sóttvarnaaðgerðir sem gripið hefur verið til hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins tóku gildi á miðnætti. Aðgerðirnar ná til landsins alls. Neyðarstig almannavarna hefur verið virkjað og þá er Landspítalinn kominn á hættustig. 25.3.2021 07:10
Gasmengun leggur yfir stikuðu gönguleiðina Guðmundur Eyjólfsson, vettvangsstjóri lögreglunnar á Suðurnesjum, ráðleggur fólki að bíða með að leggja af stað í átt að gosstöðvunum í Geldingadal vegna gasmengunar sem leggur yfir stikuðu gönguleiðina. 25.3.2021 06:50
„Ekki útilokað að það sé smit einhvers staðar annars staðar“ Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna, segir erfitt að segja til um hversu mikið samfélagslegt smit er orðið eða hvort fjórða bylgja kórónuveirufaraldursins sé hafin. 24.3.2021 12:34
„Ég held að fjórða bylgjan sé komin hér í öllu sínu veldi“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur að fjórða bylgja kórónuveirufaraldursins sé hafin hér á landi. Hann segir að tími sé kominn til þess að skella öllu í lás og vill sjá sambærilegar samkomutakmarkanir og voru þegar þær voru sem harðastar fyrr í vetur. 24.3.2021 11:46
Ríkisstjórnin fundar um hertar aðgerðir innanlands Ríkisstjórnin kemur saman til aukafundar síðar í dag til að ræða tillögur Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, um hertar aðgerðir innanlands vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. 24.3.2021 10:31
Kári vill að stjórnvöld skelli öllu í lás Sautján manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra voru utan sóttkvíar og hinir fjórtán í sóttkví. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, vill að stjórnvöld skelli öllu í lás. 24.3.2021 09:49
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent