Níu skotáverkar á líkama hins látna Í bráðabirgðaskýrslu réttarmeinafræðings vegna réttarkrufningar á Armando Beqirai, mannsins sem skotinn var til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar, kemur fram að hann hafi hlotið níu skotáverka, meðal annars í höfuð, bol og lífsnauðsynleg líffæri. Þá fundust níu skothylki á vettvangi glæpsins. 18.3.2021 08:33
Helga Sigríður skipuð rektor MS Helga Sigríður Þórsdóttir hefur verið skipuð rektor Menntaskólans við Sund. Hún hefur verið konrektors skólans frá árinu 2017 en áður starfaði hún sem deildarstjóri og aðstoðardeildarstjóri við leikskóla í Noregi. 18.3.2021 07:17
„Ákaflega hlýtt loft“ yfir landinu Það er ákaflega hlýtt loft yfir landinu nú og í nótt hefur verið allt að fimmtán stiga hiti í hnjúkaþey á Tröllaskaga og á Austfjörðum að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. 18.3.2021 06:55
Eldur kom upp á gistiheimili Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að gistiheimili í Skipholti klukkan fjögur í nótt vegna elds. 18.3.2021 06:18
Verð á fjölbýli hækkar en sérbýli lækkar Hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í febrúar var 0,6 prósent miðað við 0,1 prósent í janúar. Hækkunin var þó misskipt þar sem verð á fjölbýli hækkaði um 0,9 prósent á meðan verð á sérbýli lækkaði um 0,7 prósent. 17.3.2021 10:31
„Vonandi fáum við einhverja viðvörun“ BBC fjallar á vef sínum í dag um jarðskjálftahrinuna sem verið hefur viðvarandi á Reykjanesskaga síðastliðnar þrjár vikur. „Ísland skelfur vegna meira en 50 þúsund jarðskjálfta á þremur vikum“ er yfirskrift umfjöllunarinnar. 17.3.2021 09:13
Opna bar og veitingastað í húsnæði Skelfiskmarkaðarins Þeir Arnar Þór Gíslason, Andri Björnsson, Logi Helgason og Óli Már Ólason hyggjast opna annars vegar bar og hins vegar veitingastað að Klapparstíg 28-30. 17.3.2021 07:45
Gul viðvörun og allt að fimmtán stiga hiti Víðáttumikil hæð sem er skammt vestur af Írlandi beinir hlýjum og rökum vindum til okkar en á Norður- og Austurlandi verður úrkomulítið auk þess sem þar munu jafnframt mælast hæstu hitatölurnar. 17.3.2021 06:57
„Rólegasta nóttin síðan hrinan byrjaði“ Rúmlega 400 skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaganum frá miðnætti. Þar af hafa þrír þeirra verið yfir þremur að stærð, sá stærsti varð klukkan 02:37 og var 3,3 að stærð. Upptök hans voru 1,9 kílómetra suður af Fagradalsfjalli. 17.3.2021 06:30
Bíða eftir niðurstöðum úr gögnum sem send voru til útlanda Rannsókn héraðssaksóknara á skotárás á bíl Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra, er ólokið. Kolbrún Benediktsdóttir, varahéraðssaksóknari, segir í samtali við Vísis að meðal annars sé verið að bíða eftir niðurstöðum úr rannsóknargögnum sem þurfti að senda til greiningar í útlöndum. 16.3.2021 11:40
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent