„Gestirnir, þeir koma í raun og veru með jólin til mín“ Það var ekki laust við að jólaandinn næði alla leið suður fyrr í kvöld þegar fréttamaður okkar, Tryggvi Páll Tryggvason náði tali af Benedikt Inga Grétarssyni, yfirjólasveini Jólagarðsins norður í landi. 8.12.2022 21:40
Líkamsstaða skipti sköpum í tugmilljóna bótamáli Tryggingafélagið Sjóvá-Almennar og ótilgreindur ökumaður bíls sem rann á annan bíl þurfa að greiða ökumanni þess bíls rúmar 23 milljónir í bætur. Héraðsdómur segir að líkamsstaða ökumannsins þegar bíllinn skall á bíl hans hafi skipt sköpum. 5.12.2022 15:09
Aukin heimild til eftirlits nái frumvarpið fram að ganga Nýtt frumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum felur í sér að lögregla fái heimild til að viðhafa sérstakt eftirlit með einstaklingum sem hafa tengsl við skipulagða brotastarfsemi, án þess þó að þeir séu grunaðir um afbrot. Frumvarpið felur einnig í sér að eftirlit með störfum lögreglu verður eflt frá núverandi mynd. 2.12.2022 14:44
Á sjötta tug hornfirskra hrossa slátrað vegna alvarlegs brots Matvælastofnun hefur lagt tímabundið bann við búfjárhaldi á umráðamann búfjár á ótilgreindum bæ í Hornafirði vegna alvarlegs brots á dýravelferðarlögum. Fimmtíu og fimm hrossum var slátrað vegna málsins. 2.12.2022 13:41
Brugðist við hallarekstri borgarinnar: Færri sýningar og boðsmiðar en meiri tími í beðunum Ráðast á í margvíslegar aðgerðir til að bregðast við miklum hallarekstri A-hluta Reykjavíkurborgar. Þar á meðal á að ráðast í 92 hagræðingaraðgerðir sem fela meðal annars í sér færri sýningar á Listasafni Reykjavíkur og færri boðsmiða á safnið. Skoða á mögulega sölu á bílastæðahúsum auk þess sem að útlit er fyrir að unglingar í Vinnuskólanum þurfi að eyða meiri tímum í beðum borgarinnar en fyrri sumur. 2.12.2022 11:58
Í gæsluvarðhald grunaður um tilraun til manndráps Karlmaður sem réðst að fyrrverandi eiginkonu sinni með öxi fyrir framan Dalskóla í Úlfarsárdal í gær hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps. 1.12.2022 14:51
Ákærður fyrir tilraun til manndráps og hrottafengna nauðgun Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, nauðgun og stórfelld brot í nánu sambandi. Lýsingar í ákærunni gefa til kynna að atlaga mannsins að konunni hafi verið hrottafengin. 29.11.2022 21:01
Kröfðust sex hundruð milljóna en fá ekki krónu Forsvarsmenn tveggja eignarhaldsfélaga utan um fólksflutninga á Austurlandi fá ekki krónu frá Sambandi sveitarfélagi á Austurlandi. Félögin tvö höfðu krafið sambandið um tæpar 600 milljónir króna í skaðabætur lögbanns sem sett var á akstur þeirra á milli Hafnar og Egilsstaða. 29.11.2022 15:24
Íslenskt hvalahor nýtt við rannsóknir á heilsu hvala Vonir standa til að rannsóknir á hvalahori og örum sem hvalir við Íslandstrendur bera eftir veiðarfæri geti varpað nánara ljósi á heilsu hvala hér við land. 29.11.2022 11:06
Verðbólgan mjakast lítillega niður á við Verðbólga síðustu tólf mánaða lækkaði lítillega á milli mánaða. Mælist hún nú 9,3 prósent en stóð í 9,4 prósent í síðasta mánuði. 29.11.2022 09:07