Óvæntar fjölskyldumyndir staðfesta tilvist dóttur leiðtoga Norður-Kóreu Óvænt birting mynda af Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu og dóttur hans saman hafa staðfest raunverulega tilvist hennar. Þetta er í fyrsta skipti sem myndir af henni eru birtar opinberlega. 19.11.2022 08:44
Mikil úrkoma fyrir austan Gera má ráð fyrir talsverðri mikilli rigningu á sunnanverðu landinu til Austfjarða um helgina. Vegfarendur á leið við Reynisfjall og undir Eyjafjöllum eru varaðir við öflugum vindhviðum. 19.11.2022 08:11
Iðinn sjálfsafgreiðslusvindlari gripinn glóðvolgur Maður sem virðist hafa stundað það að nýta sér sjálfsafgreiðslukassa til þess að greiða lægra verð fyrir vörur var gripinn glóðvolgur við iðjuna í verslun í Kópavogi í gær. 19.11.2022 07:39
Tugmilljarða hagnaður hjá Landsvirkjun Landsvirkjun hagnaðist um 31 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta er besta rekstrarniðurstaða á þessu tímabili í sögu fyrirtækisins. 18.11.2022 14:51
Koma af fjöllum vegna kókaíns í kaffivél sem lögregla vissi af Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar innflutning á tæpum tveimur kílóum af kókaíni sem falin voru í kaffivél. Hinir grunuðu virðast hafa gengið í gildru lögreglu sem vissi af sendingunni. Fjölskyldufaðir, sem er með stöðu sakbornings í málinu, virðist hafa blandað bæði föður sínum og syni í málið. Annar sakborningur er grunaður um að sitja á tugum milljóna sem lögregla telur hann ekki geta útskýrt. Þeir báðir segjast ekkert vita um umræddan pakka. 18.11.2022 13:40
„Þú verður bara að halda fast í stýrið og vona það besta“ Maður sem var hætt kominn þegar aurskriða féll á tvo bíla á Grenivíkurvegi snemma í morgun segir ótrúlegt að enginn hafi slasast. Það eina sem hann gat gert var að halda fast í stýrið og vona það besta. Skriðusérfræðingur segir viðbúið að aurskriðum fjölgi samhliða loftslagsbreytingum. 17.11.2022 19:27
Hinir „fjölþættu annmarkar“ voru í drögunum „sérstaklega bagalegir“ Samanburður á drögum Ríkisendurskoðunar á Íslandsbankaskýrslunni svokölluðu sem send voru málsaðilum til umsagnar við þá skýrslu sem gerð var opinber í gær leiðir í ljós að töluverðar breytingar voru gerðar á skýrslunni eftir að umsögnum um hana var skilað. 15.11.2022 07:00
Sér engar alvarlegar ábendingar um lögbrot Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist ekki sjá neinar alvarlegar ábendingar eða ásakanir um lögbrot í skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Hann segir að vandlega verði farið yfir þær ábendingar sem finna má í skýrslunni. 14.11.2022 15:34
Tæplega tíu þúsund færri en reiknað var með Rétt tæplega tíu þúsund fleiri einstaklingar eru skráðir í þjóðskrá en teljast til mannfjölda hér á landi, miðað við manntal ársins í fyrra. 14.11.2022 10:20
Vona að þögnin þýði að Rússarnir séu farnir Úkraínskir embættismenn telja að það muni taka rússneskt herlið minnst eina viku að hörfa frá vesturbakka Dnipro-ár og Kherson-borg í suðurhluta landsins. Úkraínski herinn hefur frelsað 41 byggð á svæðinu að sögn forseta Úkraínu. Íbúar á svæðinu fögnuðu fyrstu nótt þagnar frá því að stríðið hófst og vona að það þýði að Rússarnir séu farnir fyrir fullt og allt. 10.11.2022 23:31