NATO
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 19 ›
Pútín ítrekar kröfur gagnvart Austur-Evrópu Forseti Úkraínu vonar að endurnýjað vopnahlé frá því fyrr á þessu ári nái að draga úr spennu í samskiptunum við Rússa sem hafa verið á suðumarki undanfarin misseri. Pútín Rússlandsforseti ítrekaði kröfur sínar um afvopnum NATO ríkja í austri á árlegum marþonfundi með fréttamönnum í dag. Erlent 23.12.2021 20:00
„Það eru ekki við sem höfum ógnað neinum“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, krafðist þess aftur í dag að vesturveldin svokölluðu veittu Rússum tryggingar gagnvart því að Atlantshafsbandalagið neitaði ríkjum Austur-Evrópu um aðild að bandalaginu og vísaði aðildarríkjum af svæðinu á dyr. Erlent 23.12.2021 14:55
Segir Rússa tilbúna í átök Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir ríkisstjórn sína tilbúna til hernaðarátaka sýni vesturveldin óvinveittar aðgerðir vegna Úkraínudeilunnar. Pútín hefur lengi sakað Bandaríkin og Atlantshafsbandalagið um að valda aukinni spennu nærri landamærum Rússlands. Erlent 21.12.2021 13:29
Þorgerður Katrín segir hættulegt að verða við kröfum Rússa Formaður Viðreisnar sem jafnframt situr í utanríkismálanefnd segir að engin ein aðildarþjóð Atlantshafsbandalagsins geti ákveðið viðbrögð þess ef Rússar ráðast inn í Úkraínu. En breski varnarmálaráðherrann segir ósennilegt að NATO myndi senda hersveitir þangað Úkraínumönnum til varnar ef til innrásar kæmi. Innlent 19.12.2021 14:28
Bretar segja að NATO hersveitir muni ekki verjast innrás í Úkraínu Afar ólíklegt er að Bretar og bandamenn þeirra í Atlantshafsbandalaginu myndu senda hersveitir til aðstoðar Úkraínumönnum ef Rússar réðust inn í landið að sögn Ben Wallace varnarmálaráðherra Bretlands. Fréttir 19.12.2021 09:35
Rússar krefjast þess að NATO hverfi frá austur Evrópu Á sama tíma og rússneski herinn er grár fyrir járnum við landamærin að Úkraínu krefjast Rússar þess að NATO herir megi nánast ekki athafna sig í bandalagsríkjum Atlantshafsbandalagsins í austur Evrópu. Úkraínumenn vilja hins vegar kasta sovéttímanum á öskuhauga sögunnar. Erlent 18.12.2021 19:40
Jens Stoltenberg sækir um stöðu seðlabankastjóra Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), er í hópi umsækjenda sem vilja taka við starfi seðlabankastjóra Noregs. Erlent 14.12.2021 09:56
Vilja rússneska hermenn frá landamærum Úkraínu Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti ráðamenn í Rússlandi til að flytja hermenn sína á brott frá landamærum Úkraínu. Hann sagði að innrás í Úkraínu myndi hafa afleiðingar og meðal annars yrðu hinum ströngustu refsiaðgerðum beitt gegn Rússlandi. Erlent 1.12.2021 21:46
Rússneskur aðmíráll segir kafbát NATO hafa verið siglt á Kursk Vyachselav Popov, fyrrverandi aðmíráll í Rússlandi, heldur því fram að kafbátur frá ríki í Atlantshafsbandalaginu hafi valdið því að rússneski kafbáturinn Kursk hafi sokkið árið 2000. Eigin rannsókn Rússa leiddi í ljós að kafbáturinn sökk eftir sprengingu vegna gallaðs tundurskeytis. Erlent 22.11.2021 15:19
Norðurlöndin hefðu getað unnið meira saman í faraldrinum Sigurður Ingi Jóhannsson samstarfsráðherra Norðurlandanna segir að Norðurlöndin hefðu getað haft með sér meira samstarf á tímum covid faraldursins. Öryggis- og varnarmál hafi fengið aukna athygli í samstarfi Norðurlandanna á undanförnum árum. Erlent 3.11.2021 14:27
Rússar hefna fyrir refsiaðgerðir NATO-ríkja Skrifstofum Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Moskvu verður lokað og sendinefnd Rússlands gagnvart bandalaginu verður kölluð heim með aðgerðum sem stjórnvöld í Kreml tilkynntu um í dag. Aðgerðirnar eru svar við brottvísun rússneskra sendifulltrúa hjá NATO. Erlent 18.10.2021 15:46
Sprengjuþoturnar flognar frá Íslandi Bandarísku sprengjuþoturnar þrjár, hinar torséðu B-2 Spirit, eru farnar frá Íslandi. Þetta var í fyrsta sinn sem Keflavíkurflugvöllur var nýttur sem bækistöð fyrir B-2 sprengjuþotur en áður hafði aðeins ein flugvél slíkrar gerðar komið til landsins til stuttrar eldsneytismillilendingar. Innlent 14.9.2021 23:27
Keflavíkurflugvöllur skilgreindur sem framvarðarstöð B-2 til sprengjuárása Tvær af þremur B-2 Spirit sprengjuþotum bandaríska flughersins, sem staðsettar eru á Keflavíkurflugvelli um þessar mundir, æfðu með norska flughernum yfir Norðursjó í vikunni. Samkvæmt frétt norska hersins fóru æfingarnar fram á mánudag og miðvikudag með þátttöku F-35 orustuþotna Norðmanna sem komu frá Evenes-flugvellinum í Norður Noregi. Innlent 12.9.2021 13:40
Óvíst hvað staðan í Kabúl þýðir fyrir flóttafólk frá Afganistan Vonir milljóna manna í Afganistan um að komast úr landinu dvína hratt, nú þegar loftbrúin er að lokast og Talíbanar náð tökum á stærstum hluta flugvallarins. Stjórnvöld víða um heim segjast miður sín yfir að þurfa að skilja fólk eftir. Erlent 28.8.2021 16:31
Gunnólfsvík sögð ákjósanleg sem öryggis- og leitarhöfn norðurslóða Lagabreyting sem utanríkisráðherra kynnti fyrr á árinu um að skilgreina Gunnólfsvík á Langanesi sem öryggissvæði fyrir Landhelgisgæsluna hefur vakið spurningar um hvort hugmyndin sé að taka svæðið frá undir flotahöfn NATO. Sveitarstjóri Langanesbyggðar segir þetta ákjósanlegan stað fyrir öryggis- og leitarhöfn vegna norðurslóða. Innlent 24.8.2021 22:44
Skæðustu sprengjuþotur heims við æfingar á Íslandi næstu daga Þrjár bandarískar sprengjuþotur af gerðinni Northrop B-2 Spirit lentu í Keflavík í gærkvöldi og verða þær við æfingar hér við land næstu daga. Þoturnar eru þær dýrustu í flugsögunni og taldar einhver skæðustu árásarvopn sem mannkyn hefur smíðað. Innlent 24.8.2021 22:31
Tvenn íslensk hjón með börn enn í Kabúl Annar þeirra tveggja íslensku ríkisborgara sem sinnt hafa verkefnum fyrir stofnanir Atlantshafsbandalagsins í Afganistan er kominn til Sameinuðu arabísku furstadæmanna heilu og höldnu. Utanríkisráðuneytinu er nú kunnugt um tíu íslenska ríkisborgara sem enn eru staddir í afgönsku höfuðborginni Kabúl. Innlent 17.8.2021 11:35
Ringulreið og skert réttindi nú þegar Talibanar hafa tekið völdin Mikil ringulreið hefur ríkt á alþjóðaflugvellinum í Kabúl eftir að Talibanar tóku völdin í Afganistan í gær. Öryggis- og varnarmálafræðingur segir borgarbúa hrædda og halda sig heima. Erlent 16.8.2021 17:01
Vitað um einn Íslending enn í Afganistan Utanríkisráðuneytið þekkir til eins Íslendings sem sé enn staddur í Afganistan. Vonir séu bundnar við að hann komist fljótlega út landi. Erlent 16.8.2021 12:41
Harmleikurinn í Afganistan og ábyrgð okkar Eftir tuttugu ára hersetu Bandaríkjanna og Nató er Afganistan aftur komið undir stjórn Talibana. Stjórnarherinn sem naut þjálfunar og hergagna frá Bandaríkjunum var þrjá daga að tapa stríðinu og forsetinn hefur flúið land. Skoðun 16.8.2021 12:01
Vitað er af einum Íslendingi í Kabúl Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins staðfestir í samtali við fréttastofu að vitað sé um einn íslending í Kabúl. Innlent 15.8.2021 18:10
Yfirráð Talíbana verði aldrei viðurkennd Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir framsókn Talíbana í Afganistan grafalvarlegt mál sem alþjóðasamfélagið verði að bregðast við. Neyðarstjórn Nató fundaði um stöðuna í dag en yfirráð Talíbana verða aldrei viðurkennd af bandalaginu. Erlent 13.8.2021 18:36
Þúsund hermenn flúðu Talibana og enduðu í Tadsíkistan Rúmlega þúsund afganskir hermenn flúðu til Tadsíkistan í gær þegar vígamenn Talibana sóttu fram gegn þeim í norðurhluta Afganistan í gær. Talibanar náðu stjórn á nokkrum héruðum í norðurhluta landsins en stjórnarherinn á verulega undir högg að sækja á baráttunni við vígamenn. Erlent 5.7.2021 13:01
Loftrýmisgæsla hefst í næstu viku Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Innlent 2.7.2021 13:33
Síðustu hermenn NATO yfirgefa Bagram-herstöðina Síðustu hermennirnir úr röðum Bandaríkjahers og annarra NATO ríkja hafa nú yfirgefið Bagram herflugvöllinn í Afganistan. Völlurinn hefur verið aðalbækistöð herliðsins allar götur síðan stríðið gegn Talíbönum og al-Kaída hófst fyrir um tuttugu árum síðan. Erlent 2.7.2021 08:43
Ólíkir ráðherrar saman á fundi NATO fyrir hönd Íslands Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins (NATO) funduðu í höfuðstöðvum þess í Brussel í dag. Tveir ráðherrar Íslands sátu fundinn en þeir hafa nokkuð misjafna sýn á hlutverk bandalagsins og hvort Ísland eigi í raun heima þar. Innlent 14.6.2021 22:52
Segir Bandaríkin hafa „helga skyldu“ til að verja Evrópu Joe Biden Bandaríkjaforseti lýsti þátttöku Bandaríkjanna í sameiginlegum vörnum Evrópu, Kanada og Tyrklands sem „helgri skyldu“ þeirra við upphaf leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins (NATO) í morgun. Lagði hann áherslu á mikilvægi bandalagsins. Erlent 14.6.2021 13:40
NATO kvartar undan Kínverjum sem skjóta til baka á „lítil bandalög“ sem vilja ráða öllu Jens Stoltenberg, aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gerði aukin umsvif Kínverja að umtalsefni við upphaf leiðtogafundar NATO í Brussel í dag. Erlent 14.6.2021 12:52
Leggja áherslu á að styrkja pólitískt samráð Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins í Brussel hófst á tólfta tímanum. Utanríkisráðherra segir íslensk stjórnvöld leggja áherslu á að styrkja pólitískt samráð bandalagsríkja. Innlent 14.6.2021 12:00
Kalla bjórinn heim frá Afganistan Stjórnvöld í Þýskalandi hafa ákveðið að ráða verktaka í að flytja tæplega 23 þúsund lítra af bjór frá Afganistan aftur til Þýskalands, nú þegar Atlantshafsbandalagið (NATO) undirbýr að draga hermenn sína út úr Afganistan. Erlent 7.6.2021 23:18