Írak Bush og Blair ræða um Írak í dag Hernaðurinn í Írak verður aðalumræðuefnið á fundi þeirra George Bush og Tony Blair í Washington í dag. Skýrsla ráðgjafarnefndar Bandaríkjaforseta segir ástandið þar afar slæmt en enn þá sé tími til úrbóta. Erlent 7.12.2006 12:13 Búist við tillögum um aukið samstarf við Sýrlendinga og Írana Nefnd á vegum Bandaríkjaþings sem gera á tillögur um breytingar á stefnunni í Írak skilar niðurstöðum sínum í dag. Aukið samstarf við Sýrlendinga og Írana og heimkvaðning herliðsins í áföngum er á meðal þess sem búist er við að nefndin leggi til. Erlent 6.12.2006 12:05 Segir Bandaríkjamenn ekki á sigurbraut í Írak Robert Gates, tilvonandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði við yfirheyrslur fyrir varnamálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings að hann teldi ekki að Bandaríkjamenn væru á sigurbraut í Írak. Erlent 5.12.2006 16:03 Maliki hyggst boða til ráðstefnu vegna ástandsins í Írak Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, hyggst senda erindreka til nágrannaríkjanna á næstunni til þess að leita eftir samstarfi um að auka öryggi í Írak. Þá hyggst hann boða til ráðstefnu meðal ríkjanna um sama efni. Erlent 5.12.2006 15:05 Segjast hafa sannanir fyrir stuðningi Írana við uppreisnarmenn í Írak Bandarísk stjórnvöld segjast hafa fundið sannanir fyrir því að Íranar styðji uppreisnarmenn í Írak með því að útvega þeim vopn úr írökskum verksmiðjum. Þetta hefur fréttastofa bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC eftir heimildarmönnum sínum. Erlent 1.12.2006 09:02 Maliki telur írakskar sveitir tilbúnar um mitt ár Sérstök nefnd á vegum bandarískra stjórnvalda í málefnum Íraks leggur til að hluti af hersveitum Bandaríkjanna verði kallaður heim sem allra fyrst og að aukin völd verði færð í hendur írakskra öryggissveita án þess þó að tilgreina það frekar. Erlent 1.12.2006 07:10 Umferð tekin að flæða á ný um götur Bagdad Þriggja daga útgöngubanni í Bagdad, höfuðborg Íraks, lauk í morgun. Umferð fór að flæða á ný um götur Bagdad en notkun ökutækja hefur verið bönnuð í borginni síðan á föstudaginn. Erlent 27.11.2006 08:49 Útgöngubann í Írak eftir mannskæða árás Útgöngubann hefur sett á í Bagdad í Írak um óákveðinn tíma eftir eina mannskæðustu árás í landinu frá innrás Bandaríkjamanna árið 2003. Að minnsta kosti eitt hundrað fjörtíu og fjórir týndu lífi í sprengjuárás á fátækrahverfi Sjía í Bagdad í gær og talið er að hátt í þrjú hundruð manns hafi særst. Erlent 24.11.2006 07:09 Sautján létust í sjálfsmorðssprengjuárás Sautján verkamenn létust og fjörtíu og níu særðust í sjálfsmorðssprengjuárás suður af Bagdad höfuðborg í Íraks í dag. Róstursamt hefur verið í landinu í dag en að minnsta kosti tuttugu og fjórir vopnaðir menn, klæddir í lögreglubúningum, stormuðu inn á heimili aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraks og rændu honum. Erlent 19.11.2006 19:32 Aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraka rænt Vopnaðir menn rændu í dag aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraka þar sem han var staddur á heimili sínum. Ráðherrann, Síjinn Ammar al-Saffar, situr í ríkisstjórn Nuri al-Malaki og er í Dawaflokknum. Erlent 19.11.2006 15:25 Al-Kaída fagnar niðurstöðum þingkosninganna í Bandaríkjunum Leiðtogi Al-Kaída í Írak, Abu Hamza al-Muhajir, fagnaði í dag niðurstöðum bandarísku þingkosninganna og sagði bandaríska kjósendur hafa gert rétta hlutinn. Kom þetta fram í hljóðupptöku sem var birt á netinu í dag en ekki hefur enn verið staðfest að hún sé ósvikin. Erlent 10.11.2006 19:51 Viðurkenndi að stefnan í málefnum Íraks virki ekki nógu vel George Bush, Bandaríkjaforseti, viðurkenndi í ræðu sem hann hélt fyrr í dag að stefna Bandaríkjamanna í málefnum Íraks væri ekki að virka nógu vel og ekki nógu hratt. Erlent 8.11.2006 20:12 Býst við að dauðadómnum verði framfylgt innan árs Nouri Maliki, forsætisráðherra Íraks, býst við að dauðadómnum yfir Saddam Hussein verði framfylgt innan árs. Fréttastofan BBC greinir frá þessu en Maliki býst ekki við að horfið verið frá því að framfylgja dómum vegna þrýstings þar um. Erlent 7.11.2006 20:30 Vígamenn sækja í sig veðrið í Írak Alls hafa um 15 manns látist og 91 slasast í bardögum á milli öryggissveita og vígamannanna í Írak í dag. Vígamenn sjía, sem eru hliðhollir Muqtada al-Sadr, gerðu áhlaup á bæinn Amara í Suður-Írak. Erlent 20.10.2006 14:23 Hershöfðinginn stendur við yfirlýsingar sínar Nýr yfirmaður breska heraflans, Sir Richard Dannatt, segist standa við yfirlýsingar sínar um að réttast væri að Bretar kölluðu fljótlega hermenn sína heim frá Írak. Yfirlýsing hans er á skjön við stefnu breskra stjórnvalda og hefur Dannatt verið kallaður á fund varnarmálaráðherra Breta. Erlent 13.10.2006 11:28 Yfir 650 þúsund Írakar hafa fallið Erlent 11.10.2006 15:03 Ætlar að aflétta trúnaði á skýrslu um Íraksstríðið George Bush, Bandaríkjaforseti, ætlar að aflétta trúnaði á nokkrum hlutum skýrslu sem lekið var í fjölmiðla um helgina. Í henni kemur fram að stríðið í Írak hafi aukið hryðjuverkaógnina í heiminum. Erlent 26.9.2006 21:39 20 létust í árásum á knattspyrnuvelli Tuttugu manns létust og að minnsta kosti 14 særðust í tveimur sprengingum á sitt hvorum knattspyrnuvellinum í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Flestir hinna látnu voru börn sem voru að leik í einu af fátækrarhverfum borgarinnar. Íbúar hverfisins eru flestir sjítar. Erlent 3.8.2006 12:13 Ásakaðir um hrottafengin morð Flest bendir til að bandarískir landgönguliðar hafi í nóvember á síðasta ári myrt á þriðja tug íraskra borgara í hefndarskyni, þar á meðal mörg börn. Ódæðin eru sögð þau verstu sem bandaríska herliðið hefur gert sig sekt um í Írak frá því að ráðist var inn í landið. Erlent 27.5.2006 21:04 Samkomulag um stjórn í Írak Leiðtogar fylkinganna í Írak hafa komist að samkomulagi um stjórnarmyndun í landinu. Ekki er þó búið að ákveða hverjir verði ráðherrar innanríkis- og varnarmála, en þeim embættum fylgja yfirráð yfir vopnuðum sveitum í landinu. Innlent 19.5.2006 18:50 Níu fórust við dómshús Í það minnsta níu manns létu lífið þegar bílsprengja sprakk við dómshús í Bagdad í morgun. Að sögn lögreglu særðust í það minnsta 46 manns í árásinni. Þá fundust í morgun lík tuttugu manna nærri Tikrit. Þeir höfðu verið ráðnir af dögum. Erlent 4.5.2006 07:44 Al-Maliki í stað al-Jaafari Vonast er til að höggvið hafi verið á hnútinn í stjórnarmynduninni í Írak eftir að tilkynnt var um að Jawad al-Maliki, yrði forsætisráðherraefni fylkingar sjía, í stað Ibrahims al-Jaafari, núverandi forsætisráðherra. Erlent 22.4.2006 10:04 Um 50 fórust í sprengjuárás Um fimmtíu manns létu lífið í sprengjuáras á mosku sjía-múslima í Bagdad í morgun, rétt áður en föstudagsbænum lauk. Að minnsta kosti 45 manns til viðbótar særðust. Erlent 7.4.2006 13:54 Hvetja Íraka til að mynda starfhæfa ríkisstjórn Condolezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, hvöttu Íraka til þess að mynda starfhæfa ríkisstjórn sem fyrst en þau eru nú stödd í Írak. Andstaða gegn Íraksstríðinu magnast í Bandaríkjunum. Erlent 3.4.2006 12:21 Borgarastríð geisar í Írak Iyad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra Íraks, sagði í viðtali við BBC í morgun að borgarastyrjöld geisi í landinu og verði fljótlega ekki gripið í taumana muni þjóðarbrotin í landinu festast í vítahring ofbeldis sem í kjölfarið út öll Mið-Austurlönd. Erlent 19.3.2006 10:48 Brestir í viðræðum um stjórnarmyndun Brestir eru komnir í samningaviðræður um nýja ríkisstjórn í Írak. Forseti landsins er æfur út í forsætisráðherrann fyrir að fara í opinbera heimsókn til Tyrklands. Erlent 1.3.2006 12:39 Háttsettir írakskir lögreglumenn grunaðir um aðild að hryðjuverkum Breskir og írakskir hermenn handtóku í dag fjórtán háttsetta lögreglumenn í borginni Basra. Þeir eru taldir eiga þátt í mikilli fjölgun hryðjuverka í borginni undanfarnar vikur. Erlent 24.1.2006 20:51 Úrslit þingkosninganna í Írak tilkynnt í dag Úrslit þingkosninganna í Írak, sem fóru fram þann 15. desember síðastliðinn, voru tilkynnt í dag. Bandalag sjía-múslíma vann flest sæti, 128 sæti af 275. Erlent 20.1.2006 14:51 Dómari í máli Saddams hættir Dómstjórinn í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein hyggst láta af embætti sínu og mun greina frá ákvörðun sinni þess efnis næst þegar réttað verður í málinu, 24. janúar. Erlent 13.1.2006 21:20 Herþyrla skotin niður í Írak Uppreisnarmenn í Írak skutu niður bandaríska herþyrlu nærri Mosul í norðurhluta landsins í dag. Tveir voru í áhöfn hennar og eru báðir taldir af. Þetta er önnur bandaríska herþyrlan sem er skotin niður á viku, tólf fórust með þyrlu sem var skotin niður síðasta laugardag. Erlent 13.1.2006 15:52 « ‹ 6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 27 ›
Bush og Blair ræða um Írak í dag Hernaðurinn í Írak verður aðalumræðuefnið á fundi þeirra George Bush og Tony Blair í Washington í dag. Skýrsla ráðgjafarnefndar Bandaríkjaforseta segir ástandið þar afar slæmt en enn þá sé tími til úrbóta. Erlent 7.12.2006 12:13
Búist við tillögum um aukið samstarf við Sýrlendinga og Írana Nefnd á vegum Bandaríkjaþings sem gera á tillögur um breytingar á stefnunni í Írak skilar niðurstöðum sínum í dag. Aukið samstarf við Sýrlendinga og Írana og heimkvaðning herliðsins í áföngum er á meðal þess sem búist er við að nefndin leggi til. Erlent 6.12.2006 12:05
Segir Bandaríkjamenn ekki á sigurbraut í Írak Robert Gates, tilvonandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði við yfirheyrslur fyrir varnamálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings að hann teldi ekki að Bandaríkjamenn væru á sigurbraut í Írak. Erlent 5.12.2006 16:03
Maliki hyggst boða til ráðstefnu vegna ástandsins í Írak Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, hyggst senda erindreka til nágrannaríkjanna á næstunni til þess að leita eftir samstarfi um að auka öryggi í Írak. Þá hyggst hann boða til ráðstefnu meðal ríkjanna um sama efni. Erlent 5.12.2006 15:05
Segjast hafa sannanir fyrir stuðningi Írana við uppreisnarmenn í Írak Bandarísk stjórnvöld segjast hafa fundið sannanir fyrir því að Íranar styðji uppreisnarmenn í Írak með því að útvega þeim vopn úr írökskum verksmiðjum. Þetta hefur fréttastofa bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC eftir heimildarmönnum sínum. Erlent 1.12.2006 09:02
Maliki telur írakskar sveitir tilbúnar um mitt ár Sérstök nefnd á vegum bandarískra stjórnvalda í málefnum Íraks leggur til að hluti af hersveitum Bandaríkjanna verði kallaður heim sem allra fyrst og að aukin völd verði færð í hendur írakskra öryggissveita án þess þó að tilgreina það frekar. Erlent 1.12.2006 07:10
Umferð tekin að flæða á ný um götur Bagdad Þriggja daga útgöngubanni í Bagdad, höfuðborg Íraks, lauk í morgun. Umferð fór að flæða á ný um götur Bagdad en notkun ökutækja hefur verið bönnuð í borginni síðan á föstudaginn. Erlent 27.11.2006 08:49
Útgöngubann í Írak eftir mannskæða árás Útgöngubann hefur sett á í Bagdad í Írak um óákveðinn tíma eftir eina mannskæðustu árás í landinu frá innrás Bandaríkjamanna árið 2003. Að minnsta kosti eitt hundrað fjörtíu og fjórir týndu lífi í sprengjuárás á fátækrahverfi Sjía í Bagdad í gær og talið er að hátt í þrjú hundruð manns hafi særst. Erlent 24.11.2006 07:09
Sautján létust í sjálfsmorðssprengjuárás Sautján verkamenn létust og fjörtíu og níu særðust í sjálfsmorðssprengjuárás suður af Bagdad höfuðborg í Íraks í dag. Róstursamt hefur verið í landinu í dag en að minnsta kosti tuttugu og fjórir vopnaðir menn, klæddir í lögreglubúningum, stormuðu inn á heimili aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraks og rændu honum. Erlent 19.11.2006 19:32
Aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraka rænt Vopnaðir menn rændu í dag aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraka þar sem han var staddur á heimili sínum. Ráðherrann, Síjinn Ammar al-Saffar, situr í ríkisstjórn Nuri al-Malaki og er í Dawaflokknum. Erlent 19.11.2006 15:25
Al-Kaída fagnar niðurstöðum þingkosninganna í Bandaríkjunum Leiðtogi Al-Kaída í Írak, Abu Hamza al-Muhajir, fagnaði í dag niðurstöðum bandarísku þingkosninganna og sagði bandaríska kjósendur hafa gert rétta hlutinn. Kom þetta fram í hljóðupptöku sem var birt á netinu í dag en ekki hefur enn verið staðfest að hún sé ósvikin. Erlent 10.11.2006 19:51
Viðurkenndi að stefnan í málefnum Íraks virki ekki nógu vel George Bush, Bandaríkjaforseti, viðurkenndi í ræðu sem hann hélt fyrr í dag að stefna Bandaríkjamanna í málefnum Íraks væri ekki að virka nógu vel og ekki nógu hratt. Erlent 8.11.2006 20:12
Býst við að dauðadómnum verði framfylgt innan árs Nouri Maliki, forsætisráðherra Íraks, býst við að dauðadómnum yfir Saddam Hussein verði framfylgt innan árs. Fréttastofan BBC greinir frá þessu en Maliki býst ekki við að horfið verið frá því að framfylgja dómum vegna þrýstings þar um. Erlent 7.11.2006 20:30
Vígamenn sækja í sig veðrið í Írak Alls hafa um 15 manns látist og 91 slasast í bardögum á milli öryggissveita og vígamannanna í Írak í dag. Vígamenn sjía, sem eru hliðhollir Muqtada al-Sadr, gerðu áhlaup á bæinn Amara í Suður-Írak. Erlent 20.10.2006 14:23
Hershöfðinginn stendur við yfirlýsingar sínar Nýr yfirmaður breska heraflans, Sir Richard Dannatt, segist standa við yfirlýsingar sínar um að réttast væri að Bretar kölluðu fljótlega hermenn sína heim frá Írak. Yfirlýsing hans er á skjön við stefnu breskra stjórnvalda og hefur Dannatt verið kallaður á fund varnarmálaráðherra Breta. Erlent 13.10.2006 11:28
Ætlar að aflétta trúnaði á skýrslu um Íraksstríðið George Bush, Bandaríkjaforseti, ætlar að aflétta trúnaði á nokkrum hlutum skýrslu sem lekið var í fjölmiðla um helgina. Í henni kemur fram að stríðið í Írak hafi aukið hryðjuverkaógnina í heiminum. Erlent 26.9.2006 21:39
20 létust í árásum á knattspyrnuvelli Tuttugu manns létust og að minnsta kosti 14 særðust í tveimur sprengingum á sitt hvorum knattspyrnuvellinum í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Flestir hinna látnu voru börn sem voru að leik í einu af fátækrarhverfum borgarinnar. Íbúar hverfisins eru flestir sjítar. Erlent 3.8.2006 12:13
Ásakaðir um hrottafengin morð Flest bendir til að bandarískir landgönguliðar hafi í nóvember á síðasta ári myrt á þriðja tug íraskra borgara í hefndarskyni, þar á meðal mörg börn. Ódæðin eru sögð þau verstu sem bandaríska herliðið hefur gert sig sekt um í Írak frá því að ráðist var inn í landið. Erlent 27.5.2006 21:04
Samkomulag um stjórn í Írak Leiðtogar fylkinganna í Írak hafa komist að samkomulagi um stjórnarmyndun í landinu. Ekki er þó búið að ákveða hverjir verði ráðherrar innanríkis- og varnarmála, en þeim embættum fylgja yfirráð yfir vopnuðum sveitum í landinu. Innlent 19.5.2006 18:50
Níu fórust við dómshús Í það minnsta níu manns létu lífið þegar bílsprengja sprakk við dómshús í Bagdad í morgun. Að sögn lögreglu særðust í það minnsta 46 manns í árásinni. Þá fundust í morgun lík tuttugu manna nærri Tikrit. Þeir höfðu verið ráðnir af dögum. Erlent 4.5.2006 07:44
Al-Maliki í stað al-Jaafari Vonast er til að höggvið hafi verið á hnútinn í stjórnarmynduninni í Írak eftir að tilkynnt var um að Jawad al-Maliki, yrði forsætisráðherraefni fylkingar sjía, í stað Ibrahims al-Jaafari, núverandi forsætisráðherra. Erlent 22.4.2006 10:04
Um 50 fórust í sprengjuárás Um fimmtíu manns létu lífið í sprengjuáras á mosku sjía-múslima í Bagdad í morgun, rétt áður en föstudagsbænum lauk. Að minnsta kosti 45 manns til viðbótar særðust. Erlent 7.4.2006 13:54
Hvetja Íraka til að mynda starfhæfa ríkisstjórn Condolezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, hvöttu Íraka til þess að mynda starfhæfa ríkisstjórn sem fyrst en þau eru nú stödd í Írak. Andstaða gegn Íraksstríðinu magnast í Bandaríkjunum. Erlent 3.4.2006 12:21
Borgarastríð geisar í Írak Iyad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra Íraks, sagði í viðtali við BBC í morgun að borgarastyrjöld geisi í landinu og verði fljótlega ekki gripið í taumana muni þjóðarbrotin í landinu festast í vítahring ofbeldis sem í kjölfarið út öll Mið-Austurlönd. Erlent 19.3.2006 10:48
Brestir í viðræðum um stjórnarmyndun Brestir eru komnir í samningaviðræður um nýja ríkisstjórn í Írak. Forseti landsins er æfur út í forsætisráðherrann fyrir að fara í opinbera heimsókn til Tyrklands. Erlent 1.3.2006 12:39
Háttsettir írakskir lögreglumenn grunaðir um aðild að hryðjuverkum Breskir og írakskir hermenn handtóku í dag fjórtán háttsetta lögreglumenn í borginni Basra. Þeir eru taldir eiga þátt í mikilli fjölgun hryðjuverka í borginni undanfarnar vikur. Erlent 24.1.2006 20:51
Úrslit þingkosninganna í Írak tilkynnt í dag Úrslit þingkosninganna í Írak, sem fóru fram þann 15. desember síðastliðinn, voru tilkynnt í dag. Bandalag sjía-múslíma vann flest sæti, 128 sæti af 275. Erlent 20.1.2006 14:51
Dómari í máli Saddams hættir Dómstjórinn í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein hyggst láta af embætti sínu og mun greina frá ákvörðun sinni þess efnis næst þegar réttað verður í málinu, 24. janúar. Erlent 13.1.2006 21:20
Herþyrla skotin niður í Írak Uppreisnarmenn í Írak skutu niður bandaríska herþyrlu nærri Mosul í norðurhluta landsins í dag. Tveir voru í áhöfn hennar og eru báðir taldir af. Þetta er önnur bandaríska herþyrlan sem er skotin niður á viku, tólf fórust með þyrlu sem var skotin niður síðasta laugardag. Erlent 13.1.2006 15:52