Grindavík
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 76 ›
Hraunið að færast upp á varnargarðana Hraunrásin í eldgosinu á Reykjanesskaga hefur skriðið kröftuglega fram í dag og þrýstir nú á varnargarðana fyrir framan Grindavík. Mögulegt er að hraunið komist yfir garðana á næstu klukkustundum. Innlent 21.3.2024 14:48
Lönduðu eldsnemma í morgun þrátt fyrir eldgosið Áhöfn á Sturlu GK og landverkafólk útgerðafélagsins Þorbjarnar láta eldgosið sem er í námunda við Grindavík ekki á sig fá og lönduðu í Grindavíkurhöfn eldsnemma í morgun. Framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir baráttuvilja í sínu fólki en það sé óskandi að náttúruöflin drægju sig í hlé. Innlent 21.3.2024 12:24
Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Svo virðist sem fasteignamarkaðurinn hafi hitnað í febrúar, en vísitala íbúðaverðs og gögn um fasteignaauglýsingar gefa vísbendingu um aukna virkni og hærra íbúðaverð. Breytingin er mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Viðskipti innlent 21.3.2024 07:48
Vinna hafin við nýjan Grindavíkurveg Vinna hófst í dag við að leggja veg yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg í eldgosinu sem nú stendur yfir. Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðingur hjá Eflu telur að vegkaflinn verði um 300 til 400 metrar á lengd. Verkið mun taka nokkra daga. Innlent 20.3.2024 21:30
Grindvíkingar þrýsta á húsnæðismarkað Ný vísitala íbúðaverðs bendir til skarprar verðhækkunar á íbúðum í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Talið er að íbúðakaup Grindvíkinga séu helstu áhrifavaldurinn, og að áhrifin gætu orðið meiri á næstu mánuðum. Innlent 20.3.2024 18:49
Gosið stöðugt en dregur mögulega úr landrisi við Svartsengi Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumat á Reykjanesi vegna eldgossins. Eldgosið er enn stöðugt en mögulega dregur úr landrisi við Svartsengi. Innlent 20.3.2024 14:10
Vísbendingar um að gosið geti varað lengi Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn stöðug nú þegar hátt í fjórir sólarhringar eru frá því það hófst. Jarðeðlisfræðingur segir vísbendingar um að þetta eldgos gæti orðið svipað þeim sem urðu í Fagradalsfjalli og því varað lengur. Innlent 20.3.2024 11:16
Töluverð kvikustrókavirkni enn í gangi Lítið virðist hafa dregið úr gosinu á Reykjanesi í nótt en sprungan sem gýs á virðist vera að þéttast í sjö til átta gíga. Innlent 20.3.2024 07:18
Ólíklegt að spilað verði í Grindavík í sumar Haukur Guðberg Einarsson formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur heimsótti bæinn í dag og sótti æfingabúnað fyrir fótboltafélagið. Hann verður fluttur yfir í Safamýri þar sem Grindavík hefur fótboltaaðstöðu í sumar. Hann telur ólíklegt að hægt verði að spila á Grindavíkurvelli í sumar. Innlent 19.3.2024 23:56
Nýr Grindavíkurvegur vonandi lagður til frambúðar Jarðverkfræðingur hjá Eflu segir óvissu ríkja um hraunrennsli í átt að Suðurstrandavegi þrátt fyrir að útlitið sé ágætt sem stendur. Unnið er að lagningu nýs Grindavíkurvegar sem hann vonar að verði til frambúðar. Innlent 19.3.2024 19:05
Segir ástandsskoðanir NTÍ í Grindavík fúsk Grindvíkingurinn Hilmar Freyr Gunnarsson vill að Alþingi fari yfir framkvæmd ástandsskoðana Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) á húsum í Grindavík. Hann segir framkvæmdina forkastanlega og fúsk. Forstjóri NTÍ segir aðeins um fyrstu matsgerð að ræða og hvetur fólk til að skila inn athugasemdum sé það ósátt. Innlent 19.3.2024 15:56
Opna Grindavík aftur Grindavík hefur verið opnuð aftur og Grindvíkingum og þeim sem starfa í bænum leyft að dvelja þar og vinna. Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum segir að lítil sem engin hreyfing sé á hraunrennsli, bæði inn í Svartsengi og fyrir ofan Suðurstrandaveg. Innlent 19.3.2024 10:30
Stöðug virkni í nótt Virknin í gosinu á Reykjanesi hefur verið óbreytt í nótt frá því sem var í gærkvöldi. Innlent 19.3.2024 06:49
Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni Sunnudaginn 17. mars fór fram samverustund Grindvíkinga í Hörpu til styrktar börnum, unglingum og æskulýðsstarfi í Grindavík. Á samverustundinni var tilkynnt að tíu milljónir króna hefðu safnast. Lífið 18.3.2024 23:21
Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur Prófessor í jarðeðlisfræði segir eldgosið sem hófst á laugardag hegða sér öðruvísi en hin þrjú sem komið hafa upp á Sundhnúksgígaröðinni. Stöðug virkni í því gæti þýtt að það vari talsvert lengur en síðustu gos. Innlent 18.3.2024 20:30
Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Talsvert sjónarspil er enn á gosstöðvunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells, þar sem eldgos hófst á laugardagskvöld. Innlent 18.3.2024 19:17
Virkni gossins enn stöðug og hætta enn talin mikil Nýtt hættumat Veðurstofu Íslands tekur gildi í dag og mun gilda næstu tvo daga til 20. mars. Hætta er enn talin mjög mikil í Sundhnúksgígaröðinni og þá er mikil hætta vegna gasmengunar í kringum Svartsengi og vegna hraunflæðis. Innlent 18.3.2024 16:56
Endurskoða aðgangstakmarkanir á morgun Vel hefur gengið á hættusvæðinu við Svartsengi og í Grindavík í dag. Þó hefur verið töluverð mengun á svæðinu og verða aðgangsreglur inn í Grindavík endurskoðaðar á morgun. Innlent 18.3.2024 15:55
Engin löndun í bili í Grindavík Ekki verður landað í dag í Grindavík eins og vonir stóðu til um. Hafnarstjóri segir varnargarða þó hafa blásið mönnum byr í brjóst. Fyrirtæki fá að fara inn í bæinn í dag en fyrst stóð til að það yrði ekki leyft. Viðskipti innlent 18.3.2024 14:03
Fær engar slysabætur eftir að hafa ekið réttindalaus og „frosið“ á fjórhjólinu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað tryggingafélagið VÍS og ferðaþjónustufyrirtækið Fjórhjólaævintýri af bótakröfu ungrar konu sem lenti í slysi í fjórhjólaferð á vegslóða við Suðurstrandarveg árið 2021. Dómarinn í málinu mat konuna hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi enda hafi hún ekki verið komin með ökuréttindi þegar slysið varð. Innlent 18.3.2024 13:34
Hraunið á um 330 metra í Suðurstrandarveg Virkni í eldgosinu hefur verið nokkuð stöðug síðan seinnipartinn í gær. Það gýs á tveimur svæðum á gossprungunni í nokkrum gosopum, en svo virðist sem slökknað hafi í nyrstu gosopunum. Innlent 18.3.2024 11:57
Svartsengi rýmt vegna gasmengunar Forsvarsmenn HS Orku ákváðu að rýma starfsstöðina í Svartsengi í morgun vegna gasmengunar sem leggur yfir svæðið vegna eldgossins í Sundhnúkagígaröðinni. Innlent 18.3.2024 11:39
27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Alls sóttu 27 manns um starf forstjóra fasteignafélagsins Þórkötlu. Umsóknarfrestur rann út 5. mars síðastliðinn. Viðskipti innlent 18.3.2024 10:32
Sundhnúkareinin gæti verið á leið í mjög langt frí Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segist telja mögulegt að eldgosið sem hófst um helgina verði síðasta eldgosið á svæðinu í bili, þó eldvirkni á Reykjanesi sé hvergi nærri lokið. Mögulega eigi kerfið eitt eldgos í sér til viðbótar, sem verði þá eftir rúman mánuð. Innlent 18.3.2024 09:14
Vísbendingar um að kvikusöfnun sé hafin á ný Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri á Veðurstofunni, segir það ekki koma á óvart ef eldgosinu, sem hófst á laugardag, lýkur á næstu sólarhringum. Innlent 18.3.2024 08:51
Gígveggurinn hækkað en annars fátt að frétta af gosinu Gangur í eldgosinu sem nú stendur yfir á Reykjanesi virðist vera með svipuðu móti og í gærkvöldi en leiðindaveður og lélegt skyggni koma í veg fyrir að hægt sé að leggja almennilegt mat á þróun mála. Innlent 18.3.2024 06:27
Grindvíkingar búi í óvissu þrátt fyrir tölfræðileiki „Þetta hlýtur að vera mjög erfitt. Það er erfitt að setja sig spor þessa fólks að horfa enn og aftur upp á þetta. En þetta er það sem má búast við,“ segir Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, um þá erfiðu stöðu sem Grindvíkingar séu í vegna enn eins eldgossins. Innlent 17.3.2024 19:48
Ætti að vera í kirkju en skoðar hraunið í staðinn „Það er sunnudagur. Maður ætti að vera í kirkju, en svo er maður hér,“ segir Olgeir Sigmarsson, jarðvísindamaður hjá jarðvísindastofnun Háskóla Íslands í samtali við fréttastofu þegar hann var staddur við hraunjaðarinn ásamt fleiri vísindamönnum að safna sýnum úr hrauninu sem hefur runnið síðan í gærkvöldi. Innlent 17.3.2024 18:17
Telur ólíklegt að hraunið nái að Suðurstrandarvegi Verkfræðingur hjá Eflu segir ólíklegt að hraunrennsli nái að Suðurstrandavegi og út í sjó. Aðeins voru um 150 metrar í að hrauntungan sem rann í vesturátt að Svartsengi næði að hitaveitulögn, en rennslið virðist hafa stöðvast. Innlent 17.3.2024 16:59
Hraunið færist nær Suðurstrandarvegi Náttúruvásérfræðingur á von á því að hraun nái út í sjó áður en langt um líður. Hann segir mikilvægt að benda á að engum sé hollt að dvelja nálægt þegar það gerist, þar sem hættulegar gastegundir kunni að myndast. Hraun rennur rennur um tuttugu metra á klukkustund. Innlent 17.3.2024 15:08