Hælisleitendur
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 33 ›
Forsætisráðherra segir fordæmi fyrir inngripi Forsætisráðherra segir til athugunar að endurskoða það að vísa fólki úr landi til Grikklands. Heldur hefur fækkað í hópi þeirra sem vísa á úr landi á næstu dögum, samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra. Innlent 24.5.2022 21:00
„Ef það verður ekki komið í veg fyrir þessa ósvinnu þá verður Alþingi að grípa í taumana“ Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að dómsmálaráðherra hafi það í hendi sér að koma í veg fyrir „Íslandsmet í fjöldabrottvísunum.“ Hann telur að þingið geti þurft að stíga inn og stöðva fyrirætlanir stjórnvalda um að vísa fjölda fólks frá landinu. Innlent 24.5.2022 19:19
Séra Davíð Þór hótar Katrínu og Vinstri grænum helvítisvist Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarnesskirkju, er ómyrkur í máli um þann gjörning að vísa skuli um þrjú hundruð hælisleitendum úr landi á næstunni. Innlent 24.5.2022 15:26
Segir reglurnar túlkaðar þröngt og alls ekki af mildi og mannúð Fyrirhuguð fjöldabrottvísun stríðir gegn kristnum gildum að sögn Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups Íslands. Til stendur að brottvísa til Grikklands hátt í þrjú hundruð hælisleitendum. Margir þeirra hafa verið hér um langt skeið vegna kórónuveirufaraldursins, fest rætur og myndað tengsl við land og þjóð. Innlent 24.5.2022 14:17
Kannar hvort tilefni sé til að endurskoða ákvarðanir um brottvísun Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra skoðar hvort hægt sé að veita einhverjum úr hópi þeirra sem vísa á úr landi atvinnuleyfi. Kanna þurfi hvort aðstæður einhverra kalli á að ákvörðun um brottvísun verði endurskoðuð. Innlent 24.5.2022 12:03
Rangt að stefnan sé hörð: Ráðherrar VG aktívir að auglýsa landið sem áfangastað Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins tekur undir með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og andmælir því að hér sé að taka á sig mynd ein harðasta innflytjendastefna í Evrópu. Innlent 24.5.2022 10:31
Opið bréf til forsætisráðherra Íslands um stöðu flóttafólks í Grikklandi! Kæra Katrín Jakobsdóttir, það hefur legið fyrir árum saman hversu slæmar aðstæður eru fyrir fólk á flótta í Grikklandi. Ríkisstjórn þín tók fyrir nokkrum árum þá ákvörðun að hætta að endursenda fólk í hæliskerfinu þar í landi vegna óviðunandi aðstæðna. Það nær þó ekki til fólks með vernd í Grikklandi þó aðstæður þeirra séu í dag verri en aðstæður fólks í verndarkerfinu í sama landi. Skoðun 24.5.2022 09:30
Brottvísanirnar stríði gegn kristnum gildum Biskup Íslands gagnrýnir fyrirhugaðar brottvísanir á flóttafólki og hælisleitendum sem stjórnvöld áforma. Í viðtali við Fréttablaðið segir Agnes M. Sigurðardóttir að mat, fremur en óhagganlegar reglur, ráði för í málinu. Innlent 24.5.2022 07:23
Telur ekkert því til fyrirstöðu að leyfa fólkinu að vera Formaður hjálparsamtaka telur ekkert því til fyrirstöðu að dómsmálaráðherra veiti fólki sem vísa á úr landi dvalarleyfi, eins og gert var í tilviki flóttafólks frá Úkraínu. Forsætisráðherra segir spurningum ósvarað um fyrirætlanir eigin ríkisstjórnar að senda fólk til Grikklands. Dómsmálaráðherra segist einungis vera að framfylgja lögum og reglum. Innlent 23.5.2022 20:45
„Ég get ekki að setið undir þeim orðum þingmannsins“ Hart var sótt að stjórnvöldum og sér í lagi Vinstri grænum á Alþingi í dag vegna brottvísana hælisleitenda. Þegar Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar spurði Guðmund Inga Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hvernig hann gæti réttlætt það fyrir sjálfum sér að reka fólk í aðstæður sem hann myndi aldrei sætta sig við sjálfur, rann ráðherra í skap. Innlent 23.5.2022 17:13
Vonbrigði að stjórnvöld ætli að hefja brottvísanir á ný: „Þetta er bara algjörlega óboðlegt“ Stjórnarandstaðan segir óboðlegt að stjórnvöld ætli að vísa hælisleitendum úr landi aftur eftir langt hlé í faraldrinum þar sem margir hafa fest rætur sínar hér á landi. Þingmaður Píratatelur að frumvarp um breytingar á útlendingalögum muni ekki verða samþykkt og þingmaður Samfylkingarinnar segir meirihluta þjóðarinnar ekki kæra sig um ógeðfellda útlendingastefnu. Innlent 22.5.2022 23:15
Harðorð í garð Jóns vegna brottvísana og spyr hvort hann hafi komið til Sómalíu Helen Ólafsdóttir, öryggisráðgjafi fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Sómalíu, segir í opnu bréfi sínu til Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra að það sé pólitísk ákvörðun að vísa flóttafólki úr landi. Ráðherra og Útlendingastofnun skýli sér bak við reglugerðir við brottvísanir flóttafólks. Innlent 21.5.2022 14:11
Hefur þú komið til Sómalíu ráðherra? Það á að vísa 22 ára gamalli sómalískri stúlku úr landi. Það á að senda hana til Grikklands þar sem ljóst er að hún lendir strax á götunni. Dómsmálaráðherra segir eitthvað á þá leið að „þetta fólk“ hafi vitað af þessum brottvísunum svo þetta eigi ekki að koma á óvart. Stúlkan sem um ræðir Asli Jama og er nú þegar komin í sjálfboðastarf hjá Rauða Krossinum og ber því vel þess merki að hún sé að aðlagast lífinu vel á Íslandi. Skoðun 21.5.2022 14:00
Ekkert nema hryllingur bíði hennar í Grikklandi Sómölsk kona, sem vísa á úr landi á næstu dögum, segir brottvísun ógna lífi sínu. Lögmaður hennar gagnrýnir að stjórnvöld hefji nú brottvísanir á ný í stórum stíl, sem hann telur að gætu verið ólögmætar. Innlent 20.5.2022 19:00
„Mikill skellur fyrir stóran hóp af fólki“ Lögmaður gagnrýnir harðlega að hefja eigi aftur brottvísanir á hælisleitendum í stórum stíl. Umbjóðendur hans hafi fest hér rætur í faraldrinum. Hann hafnar því sem hann kallar alhæfingu ríkislögreglustjóra, sem segir 250 manns dvelja hér án heimildar eftir að hafa neitað að undirgangast sóttvarnareglur. Innlent 20.5.2022 11:31
Fjórtán samtök kalla eftir samráði við breytingar á útlendingafrumvarpi Rauði krossinn, ASÍ og Unicef eru meðal þeirra fjórtán samtaka sem gagnrýna stjórnvöld fyrir skort á samráði við meðferð frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga. Yfirlýsinguna sendu félögin frá sér í morgun og lýsa þar yfir áhuga og vilja á því að koma á samráði og samvinnu um mótun laga í málaflokknum. Innlent 19.5.2022 17:30
Flóttamenn frá öðrum löndum en Úkraínu upplifa mismunun Óánægja ríkir á meðal flóttamanna og starfsfólks innan kerfisins með það sem lýst er sem mismunun íslenskra stjórnvalda á flóttafólki. Talsmaður Rauða krossins gagnrýnir að úkraínskum börnum sé gert hærra undir höfði en öðrum með beinum fjárhagslegum stuðningi. Ráðherra segir að verið sé að taka sérstaklega utan um Úkraínumenn núna. Innlent 17.5.2022 23:01
Aldrei fleiri sótt um hæli Ríflega ellefu hundruð manns hafa sótt um hæli Íslandi það sem af er ári en aldrei hafa fleiri sótt um hæli hér á landi. Af þeim sem sótt hafa um eru sjö hundruð þrjátíu og fimm frá Úkraínu. Innlent 12.4.2022 12:03
Ný móttökumiðstöð bylting í þjónustu Fólki sem sækir um alþjóðlega vernd hér á landi hefur fjölgað gríðarlega að undanförnu, ekki síst vegna innrásar rússneskra stjórnvalda í Úkraínu. Skoðun 12.4.2022 10:30
Níutíu komu frá Úkraínu um helgina til að sækja um vernd Alls komu níutíu einstaklingar frá Úkraínu síðustu þrjá daga og sóttu um vernd á Íslandi. Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst þann 24. febrúar hafa 484 með úkraínskt ríkisfang sótt um vernd á Íslandi. Þar af eru 259 konur, 143 börn og 83 karlar. Innlent 28.3.2022 15:35
Segir alla tapa á nýju skipulagi Útlendingastofnunar Lögfræðingur hjá Rauða krossinum gagnrýnir harðlega nýtt skipulag Útlendingastofnunar og dómsmálaráðuneytisins um talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Hún segir alla tapa á nýju skipulagi. Innlent 5.3.2022 20:38
„Neyðarástand“ hjá Útlendingastofnun komi ekki í veg fyrir móttöku fólks frá Úkraínu Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra segir að meint „neyðarástand“ hjá Útlendingastofnun, sem dómsmálaráðherra sagði fyrir helgi að kynni að teppa aðstöðu fyrir flóttamenn sem hingað kunna að koma frá Úkraínu, muni ekki koma í veg fyrir móttöku flóttafólks. Innlent 28.2.2022 18:57
„Hreint neyðarástand hjá Útlendingastofnun“ Dómsmálaráðherra segir að hreint neyðarástand ríki hjá Útlendingastofnun. Flóttamenn sem fyrir eru teppi aðstöðuna fyrir þeim flóttamönnum sem kunna að koma frá Úkraínu. Innlent 25.2.2022 20:38
Öllum lögfræðingum Rauða krossins sagt upp störfum Samningur dómsmálaráðuneytisins við Rauða krossinn um réttaraðstoð og talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hefur ekki verið framlengdur og rennur út að tveimur mánuðum liðnum. Öllum lögfræðingum Rauða krossins hefur verið sagt upp störfum vegna þess. Innlent 15.2.2022 18:41
Ætlar ekki að vera með „VIP-leið fyrir sérhóp“ Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra, segir þingmenn stjórnarandstöðunnar misskilja breytingar sem hann gerði á reglum um afgreiðslu Útlendingastofnunar á umsóknum um ríkisborgararétt. Hann hafi með breytingunum komið í veg fyrir að sumir nytu hraðari afgreiðslu umsóknar um ríkisborgararétt en aðrir. Innlent 28.1.2022 09:07
Hittast á neyðarfundi vegna dauðsfalla flóttafólks á Ermarsundi Franska ríkisstjórnin hittist í dag á neyðarfundi til að ræða málefni flóttafólks, eftir að 27 drukknuðu í gær á Ermarsundi við að reyna að komast til Bretlands. Erlent 25.11.2021 07:25
Óvænt orðinn stjarna í Svíþjóð Sigurganga Akureyringsins Birkis Blæs í sænska Idol-inu heldur áfram. Hann er kominn í fimm manna úrslit og segist allt í einu vera farinn að eygja raunverulegan möguleika á að sigra keppnina. Lífið 20.11.2021 12:13
Endurtekið efni um endursendingar á börnum til Grikklands Í upphafi árs hófu íslensk stjórnvöld að synja barnafjölskyldum á flótta um efnislega meðferð umsókn sinna en ákvarða þess í stað að endursenda þær til Grikklands, þrátt fyrir að hafa metið aðstæður þar óviðunandi aðeins nokkrum mánuðum áður. Rauði krossinn, Barnaheill og UNICEF á Íslandi telja að hagsmunir barna séu ekki metnir á heildstæðan hátt og að ákvarðanir um endursendingar til Grikklands skapi börnum hættu sem íslensk stjórnvöld beri ábyrgð á. Skoðun 20.11.2021 10:00
Ráðherra beðinn um að rökstyðja fullyrðingar sínar um flóttamenn Skorað hefur verið á Priti Patel, innanríkisráðherra Breta, að draga til baka eða rökstyðja fullyrðingar sem hún setti fram fyrir þingnefnd um að flestir þeir hælisleitendur sem kæmu til landsins á bátum væru ekki raunverulegir flóttamenn. Erlent 2.11.2021 09:20
Á skilorði vegna mótmæla við Alþingishúsið Mótmælandi sem var handtekinn eftir mótmæli No Borders við Alþingishúsið í mars árið 2019 er kominn á skilorð fyrir að hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að færa sig frá aðalinngangi Alþingis við umrædd mótmæli. Mótmælandinn var sýknaður af því að hafa hindrað störf lögreglu á vettvangi. Innlent 21.9.2021 11:01