Bítið „
1 2 3 4 5 6 … 25 ›
„Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Edda Björgvins nýtur lífsins þessi jólin í faðmi fjölskyldunnar á Tenerife. Hún og Anna Svava Knútsdóttir eru sammála um að í raun sé fjölskyldan að koma út í „stórgróða“ með því að halda jólin frekar í útlöndum, eða svona því sem næst. Lífið 23.12.2024 15:30
„Fyrstu jólin án hans og sætið hans verður tómt“ Sigurður Þ. Ragnarsson betur þekktur sem Siggi stormur segist hafa fundið fyrir kvíða fyrir jólunum en þetta eru þau fyrstu eftir að sonur hans Árni Þórður Sigurðarson lést í ágúst síðastliðnum. Hann segir það hafa hjálpað sér mest í sorginni að tala um son sinn. Lífið 23.12.2024 10:37
Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra segjast spenntar takast á við verkefnum nýrrar ráðuneyta. Áherslumál þeirra eru til dæmis að efla læsi, íslenskukennslu fyrir innflytjendur og löggæslu. Þær segja það hafa verið rætt sérstaklega í ríkisstjórn að efla samvinnu og finna sameiginlega snertifleti. Innlent 23.12.2024 09:02
Vill að stjórn FH fari frá Sigurður P. Sigmundsson, formaður frjálsíþróttadeildar FH, segir að stjórn félagsins verði að fara frá nú í kjölfar þess greint hefur verið frá skýrslu Deloitte sem var unnin fyrir Hafnafjarðarbæ. Þar kom fram að fjörutíu prósent af byggingarkostnaði við knatthúsið Skessuna hafi farið í greiðslur til formanns félagsins og fyrirtækja sem bróðir hans er í forsvari fyrir. Innlent 20.12.2024 08:52
Orði gagnrýni eins og þeir vilji að makinn orði hana Theodór Francis Birgisson klínískur félagsráðgjafi hvetur fólk í parasamböndum til þess að hafa í huga hver tilgangurinn sé með því að gagnrýna. Hann segir að fyrir sér snúist gagnrýni um að rýna til gagns en ekki um að ná höggstað á þeim sem gagnrýnin beinist gegn. Lífið 18.12.2024 13:03
„Laun og kjör eru ekki það sama“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir gott að það sé verið að ræða mun á launum og kjörum opinberra starfsmanna og þeirra sem starfa í einkageiranum. Það sé þó áríðandi að það hafi allir sömu gögn og séu að bera saman sömu hlutina. Umræðan sé ekki á þeim stað í dag. Það þurfi að leggja áherslu á að finna sameiginlegan stað fyrir alla til að standa á. Innlent 17.12.2024 09:07
Ekki benda á mig segir forstjóri Landsvirkjunar Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir ekki hægt að kenna nýjum viðskiptavettvangi með raforku um raforkuverðshækkanir. Þá sé ekki hægt að sakast við Landsvirkjun sjálfa, ástæðan væri þegar fyrirséður raforkuskortur. Viðskipti innlent 17.12.2024 08:58
Orkuverð til bænda hafi allt að tvöfaldast Gunnlaugur Karlsson, forstjóri Sölufélags garðyrkjumanna, segir raforkuverð til garðyrkjubænda hafa hækkað um allt að hundrað prósent á örfáum árum. Haldi þróunin áfram gætu bændur lagt upp laupana. Innlent 16.12.2024 09:11
Safna upplýsingum um jólahefðir Íslendinga Helga Vollertsen og Sigurlaug Dagsdóttir, þjóðháttasérfræðingar hjá Þjóðminjasafninu, vinna nú að heimildasöfnun hjá Þjóðminjasafni Íslands um jólahefðir Íslendinga. Markmið söfnunarinnar er að varna því að jólasiðir samtímans falli í gleymskunnar dá og að hægt sé að varðveita upplýsingar um þá fyrir komandi kynslóðir. Lífið 11.12.2024 09:16
Tileinkaði sér hæglæti og býr nú skuldlaust í sveitinni Þóra Jónsdóttir formaður Hæglætishreyfingarinnar segir hæglæti hafa breytt lífi sínu. Hún lifir nú skuldlausu lífi ásamt eiginmanni sínum úti í sveit og segir alla hafa val um það hvernig þeir takast á við lífið. Lífið 9.12.2024 23:11
Hundruð sækja um aðstoð í aðdraganda jóla Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, segir jólin erfið mörgum fjölskyldum. Í fyrra hafi samtökin aðstoðað um 1.700 fjölskyldur. Hún segist ekki eiga von á fjölgun í ár en það komi í ljós eftir jól. Fjöldinn geti verið svipaður. Hún segir Íslendinga sem leiti til þeirra oft þá sömu ár eftir ár en að hópur útlendinga taki breytingum. Á morgun byrja samtökin að úthluta jólagjöfum til fjölskyldna sem hafa sótt um til þeirra. Innlent 9.12.2024 10:16
Að starfa með Sjálfstæðisflokknum eins og að sænga hjá ísbirni „Við erum minnt áþreifanlega á það í umræðu þessa dagana hve fallvalt gengi stjórnmálamanna er,“ sagði Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Vinstri grænna, í samtali við Bítið í morgun. Innlent 3.12.2024 10:12
Allir flokkar innan frávika í könnunum nema Flokkur fólksins Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, segir frávik í skoðanakönnunum í öllum tilvikum, nema hjá Flokki fólksins, hafa verið eitt til tvö prósent. Þá segir hún Sjálfstæðisflokkinn hafa verið vanmetinn í síðustu þremur kosningum. Innlent 3.12.2024 09:18
Upp á líf og dauða fyrir bæði Bjarna og Kristrúnu Stefán Einar Stefánsson blaðamaður á Morgunblaðinu telur stjórnarmyndun nú snúast um líf og dauða fyrir bæði Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins og Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingarinnar. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir ljóst að möguleikarnir til stjórnarmyndunar séu nokkrir, en hann hefur trú á því að Flokkur fólksins verði til í málamiðlanir. Samstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sé pólitískur ómöguleiki. Innlent 2.12.2024 10:47
Yfirgnæfandi líkur á óveðri á kjördag og líklegt að vegir teppist Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir yfirgnæfandi líkur á óveðri á Austurlandi og hríðarveðri á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum á kjördag. Hann segir líklegt að einhverjir vegir teppist á kjördag. Veður 27.11.2024 08:34
Meirihluti aukinna ríkisútgjalda farið í laun og bætur „Ertu búinn?“ spurði Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í orðaskaki við Heimi Karlsson, einn þáttastjórnanda Bítisins á Bylgjunni, þegar síðarnefndi sagði marga velta því fyrir sér í hvað skattpeningarnir væru að fara. Innlent 26.11.2024 10:11
Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Kristín Edwald formaður landskjörstjórnar segir mikilvægt að fólk vandi sig í kjörklefanum. Það eigi bara að setja X við sitt framboð og vilji það breyta eða strika út megi aðeins gera það við það framboð sem þau kjósa. Kristín segir landskjörstjórn í góðu sambandi við Veðurstofuna og ef veður verði svo slæmt á laugardag að ekki verði hægt að kjósa alls staðar sé heimild til að fresta kosningum í allt að viku. Innlent 26.11.2024 08:56
Tilfinningar þvælast fyrir tiltektinni Fyrsti vottaði skipuleggjandinn hér á landi segir tilfinningar fyrst og fremst vera það sem þvælist fyrir fólki þegar kemur að tiltekt. Hún hvetur fólk til þess að kaupa ekki hluti að óþörfu í þeirri tilboðsviku sem nú er að renna upp í tilefni af Svörtum fössara. Lífið 26.11.2024 08:02
Verði að koma í ljós hvort fergjun Njarðvíkuræðar heldur Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Almannavörnum, segir að þrátt fyrir að gosin hafi öll verið á svipuðum slóðum komi upp nýjar áskoranir í hvert sinn sem gýs. Innlent 21.11.2024 07:36
Sjálfstæðisflokkurinn hafi misnotað aðstöðu sína í aðdraganda kosninga Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata segir Sjálfstæðisflokkinn, og dómsmálaráðherra, hafa misnotað aðstöðu sína í starfsstjórn þegar kynnt var ný landamærastefna fyrir helgi. Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, vísar þessu alfarið á bug. Innlent 19.11.2024 09:32
Fólk fer of snemma af stað í næsta samband Það er æ algengara að pör búi ekki saman. Sérstaklega þegar þau eru komin yfir miðjan aldur. Þegar pör hætti saman gerist það í langflestum tilvikum að fólk fari of snemma af stað í næsta samband. Lífið 13.11.2024 12:03
Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Kristján Ingi Mikaelsson, stjórnarformaður Rafmyntaráðs og meðstjórnandi Visku digital assets, segir rafmyntir eins og Bitcoin komnar til að vera. Það sé jafnvel jólagjöf ársins í ár. Bitcoin hefur hækkað töluvert síðasta daga og hefur gjaldmiðillinn aldrei verið verðmætari. Viðskipti innlent 12.11.2024 10:05
Ósammála því að skoðanakannanir séu ekki nákvæmar Framkvæmdastjóri markaðsrannsóknafyrirtækisins Maskínu segist ekki sammála því að skoðanakannanir séu ónákvæmar. Könnunum sé ekki ætlað að vera spá um úrslit kosninga heldur að mæla stöðuna á hverjum tíma. Innlent 11.11.2024 09:29
Skrifa skilaboð með báðum og stýra með hnéi Hildur Kristín Þorvarðardóttir lögreglukona segir að stór hluti umferðarslysa megi rekja til þess að ökumenn séu í símanum við akstur. Hún segir það orðið algengt að fólk sendi skilaboð undir stýri, skoði myndbönd og samfélagsmiðla. Mikill fjöldi viti að þetta sé hættulegt en geri það samt. Innlent 6.11.2024 09:43
Fólk grípi til sænsku dauðhreinsunarinnar fyrr en ella Sjónvarpsstjarnan Soffa Dögg Garðarsdóttir sem oftast er kennd við Skreytum hús hvetur fólk til þess að huga að því fyrr en ella að henda dóti í þeirra eigu þegar það kemst á miðjan aldur til þess að auðvelda afkomendum þeirra lífið þegar það fellur frá. Þetta hefur öðlast miklar vinsældir í Svíþjóð og er kallað sænska dauðahreinsunin. Lífið 5.11.2024 14:02
Ekki lægri meðalhiti frá árinu 1997 Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir meðalhita á landinu ekki hafa verið minni frá árinu 1997. Það verði líklega hlýtt fram á miðjan mánuð en þá gæti veðrið breyst. Meðalhiti síðustu 12 mánaða er 4,4°C í Reykjavík. Veður 5.11.2024 08:39
Meirihluti er haldinn loddaralíðan Markþjálfi segir að rannsóknir sýni að mikill meirihluti fólks sé haldinn svokallaðri loddaralíðan. Konur og minnihlutahópar eru þar í miklum meirihluta en sé ekkert að gert geti það verið ávísun á kvíða, þunglyndi og að viðkomandi dragi sig til baka. Lífið 4.11.2024 13:01
Telur ráðningu Jóns í ráðuneytið ekki koma til af góðu Sigursteinn Másson stjórnarmaður í Dýraverndarsambandi Íslandi, DÍS, segir það ólýðræðislegt og valdníðslu að taka ákvörðun í starfsstjórn um að gefa út nýtt starfsleyfi til hvalveiða. Jón Gunnarsson aðstoðarmaður forsætisráðherra i matvælaráðuneytinu segir umsóknina til afgreiðslu í ráðuneytinu. Það megi ekki tefja afgreiðslu auk þess sem það þurfi að tryggja fyrirtækjunum fyrirsjáanleika. Hann hafi verið enginn síðustu tvö ár. Innlent 31.10.2024 09:10
Misskilningur að einræðisríki séu skilvirkari en lýðræðisríki Einræðisríki eru ekki skilvirkari en lýðræðisríki þrátt fyrir að óþol gagnvart lýðræðinu hafi gripið um sig sums staðar, að sögn sagnfræðings. Tjáningarfrelsi sem íbúar lýðræðisríkja njóta valdi því að meiri gagnrýni heyrist á þau en einræðisríki. Innlent 29.10.2024 10:50
Vannærð og veik af áfengisneyslu eftir vetursetu í Evrópu Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir á Landspítalanum, segir áfengissýki ört stækkandi vandamál hjá öldruðum. Það hafi víðtæk áhrif á fólk og aðstandendur. Sumir hafi glímt við þetta alla ævi en aðrir leiðist út í aukna neyslu áfengis á eldri árum. Anna Björg fór yfir þetta í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 28.10.2024 09:34