Íþróttir

Þrjú Íslandsmet hjá Arnari Helga
Bætti þrjú Íslandsmet í hjólastólaakstri á móti í Sviss.

Fanney heimsmeistari unglinga með yfirburðum
Gróttukonan Fanney Hauksdóttir varð í dag heimsmeistari unglinga í bekkpressu.

Taekwondo-landsliðið varð Norðurlandameistari
Ísland vann stigakeppni landsliðannna með töluverðum yfirburðum.

Norma Dögg yfir sögulegan múr og aftur varamaður í úrslit á EM
Norma Dögg Róbertsdóttir, Íslandsmeistari í áhaldafimleikum, er búin að stimpla sig inn sem einn af fremstu stökkvurum í Evrópu í áhaldafimleikum kvenna.

Þormóður vann silfur í Lundúnum
Þormóður Jónsson júdókappi varð að sætta sig við silfur á Evrópubikarmótinu í Lundúnum í dag í +100 kg flokki. Þormóður tapaði úrslitaglímunni gegn Ítalanum Mascetti Alessio.

Kristján Helgason Íslandsmeistari fjórða árið í röð
Kristjan Helgason varð í gær Íslandsmeistari í snóker 2014. Kristján lagði Bernharð Bernharðsson örugglega í úrslitum 9-1.

Tíu íslensk verðlaun á BJJ-móti í Kaupmannahöfn
Um nýliðna helgi fór fram Copenhagen Open mótið í brasilísku jiu-jitsu. 15 íslenskir keppendur tóku þátt frá þremur íslenskum félögum, Mjölni, Fenri og VBC. Hluti hópsins tók einnig þátt á Danish Open sem fram fór um síðustu helgi þar sem íslensku keppendurnir voru afar sigursælir.

Hóparnir klárir fyrir EM í hópfimleikum
Landsliðsþjálfar Íslands í hópfimleikum eru búnir að velja hópana sem keppa á Evrópumótinu í október en það fer fram hér á landi.

Íslendingar sópuðu að sér verðlaunum á BJJ-móti í Danmörku
Sjö íslenskir keppendur tóku þátt á Danish Open mótinu í brasilísku jiu-jitsu um nýliðna helgi. Árangurinn lét ekki á sér standa þar sem okkar fólk hirti átta medalíur.

Þarf ekkert að fara í kringum hlutina með strákunum
Elsa Sæný Valgeirsdóttir er búin að vinna þrennuna með karlalið HK í blaki á fyrstu tveimur árum sínum í þjálfun. HK-ingar unnu Stjörnuna í oddaleik um helgina, 3-0.

Helga María í miklu stuði á tveimur svigmótum
Ólympíufarinn Helga María Vilhjálmsdóttir náði mjög góðum árangri í tveimur keppnum í svigi sem fram fóru í Noregi í gær og í dag.

Ásgeir og Kristín unnu tvöfalt
Ólympíufarinn Ásgeir Sigurgeirsson varð tvöfaldur Íslandsmeistari í keppni með loftskammbyssu á Íslandsmeistaramótinu sem haldið var í Egilshöllinni í gær.

Fékk bann fyrir að nota tjöru
Michael Pineda, kastara hjá New York Yankees, var dæmdur í tíu leikja bann fyrir að reyna að bæta köstin sín á ólöglegan máta.

Miðasalan hófst með stæl | Myndband
Evrópumeistaramótið í hópfimleikum fer fram hér á landi í haust og hófst miðasala á mótið í síðustu viku.

Liðsstjóri Armstrongs í tíu ára bann
Þrír menn tengdir hjólreiðakappanum Lance Armstrong voru úrskurðaðir í löng bönn vegna þátttöku sinnar í samsærinu í kringum lyfjanotkun Armstrongs og keppnisliðs hans.

Já það er vont að fá hafnarbolta í andlitið - myndir
Bandaríski hafnarboltamaðurinn Delino DeShields yngri endaði á sjúkrahúsi á föstudaginn langa eftir að hafa fengið hafnarbolta í andlitið á meira en 144 kílómetra hraða í leik.

Jón Sigurður og Norma unnu silfur á NM í fimleikum
Ármenningurinn Jón Sigurður Gunnarsson og Gerplukonan Norma Dögg Róbertsdóttir unnu bæði silfurverðlaun á Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum í dag en mótið fer fram um páskana í Halmstad í Svíþjóð.

Stelpurnar unnu brons á NM - níu í úrslitum í dag
Íslenska kvennalandsliðið í áhaldafimleiknum tryggði sér í gær bronsverðlaun á Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum sem fer fram um páskahelgina í Halmstad í Svíþjóð.

Íslandsmótið í ólympískum lyftingum á laugardaginn
Mjög góð þátttaka verður á Íslandsmótinu í ólympískum lyftingum sem fram fer í húsakynnum Lyfingafélags Reykjavíkur á laugardaginn. Alls keppa 15 konur og 16 karlar í mótinu.

Mayweather launahæsti íþróttamaður heims | Ronaldo fær meira en Messi
Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather Jr. er langlaunahæsti íþróttamaður heims samkvæmt árlegri könnun tímaritsins ESPN The Magazine.

Sögulegt silfur íshokkílandsliðsins í Serbíu
Íslenska landsliðið í íshokkí karla tryggði sér 2. sætið í A-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins með sigri á Ísrael í lokaleik mótsins í dag en leikið var í Serbíu.

Besta fimleikafólk landsins í Halmstad í Svíþjóð
Íslenska landsliðið í áhaldafimleikum fór í morgun til Halmstad í Svíþjóð þar sem Ísland tekur þátt í Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum.

Afturelding 2-1 yfir í úrslitum eftir heimasigur
Afturelding tók forystuna í lokaúrslitum Íslandsmóts kvenna í blaki í kvöld með öruggum 3-0 sigri á Þrótti Neskaupsstað á heimavelli.

HK 1-0 yfir í úrslitarimmunni gegn Stjörnunni
Lokaúrslitin á Íslandsmóti karla í blaki hófust í gærkvöldi en þar komst HK í 1-0 forystu gegn Stjörnunni með sigri á heimavelli sínum í Fagralundi.

Ísland tapaði fyrsta leiknum gegn Eistlandi
Íslenska landsliðið í íshokkí tapaði, 4-1, fyrir Eistlandi í fyrsta leik sínum í A-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins.

Þróttur Nes vann fyrsta leikinn í úrslitarimmunni
Þróttur Neskaupsstað er kominn í 1-0 forystu gegn Aftureldingu í baráttunni um Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki eftir sigur í Mosfellsbænum í gærkvöldi.

Metaregn hjá fötluðum í sundi og frjálsum um helgina
Alls voru sett sex Íslandsmet á Íslandsmeistaramótum fatlaðra í sundi og í frjálsíþróttum um liðna helgi en Ólympíumótsfarinn Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir setti eitt þeirra.

Stressið kom Tinnu á óvart | Myndir
Tinna Helgadóttir vann allt sem hægt var að vinna á Íslandsmótinu í badminton.

Einar: Ég var aðeins of fljótur á mér
Skíðamót Íslands fór fram við frábærar aðstæður á Akureyri um helgina en flest besta skíðafólk landsins var þar komið saman.

Pétur glímukóngur Íslands í níunda sinn
Ármenningurinn Pétur Eyþórsson bar sigur úr býtum á Íslandsmótinu í glímu sem fór fram í 104. sinn í gær.