Byggðamál
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 15 ›
Það er mismunandi heitt Byggðastofnun hefur gefið út skýrslu um samanburð á orkukostnaði heimila fyrir síðasta ár. Byggðastofnun hefur áður gefið út slíkar skýrslur og hefur fengið Orkustofnun til að reikna út kostnað á ársgrundvelli, við raforkunotkun og húshitun á sambærilegum fasteignum víða um land. Skoðun 2.2.2023 08:01
Fengu loksins vistir í fyrsta sinn síðan 15. desember: „Forréttindi að fá að búa á svona stað“ Mæðgur sem búa á austasta býli landsins fengu loksins sendar til sín vistir á mánudag. Þær höfðu ekki fengið sendingu til sín síðan 15. desember síðastliðinn. Innlent 26.1.2023 10:55
Bein útsending: Hvernig þjónum við vegfarendum á veturna? Fyrirkomulag vetrarþjónustu og starfsemi vaktstöðvar Vegagerðarinnar verða til umfjöllunar á morgunfundi Vegagerðarinnar sem fram fer milli klukkan 9 og 10:15. Innlent 18.1.2023 08:31
Sakar Eflingu um að ala á klofningi milli verkafólks eftir búsetu Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags, sakar forystufólk Eflingar um að ala á klofningu á milli verkafólks á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Þetta sé gert með því að halda því fram að félagsmenn Eflingar þurfi hærri laun sökum þess að þeir starfi á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að svo virðist sem að Efling stefni í að verða eyland í íslenskri verkalýðsbaráttu. Innlent 9.1.2023 14:42
Veit um tvo fjölmiðla sem gætu skipt með sér hundrað milljón króna styrk Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að fjölmiðlar á landsbyggðinni sem framleiða sjónvarpsefni fái hundrað milljón króna styrk úr ríkissjóði á næsta ári. Formaður nefndarinnar getur bent á tvo slíka fjölmiðla, N4 á Akureyri og Víkurfréttir á Suðurnesjum. Framkvæmdastjóri N4 sendi nýverið erindi á nefndina þar sem óskað var eftir hundrað milljón króna styrk. Viðskipti innlent 14.12.2022 08:48
Hefja áætlunarflug til Vestmannaeyja á ný Flugfélagið Ernir hefur gert samkomulag við innviðaráðuneytið um flug til Vestmannaeyja þrisvar sinnum í viku, tvö flug á þriðjudögum og eitt á föstudögum. Ekki hefur verið áætlunarflug milli lands og Eyja frá því að það lagðist af haustið 2020. Innlent 12.12.2022 11:52
Vill bora öll jarðgöng sem þörf er á hérlendis á næstu þrjátíu árum Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vill að á næstu þrjátíu árum verði reynt að bora öll þau jarðgöng sem þörf er á hérlendis en fjármagna þau í allt að fimmtíu ár eftir það. Innlent 1.12.2022 22:20
Þrjátíu milljónir til verslana í dreifbýli Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur staðfest tillögur sérstakrar valnefndar sem fela í sér að þrjátíu milljónum króna verði úthlutað til verslunar í dreifbýli fyrir árin 2022 og 2023. Samningar vegna styrkjanna verða undirritaðir á næstu dögum. Viðskipti innlent 29.11.2022 11:14
Með bundnu slitlagi koma fleiri tækifæri Það hefur komið fyrir að íbúar Dalabyggðar séu spurðir af hverju við veljum að búa hérna á sama tíma og við kvörtum yfir ástandi vega, fjarskipta og flutningsöryggi rafmagns. Jú, hérna er minna kapphlaup, það þarf ekki að eiga allt eða hafa allt innan seilingar. Skoðun 15.11.2022 10:31
Segir malbikun sveitavega snúast um lífsgæði og endingu á bílum Átaks er þörf til að byggja upp sveitavegi landsins, að mati forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar. Hann telur athugandi að slaka á kröfum um umferðarhraða ef það mætti verða til þess að malbik kæmist á fleiri kílómetra. Innlent 12.11.2022 23:11
Dalabyggð – samfélag í sókn Dalabyggð er þátttakandi í samstarfsverkefni með Byggðarstofnun sem tengt er við brothættar byggðir. Í Dölum er vinnuheiti þessa verkefni DalaAuður. Skoðun 7.11.2022 21:30
Hríseyingar óttast fækkun ferða Sævars og skjóta á „starfsmenn Vegagerðarinnar í Garðabæ“ Íbúar í Hrísey hafa miklar áhyggjur af því að ferðum Hríseyjarferjunnar Sævars muni fækka um fimmtung á næstu árum. Telja þeir að slíkt myndi hafa verulega neikvæð áhrif á búsetuskilyrðin í brothættri byggð. Innlent 7.11.2022 14:08
Átta barna móðir ekur daglega um veg sem er að síga í sjóinn Samgöngur brenna á Fljótamönnum. Þeirra heitasta ósk er að fá jarðgöng milli Siglufjarðar og Fljóta. Innlent 6.11.2022 06:45
Að fá fyrir ferðina Íbúar á landsbyggðinni þurfa gjarnan að leita um langan veg eftir viðeigandi heilbrigðisþjónustu sem ekki er veitt í heimabyggð. Til að koma til móts við þennan stóra hóp hefur verið sett reglugerð um ferðakostnað sjúkratryggða og aðstandenda þeirra innanlands. Skoðun 3.11.2022 08:32
Gott fjarskiptasamband er forsenda búsetuöryggis Við fögnum þeim skrefum sem stigin eru í að bæta farsímasamband í sveitum landsins. Aukinn kraft þarf hins vegar að setja í þá sjálfsögðu innviðauppbyggingu. Það er órofa hluti búsetuöryggis að fá notið fjarskipta en einnig að taka þátt í nútíma samfélagi. Skoðun 31.10.2022 13:31
Fimm ný ríkisstörf á Akureyri Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hyggst flytja fimm opinber sérfræðistörf til Akureyrar. Nýtt teymi verður stofnað í bænum og 21 stöðugildi verða á skrifstofum stofnunarinnar á Akureyri. Ráðherra fagnar fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni. Innlent 25.10.2022 21:13
Fólk færir störf Fyrr í dag var haldinn fundur á starfsstöð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Akureyri þar sem tilkynnt var að fimm sérfræðistörf á sviði brunabótamats yrðu auglýst. Verða þau störf staðsett á Akureyri. Skoðun 25.10.2022 15:01
Þjóðbraut liggi um Hjaltadal á ný með göngum undir Tröllaskaga Margir Norðlendingar sjá fyrir sér að jarðgöng undir Tröllaskaga verði til þess að Hólar í Hjaltadal endurheimti fyrri sess sem miðstöð Norðurlands. Innlent 24.10.2022 21:42
Um leiðarval að Fjarðarheiðargöngum Á fundi sveitarstjórnar Múlaþings þann 14. september síðastliðinn var ákvörðun umhverfis- og framkvæmdaráðs um leiðarval vegna Fjarðarheiðarganga Héraðsmegin staðfest. Var þar með samþykkt að vegur að Fjarðarheiðargöngum liggi um þá leið sem Vegagerðin hefur kynnt sveitarfélaginu og kölluð er hin nýja suðurleið. Skoðun 23.10.2022 21:30
Mjög dapurlegt að fjölskylda sé í þessari stöðu Það er grafalvarlegt að mæður þurfi að flytja sig á milli landshluta til að fæða börn, þegar þjónustan ætti að vera til staðar í nærumhverfinu, að sögn formanns Læknafélags Íslands. Snjóhengja vofi yfir kerfinu þar sem kynslóð héraðslækna sem sættir sig við óboðlegar vinnuaðstæður sé á leið á eftirlaun. Innlent 23.10.2022 16:47
Læknar óskast til starfa - sól og góðum móttökum heitið! Austurland hefur gott orð á sér fyrir svo margra hluta sakir. Hér er hitastigið alltaf ásættanlegt á sumrin, skíðasnjórinn í tonnavís á veturna og falleg hauststól sem mýkir lendinguna fyrir okkur úr sumri yfir í vetur. Skoðun 21.10.2022 14:31
Persónulegar erjur og mismunandi áherslur áður komið í veg fyrir sameiningu Skógræktarstjóri segir mikilvægt að halda því til haga að fjölmargar tilraunir til að sameina Skógræktina og Landgræðsluna hafi klúðrast í gegn um tíðina. Hann er hóflega bjartsýnn á að það takist í þetta skiptið en ætlar að leggja sig allan fram. Innlent 19.10.2022 11:42
Innviðaráðherra tefur uppbyggingu stúdentagarða Þann 1. október síðastliðinn átti starfshópur sem innviðaráðherra skipaði til að fjalla sérstaklega um nýja byggð í Skerjafirði, að skila niðurstöðum sínum, en þær niðurstöður hafa ekki enn litið dagsins ljós. Á þessu svæði hefur Félagsstofnun stúdenta (FS) á áætlun að byggja allt að 107 íbúðir í Skerjafirði I, auk þess sem að skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um úthlutun lóða í Skerjafirði II. Skoðun 13.10.2022 18:00
Munu reyna allt til að koma í veg fyrir lokun starfstöðvar Hafró í Ólafsvík „Okkur líst engan veginn á þessi áform og erum í raun mjög ósátt að Hafró sé að gera þetta.“ Innlent 13.10.2022 14:00
Segir íbúa í Fjarðabyggð lítt spennta fyrir jarðgangagjöldum Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir boðað frumvarp innviðaráðherra um gjaldtöku í jarðgöngum landsins ekki hljóma vel í eyrum íbúa sveitarfélagsins. Þar er að finna tvö jarðgöng; Norðfjarðar- og Fáskrúðsfjarðargöng. Innlent 11.10.2022 08:51
Stefna á nýjan golfvöll í Múlaþingi Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs hefur óskað eftir því að byggður verði nýr golfvöllur á Eiðum. Félagið notast við völl við Ekkjufell sem að sögn stjórnarmanns klúbbsins veldur óánægju meðal golfiðkenda á svæðinu. Golf 8.10.2022 07:02
Íbúðum í byggingu fjölgar alls staðar nema í Reykjavík Fleiri íbúðir eru samanlagt í byggingu í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkurborgar en í borginni sjálfri. Þar fækkar íbúðum í byggingu milli ára á meðan hún eykst um tæp 90 prósent hjá hinum sveitarfélögunum samanlagt. Innlent 3.10.2022 21:00
„Við þurfum að gera miklu betur“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að flugfélagið þurfi einfaldlega að gera miklu betur í innanlandsfluginu en raunin hefur verið að undanförnu, til að ná upp trausti á innanlandsflugið. Innlent 20.9.2022 09:12
Arnar Már skipaður forstjóri Byggðastofnunar Innviðaráðherra skipaði Arnar Má Elíasson forstjóra Byggðastofnunar til fimm ára. Arnar Már hefur verið starfandi forstjóri stofnunarinnar frá því í febrúar og staðgengill forstjóra frá árinu 2016. Innlent 19.9.2022 15:48
Forstjóri Icelandair krafinn skýringa á fundi í dag Sveitarstjórnarfulltrúar á Norðurlandi eystra munu fjölmenna á fund með forstjóra Icelandair á Akureyri síðar í dag, þar sem hann verður krafinn skýringa á tíðum frestunum og aflýsingum á innanlandsflugi flugfélagsins. Innlent 19.9.2022 11:07
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent