Björgvin Guðmundsson

Uppsagnir ekki alltaf af hinu illa
Glitnir tilkynnti í nýliðinni viku að 255 starfsmönnum hefði verið sagt upp störfum hér heima og erlendis frá áramótum. Þar af var 88 sagt upp á Íslandi í apríl og maí. Er þetta liður í því að draga saman seglin vegna minni umsvifa.

Sterkir leiðtogar og breyskir menn
Það eru nokkur tíðindi í breskum stjórnmálum að íhaldsmaðurinn Boris Johnson verður næsti borgarstjóri Lundúnaborgar um leið og flokkurinn kemst til valda í tólf nýjum sveitarfélögum víðsvegar um England og Wales.

Ábyrgð pólitíkusa
Það er mikilvægt að forsætisráðherra sýni ákveðna yfirvegun þegar kemur að spurningum og svörum um íslenskt efnahagslíf. Það hefur hann sýnt undanfarnar vikur.

Árangur er ekki sjálfgefinn
Það verður seint hægt að saka Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, fyrir áhugaleysi á löggæslustörfum í landinu þau ár sem hann hefur setið í ráðuneytinu.

Pattstaða
Vandinn sem Seðlabankinn stendur frammi fyrir endurspeglaðist í ræðum Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns Kaupþings, og Ingimundar Friðrikssonar seðlabankastjóra í nýliðinni viku.

Breiðavíkurbætur
Þrátt fyrir að fáir hafi dregið í efa frásögn vistmanna á Breiðavíkurheimilinu um ofbeldi og misnotkun sem þar viðgekkst upp úr miðri síðustu öld, var mikilvægt að rannsaka málið opinberlega.



Auðmenn og almenningur
Fólk mun ekki græða mikið á hlutabréfakaupum í ár. Hækkun á verði hlutabréfa stærstu fyrirtækja í Kauphöll Íslands, sem mynda úrvalsvísitöluna, hefur að mestu leyti gengið til baka.

Trúaruppeldi
Umburðarlyndi og siðgæðisvitund verður ekki til í tómarúmi. Við þurfum að ræða gildi okkar og fræðast um sjónarmið annarra til að þroska með okkur lífsviðhorf sem við byggjum ákvarðanir okkar á.

Íslandsálagið
Það er erfitt fyrir almenning að átta sig á hvað yfirstandandi hræringar á fjármálamörkuðum þýða. Í raun er erfitt fyrir flesta að spá fyrir um afleiðingar óróleikans sem nú ríkir bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.

Tryggja verður frelsi kvenna
Það sem af er þessu ári hafa níu konur leitað til neyðarmóttöku vegna nauðgana eftir að á þær var ráðist utandyra.

Gerum gott heilbrigðiskerfi betra
Núverandi kerfi heilbrigðismála á Íslandi hefur alltof lengi staðið í stað. Það hefur vantað pólitískt þor til að gera nauðsynlegar breytingar. Á meðan hafa útgjöld til þessa málaflokks vaxið gríðarlega mikið og sogar til sín árlega um fjórðung allra útgjalda ríkisins.

Sátt um evruna
Útvegsmenn segjast hafa tapað milljörðum á háu gengi krónunnar. Kaupþingsfólk ætlar að færa bókhald sitt og skrá hlutabréf í evrum. Starfsfólk Marel mun eiga kost á því fljótlega að fá hluta af launum greidd í evrum. Allar þessar fréttir vekja upp spurningar um stöðu íslensku krónunnar.

Stjórnarkonur
Í Fréttablaðinu í gær var frétt um kynjahlutföll í stjórnum og ráðum á vegum Alþýðusambands Íslands. Þar kom fram að samkvæmt nýrri samantekt ASÍ væru karlar rúm 73 prósent stjórnarmanna í lífeyrissjóðum en konur tæp 27 prósent. Af sextíu stjórnarmönnum lífeyrissjóða væru níu konur fulltrúar stéttarfélaga og sjö konur tilnefndar af Samtökum atvinnulífsins.

Frelsisskjöldurinn
Aukin umfjöllun um útrás íslenskra fyrirtækja til Kína er ekki séríslenskt fyrirbæri. Í mörgum erlendum viðskiptablöðum má greina mikla fjölgun blaðagreina um Kína. Þær greinar eru ekki um hið kommúníska stjórnarfar og mannréttindabrot stjórnvalda. Sjónir manna beinast nú að mýmörgum viðskiptatækifærum, risasamningum og uppbyggingu þar í landi.

Veiðigjaldið burt
Það sætir furðu að ríkisstjórnin skuli ekki hafa ákveðið strax í sumar að fella tímabundið niður veiðigjald á þorskveiðum eins og tilkynnt var í gær. Þá hefðu útgerðir landsins getað tekið það inn í áætlanir sínar þegar brugðist var við boðuðum aflasamdrætti.

Samvinna lykill að árangri
Íslensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á eflingu lögreglu, Landhelgisgæslu og tollgæslu undanfarið ár. Í því sambandi er mikilvægt að almenningur átti sig á mikilvægi þessara embætta og hlutverki. Því er öll upplýsingagjöf um störf þessara stofnana nauðsynleg.

Mikilvægir sjálfboðaliðar
Efling Landhelgisgæslunnar og samstarf þessara aðila tryggir áframhaldandi uppbyggingu björgunarstarfs á Íslandi. Það þarf ekki veðurofsa, skipsskaða eða stórslys til að Íslendingar átti sig á mikilvægi björgunarsveita. Þær hafa löngum sannað gildi sitt.

Hnökrar á sölu ríkisfyrirtækja
Það hefði mátt standa betur að sölu á hlut ríkisins í Íslenskum aðalverktökum árið 2003 samkvæmt fréttaflutningi Fréttablaðsins undanfarna daga.

Að skila auðu
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa í mörgum kosningum náð að toga kjósendur á miðjunni til fylgis við sig. Breytist það er hætta á að hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins skili auðu í næstu alþingiskosningum. Það er ekki sjálfgefið að kjósendur styðji sama stjórnmálaflokkinn aftur og aftur.

Þörf á hógværð
Séreignarétturinn væri forsenda verulegs hagvaxtar, sem byggðist meðal annars á uppsöfnun fjármagns og sérhæfingu. Reynslan sýndi að land í ríkiseign væri mjög illa nýtt.

Aldraðir í forgang
Það skiptir miklu máli hvernig skatttekjum ríkisins er ráðstafað. Í því ljósi er nauðsynlegt fyrir stjórnvöld að taka ábendingar Dagbjartar Þyrí Þorvarðdóttur, hjúkrunarfræðings og fyrrverandi hjúkrunarforstjóra Hrafnistuheimilanna, í forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær alvarlega.

Óþarfi að hjálpa fullfrísku fólki
Það er einmitt hlutverk ríkisins, að hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi. Ríkisvaldið á ekki að þurfa að aðstoða fullfrískt fólk. Það á ekki að borga hátekjufólki fyrir að vera heima hjá börnum sínum, né niðurgreiða leikhúsmiða fyrir góðborgara þessa lands, eða reisa hestamönnum hús til að sinna störfum sínum og áhugamálum.

Staða Björns
Skilaboð Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, á fundi í Valhöll á laugardaginn voru skýr. Forysta flokksins væri samstíga og aðförin að Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra í tengslum við hlerunarmálið svokallaða væri ógeðfelld. Það læddist að honum sá grunur að óprúttnir aðilar stæðu þarna að baki vegna komandi prófkjörs.

Opinber óróleiki
Efnahagsástandið er nefnilega enn viðkvæmt. Ásgeir Jónsson, hagfræðingur greiningardeildar KB banka, sagði á fundi um efnahagsmál í vikunni að raunveruleg hætta væri á að íslenskt efnahagslíf væri á leið inn í nýja verðbólgu- og óstöðugleikatíma líkt og þekktist milli áranna 1970 og 1990.

Skref í rétta átt
Geir Haarde forsætisráðherra hefur látið í ljós áhyggjur yfir því að skattalækkun sem þessi skili sér ekki að fullu til neytenda. Þær áhyggjur eru réttmætar. Í fréttum KB banka í gær sagði að skattbyrðin, sem áður rann í ríkissjóð, hlyti að skiptast að einhverju marki á milli kaupenda og seljenda.

Skattar og skuldir
Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur tilkynnti í vor að fengnir yrðu óháðir aðilar til að gera úttekt á fjárhagsstöðu borgarinnar í upphafi nýs kjörtímabils.

Að stjórna í sátt við samviskuna
Á meðan formenn stjórnarandstöðunnar boða aukið samstarf á Alþingi situr sveitarstjórnarfólk Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs undir harðri gagnrýni borgarfulltrúa Samfylkingarinnar.

Herlaust Ísland
Það hafa líklega fáir misst úr svefni í nótt þótt bandarískur her hafi ekki lengur fasta viðveru hér á landi. Ísland er orðið herlaust land. Varnarliðið fór af landi brott í gær.