Kvöldfréttir

Fréttamynd

Krafa Ís­lands um undan­þágur vekur spurningar í ESB

Í kvöldfréttum okkar förum við yfir helstu tíðindi af leiðtogafundi NATO í Ankara, sem lauk í gær með sameiginlegri yfirlýsingu um samstöðu bandalagsins, sameiginlegar varnir og áframhaldandi stuðning við Úkraínu. Fundurinn litaðist þó einnig af ummælum Donalds Trump um Grænland og stöðu norðurslóða. Albert Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur verður hjá okkur og fer yfir stöðu mála.

Innlent
Fréttamynd

Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöld­fréttum

Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag þar sem Bandaríkjaforseti fór mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og að vel hafi farið á milli hennar og Donalds Trump. Tómas Arnar fjallar um málið í kvöldfréttum.

Innlent
Fréttamynd

Girnist enn Græn­land, vændiskaup og á­fengis­aug­lýsingar á­hrifa­valda

Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi Evrópuþjóðir harðlega á blaðamannafundi með Tyrklandsforseta í Ankara í dag á fyrri degi leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins. Það hafi rekið fleyg í samstarfið þegar Danmörk vildi ekki gefa Bandaríkjunum yfirráð yfir Grænlandi og aðrar Evrópuþjóðir tóku sér stöðu með Danmörku og Grænlandi.

Innlent
Fréttamynd

Grunur um upp­ljóstrun, hætta á að­gerða­leysi og eftir­för

Rod Coronado sem stýrir leiðangri skips Paul Watson samtakanna útilokar ekki að halda inn í íslenska landhelgi. Hann hafi fellt tár þegar hann sá starfsmenn Hvals leika sér með hvalshræ á dögunum. Forstjóri Hvals hf. sakar MAST um að hafa ljóstrað upp um staðsetningu hvalveiðiskipa og sett áhöfn þeirra í hættu. Við ræðum við forstjóra stofnunarinnar í beinni í kvöldfréttum.

Innlent
Fréttamynd

Eftir­spurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri

Lögregla hefur lagt hald á um tvö hundruð kíló af kókaíni það sem af er ári, á aðeins sex mánuðum. Það er næstum tvöfalt meira en allt síðasta ár. Í kvöldfréttum í gær sagði lögregla að samfélagið þyrfti að líta í eigin barm og ræða eftirspurnina, ekki aðeins innflutninginn. Í kvöld verður rætt við Valgerði Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækningasviðs SÁÁ, um afleiðingar kókaínneyslu.

Innlent
Fréttamynd

Fjár­málaráðherra telur tæpt að for­senduákvæði kjara­samninga haldi

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi í haust en verðbólga hefur aukist þvert á spár. Við ræðum við hann í kvöldfréttum en hann segir það vonbrigði hversu mikið flugfargjöld hafa hækkað og segir að grannt sé fylgst með því að lækkun olíuverðs á heimsmarkaði skili sér til neytenda. Þá mætir Halla Gunnarsdóttir formaður VR til okkar til að fara yfir þetta mál.

Innlent
Fréttamynd

Fær ekki lög­bundna þjónustu og ó­vissa um fram­tíð lista­verks

Maður sem hlaut mænuskaða eftir slys á mótórhjóli fyrir þremur árum síðan fær ekki þá NPA-þjónustu sem hann á rétt á þótt að hún hafi verið samþykkt fyrir átta mánuðum síðan. Hann hefur til að mynda ekki getað hitt dóttur sína í tvö ár og legið ítrekað í eigin þvagi klukkutímum saman vegna skorts á aðstoð.

Innlent
Fréttamynd

Pólitískur ólgusjór í Bret­landi, hval­veiðar og ban­væn hita­bylgja

Fátt virðist koma í veg fyrir að Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri Manchester, verði næsti forsætisráðherra Bretlands, eftir afsögn Keirs Starmer.  Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðiprófessor við Bifröst, mun aðstoða okkur við að gera pólitísku ólgunni í Bretlandi góð skil í beinni útsendingu.

Innlent
Fréttamynd

Eld­fim staða, sorg­legt á­huga­leysi og ráð­gáta

Eldfim staða er uppi í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti boðar harðar árásir á Íran í nótt og hernám eyju á Persalóa. Ráðamenn segja stigmögnun átakanna verulegt áhyggjuefni og Hormússundi hefur verið lokað, en það getur haft gríðarleg áhrif á efnahagslífið um allan heim.

Innlent
Fréttamynd

Konukot og börn í brottfararstöð í brenni­depli í kvöld­fréttum

Börn í brottfararstöð verða í brennidepli í kvöldfréttum Sýnar. Umræða um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð hefur ekki verið í átakafarvegi í þinginu en utan þings hafa ýmsir gagnrýnt harðlega að börn verði vistuð í stöðinni. Í kvöldfréttum mætast þau Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, og Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sem munu eiga opið og hreinskiptið samtal um málið.

Innlent
Fréttamynd

Fólsku­leg á­rás og ó­vin­sæl sundtíska

Fjórtán ára stúlka hlaut talsverða áverka eftir að eldri stúlka lét spörkin dynja á henni í Hafnarfirði síðustu helgi. Í kvöldfréttum verður rætt við aðstoðaryfirlögregluþjón um málið en hann segir árásina hafa verið fólskulega.

Innlent
Fréttamynd

Rýnt í flókna stöðu Icelandair

Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar annað kvöld. Fundurinn á að snúast um vinnufyrirkomulag flugmanna; vaktir, frídaga og svigrúm Icelandair til að skipuleggja flug. Fleiri mál hanga þó yfir viðræðunum, meðal annars fyrirhuguð kaup Icelandair á hlut í PLAY Europe á Möltu og þungur rekstur. Við rýnum í deiluna í kvöldfréttum auk þess sem ritstjóri Innherja mætir í myndver og ræðir stöðu félagsins.

Innlent
Fréttamynd

Skortur á að­stoð, mót­mæli og högg­staður á ríkis­stjórn

Lögmaður manns sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði um helgina kallar eftir því rannsókn verði hafin á eftirliti og geðheilbrigðisþjónustu innan fangelsa. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum og ræðum við framkvæmdastjóra Geðhjálpar sem segir að fangar fái ekki aðstoð við hæfi.

Innlent
Fréttamynd

Kjara­deilan vekur upp spurningar um fram­tíð Icelandair

Kjaradeila Icelandair og flugmanna er orðin að stærri umræðu um framtíð félagsins og traust eigenda á rekstrinum. Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni.

Innlent