Bílar
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 40 ›
Allt að 533 prósenta hækkun á vanrækslugjaldi Þann 1. maí hækkaði grunnfjárhæð vanrækslugjalds vegna óskoðaðra ökutækja úr 15.000 í 20.000 krónur. Þá fer gjaldið í 40.000 krónur vegna fólksflutningabíla fyrir níu farþega eða fleiri, vöruflutningabíla eða aftanívagna yfir 3,5 tonn. Innlent 26.8.2021 10:27
Afhjúpuðu nýjan rafmagnsbíl á Háskólatorgi Team Spark, kappaksturs- og hönnunarlið Háskóla Íslands, afhjúpaði í dag nýjan rafknúinn kappakstursbíl sem liðið hefur unnið að undanfarin tvö ár í krefjandi aðstæðum kórónuveirufaraldursins. Innlent 16.8.2021 19:50
Fjórum sinnum dýrara fyrir miðbæjarbúa að leggja bíl við heimili sitt Tæplega fjórum sinnum dýrara verður fyrir íbúa miðbæjarins að leggja bíl í grennd við heimili sín en áður, eftir að gjöld hækka fyrir íbúakort. Íbúar eru ekki á eitt sáttir við hækkunina. Innlent 13.8.2021 23:19
Áfram slökkt á hleðslustöðvunum: Kærunefnd útboðsmála hafnar endurupptöku Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað því að fresta áhrifum úrskurðar síns um ólögmæti útboðs Reykjavíkurborgar á götuhleðslum fyrir rafbíla. Þá hefur nefndin hafnað því að taka málið upp að nýju. Innlent 11.8.2021 10:52
Haukur bílasali sem ferðast um á dráttarvél „Við verðum að viðhalda sveitastemmingunni“ segir bílasali á Selfossi og aðdáandi dráttarvéla en hann fer meira og minna allar sínar ferðir á Massey Ferguson dráttarvél. Bílasalinn segir ökumenn mjög tillitssama þegar hann er á dráttarvélinni. Innlent 8.8.2021 20:06
Biden ætlar að herða reglur um útblástur bíla Ríkisstjórn Joes Biden Bandaríkjaforseta ætlar að endurvekja reglur um útblástur bifreiða sem Donald Trump, forveri hans í embætti, veikti í stjórnartíð sinni. Reglurnar verða hertar enn frekar í framtíðinni til að ýta undir orkuskipti í vegasamgögnum. Erlent 5.8.2021 23:02
Segjast vera með tækjabúnað til að taka til eftir sig Umhverfisstofnun mun að svo stöddu ekki aðhafast vegna utanvegaaksturs við Hjörleifshöfða þar sem breski bílaþátturinn ofurvinsæli Top Gear er sagður vera við tökur. Innlent 27.7.2021 15:34
Stórlaxinn fyrrverandi lýsir dramatískum flótta frá Japan Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Nissan, hefur nú stigið fram og lýst því í smáatriðum hvernig honum tókst að flýja undan yfirvöldum í Japan. Hann faldi sig meðal annars í hljóðfærakassa til að komast undan eftirliti á flugvelli þar sem einkaþota beið hans. Viðskipti erlent 14.7.2021 10:52
Ljónheppinn að fá bílaleigubíl Örtröð hefur verið á Keflavíkurflugvelli undanfarna daga, bæði við komuna til landsins og einnig í röðinni á leiðinni út. Í dag fóru tæplega 100 flugvélar um völlinn. Þrátt fyrir að bið geti verið nokkur við komuna til landsins báru ferðamenn sem fréttastofa ræddi við í dag öllum aðbúnaði á flugvellinum vel söguna. Innlent 11.7.2021 21:01
Öryggi og notkun rafbíla Fjölbreyttir fararmátar standa nú fólki til boða. Horft er til vistvænni og hagkvæmari fararmáta og rafbílar hafa rutt sér til rúms hér á landi. Þeir henta íslenskum aðstæðum vel og eru þjóðhagslega hagkvæmir þar sem allt rafmagn á Íslandi er framleitt innanlands. Skoðun 7.7.2021 08:01
„Menn eru ekki á eitt sáttir um þessa niðurstöðu“ Straumur var tekinn af 156 hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík í morgun og býst skrifstofustjóri borgarinnar við því að slökkt verði á stöðvunum út vikuna. Formaður Rafbílasambands Íslands segir þetta hafa töluverð áhrif á rafbílaeigendur og harmar að úrskurðurinn hafi valdið því að slökkva þurfti á stöðvunum. Innlent 28.6.2021 12:16
Borgarstjóri segir bagalegt að slökkva þurfi á hleðslustöðvunum Straumur verður tekinn af 156 hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík á morgun. Óvissa ríkir um hvenær hægt verður að taka stöðvarnar, sem telja meirihluta stöðva sem borgin rekur, aftur í notkun. Borgarstjóri segir málið bagalegt. Viðskipti innlent 27.6.2021 20:30
Ísorka minnti kærunefnd á sektarheimildir vegna hleðslustöðva Lögmaður Ísorku sendi kærunefnd útboðsmála bréf með athugasemdum við að rafmagn væri áfram veitt í hleðslustöðvum Orku náttúrunnar í Reykjavík þrátt fyrir að nefndin hefði úrskurðað samning um þær óvirkan. Framkvæmdastjóri Ísorku fullyrti í gær að engin samskipti hefðu átt sér stað við kærunefndina. Viðskipti innlent 26.6.2021 18:23
Ísorka hafnar ábyrgð á að slökkt verði á hleðlustöðvum Framkvæmdastjóri Ísorku hafnar því að kvörtun fyrirtækisins sé orsök þess að Orka náttúrunnar ætlar að taka straum af á annað hundrað hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík. Hann segir Reykjavíkurborg rót vandans. Viðskipti innlent 25.6.2021 18:01
Slökkva á 156 götuhleðslum í borginni og kenna Ísorku um Orka náttúrunnar hyggst taka strauminn af þeim 156 götuhleðslum sem fyrirtækið hefur sett upp um víða borg. Félagið sér sig knúið til þess í kjölfar kvörtunar Ísorku yfir að hleðslurnar væru opnar hverjum sem er og það gjaldfrjálst. Slökkt verður á stöðvunum 28. júní. Neytendur 25.6.2021 14:32
Vitorðsmenn í flótta Ghosn játa sig seka Tveir Bandaríkjamenn játuðu sig seka um að hafa hjálpað Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóra bílaframleiðandans Nissan, að flýja Japan árið 2019. Mennirnir, sem eru feðgar, voru framseldir frá Bandaríkjunum í vor og gætu átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. Erlent 14.6.2021 10:00
Ósátt við viðbrögð borgarinnar eftir ítrekaðar kvartanir og milljónarskemmdarverk Íbúar í miðbæ Reykjavíkur sem hafa ítrekað kvartað undan lélegum aðbúnaði í bílastæðahúsi og kenna aðgerðaleysi borgarinnar um milljónarskemmdarverk sem var unnið á bíl þeirra. Innlent 11.6.2021 19:35
Innkalla á annað þúsund Mitsubishi-bíla af árgerð 1996 til 2000 Hekla hyggst innkalla 1.394 Mitsubishi-bíla af árgerð 1996 til 2000 vegna möguleika á að loftpúðar virki ekki sem skyldi. Neytendur 11.6.2021 08:14
Fyrrverandi forstjóri Volkswagen ákærður fyrir að bera ljúgvitni Martin Winterkorn, fyrrverandi forstjóri þýska bílarisans Volkswagen, hefur verið ákærður fyrir að bera ljúgvitni þegar hann mætti fyrir nefnd þýska þingsins í tengslum við útblásturshneyksli fyrirtækisins sem komst í hámæli árið 2015. Viðskipti erlent 9.6.2021 11:41
Sala nýrra fólksbíla jókst um 159 prósent og bílaleigur tóku við sér Sala nýrra fólksbíla jókst um tæp 159% hér á landi í maí samanborið við sama tíma í fyrra. Nýskráningum fjölgaði um 24,9% milli ára á fyrstu fimm mánuðum ársins og fara úr 3.369 í 4.208. Viðskipti innlent 1.6.2021 15:30
Dusterinn er kominn aftur á kreik Þeir sem fara akandi um stræti Reykjavíkur nú um mundir fara fæstir varhluta af kunnuglegri þróun sem orðið hefur í borginni á allra síðustu vikum. Dacia Duster, uppáhaldsbílaleigubíll ferðamannsins, er aftur kominn á kreik. Innlent 1.6.2021 07:01
Getur ekki tekið á móti fleiri gömlum bílum á Ystafelli Eigandi Samgönguminjasafnsins á Ystafelli í Köldukinn skammt frá Húsavík hefur ekki undan að neita fólki um gamla bíla, sem það vill gefa safninu. Á safninu í dag eru um eitt hundrað bílar, meðal annars forsetabíllinn, sem var notaður í forsetatíð frú Vigdísar Finnbogadóttur. Innlent 29.5.2021 20:04
Misskilningur ríki um nýja lögreglubílinn Ný Dodge RAM 3500 bifreið bættist í bílaflota lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrr í mánuðinum og er talið að heildarkostnaður sé í kringum 15 milljónir króna. Yfirlögregluþjónn segir brýna þörf hafa verið fyrir ökutæki sem væri með mikla dráttargetu og gæti auðveldlega flutt fjóra lögreglumenn með mikinn búnað. Innlent 26.5.2021 15:38
Hasar á bílavörumarkaðnum: Lénadeilur Poulsen og Orku ehf ná áratug aftur í tímann Deilur Poulsen á Íslandi og Orku ehf um lén á Internetinu eru á engan hátt nýjar af nálinni og hafa þær ítrekað komið til kasta Neytendastofu. Neytendur 24.5.2021 07:01
Meinað að nota lénið polsen.is eftir kvörtun frá Poulsen Neytendastofa hefur meinað Orku ehf að nota lénið polsen.is í tengslum við starfsemi félagsins og gert fyrirtækinu að afskrá lénið. Ákvörðunin er tekin í kjölfar kvörtunar frá samkeppnisaðilanum Poulsen sem á og rekur lénið poulsen.is. Neytendur 17.5.2021 14:27
Fleiri velja vistvæn ökutæki Flest heimili munar um 110.000 kr. á ári. Það er ýmislegt hægt að gera fyrir þá upphæð. Það er um það bil sú upphæð sem sparast í eldsneytiskostnaði við að færa sig úr dísel- eða bensínbifreið yfir í rafmagnsbifreið. Skoðun 7.5.2021 10:00
Margt annað að gera en að nýta lagalega smugu til að keyra á göngugötum Heimilt hefur verið samkvæmt lögum að keyra niður Laugaveginn á milli Frakkarstígs og Klapparstígs frá upphafi mánaðarins, eftir að tímabundin heimild til göngugötufyrirkomulags á umræddum kafla féll úr gildi. Þá heimild á að endurnýja á morgun. Innlent 3.5.2021 19:05
Allt að 159 prósenta munur á hæsta og lægsta verði Yfir 100% munur er á hæsta og lægsta verði á dekkjaskiptum, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 48 fyrirtækjum víðs vegar um landið. Þar sem hann er hlutfallega mestur munar um 159% á verði eða 9.510 krónum. Neytendur 23.4.2021 13:47
Enginn undir stýri í Teslu sem hafnaði á tré með þeim afleiðingum að tveir létust Tvær bandarískar stofnanir fara með rannsókn vegna banaslyss sem varð í Texas um helgina þar sem grunur leikur á að enginn hafi verið undir stýri í sjálfkeyrandi Teslu sem hafnaði utan vegar með þeim afleiðingum að tveir létust. Erlent 19.4.2021 22:13
Hámarkshraði verði hvergi yfir 50 km/klst á borgargötum Dregið verður úr umferðarhraða á götum í eigu Reykjavíkurborgar og verður hámarkshraði hvergi yfir 50 km/klst samkvæmt tillögu að hámarkshraðaáætlun sem var samþykkt í skipulags- og samgönguráði borgarinnar í dag. Stefnt er að því að enginn slasist alvarlega eða látist í umferðarslysum í borginni. Innlent 14.4.2021 15:10