Körfubolti

Fréttamynd

Artest og félagar sluppu vel

Leikmennirnir þrír sem létu hvað mest til sín taka í slagsmálunum í Detroit í nóvember í fyrra, í leik Detroit og Indiana, sluppu vel þegar mál þeirra var gert upp fyrir rétti á föstudag. Þeir Ron Artest, Jermaine O´Neal og Stephen Jackson, fá eins árs skilorð og þurfa að vinna 60 klukkustundir í samfélagsþjónustu fyrir ólætin.

Sport
Fréttamynd

Frakkar hrepptu bronsið á EM

Franska landsliðið í körfuknattleik tryggði sér í dag bronsverðlaunin á Evrópumeistaramóti landsliða í Serbíu, þegar það burstaði Spánverja í dag, 98-68. Það var Tony Parker, leikmaður San Antonio Spurs, sem var stigahæstur allra á vellinum með 25 stig.

Sport
Fréttamynd

Grikkir Evrópumeistarar

Grikkir urðu nú rétt áðan Evrópumeistarar í körfuknattleik þegar þeir lögðu Þjóðverja örugglega í úrslitaleik, 78-62. Theodoros Papaloukas skoraði 22 stig og átti 6 stoðsendingar fyrir gríska liðið, en Dirk Nowitzki skoraði 29 stig og hirti 9 fráköst fyrir Þjóðverja.

Sport
Fréttamynd

Stoudemire að semja við Suns

Amare Stoudemire, einn efnilegasti leikmaður NBA deildarinnar í körfuknattleik, er sagður vera búinn að samþykkja að skrifa undir nýjan samning við lið sitt Phoenix Suns um að leika með því til ársins 2011 og er samningurinn talinn vera upp á um 72,6 milljónir dollara.

Sport
Fréttamynd

Spánverjar og Þjóðverjar áfram

Spánverjar og Þjóðverjar tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitum á Evrópumeistaramótinu í körfubolta í Serbíu og Svartfjallalandi. Spánverjar báru sigurorð af Króötum, 101-85, í framlengdum leik í átta liða úrslitum.

Sport
Fréttamynd

Grikkir í úrslit á EM í körfu

Grikkir unnu dramatískan sigur á Frökkum í undanúrslitum Evrópukeppninnar í körfuknattleik í Belgrad nú í kvöld. Það var Dimitrios Diamantids sem skoraði sigurkörfu Grikkja í blálokin með þriggja stiga skoti og tryggði sínum mönnum sigur 66-65 og farseðilinn í úrslitin.

Sport
Fréttamynd

Þjóðverjar í undanúrslit

Þjóðverjar tryggðu sér nú rétt í þessu farseðilinn í undanúrslit Evrópumótsins í körfuknattleik, þegar þeir lögðu Slóvena nokkuð örugglega, 76-62. Dirk Nowitzki var atkvæðamestur í liði Þjóðverja með 22 stig og 9 fráköst og þeir Roller og Demirel skoruðu 15 hvor.

Sport
Fréttamynd

Spánverjar lögðu Króata

Spánverjar urðu nú áðan síðasta liðið til að tryggja sig í undanúrslitin í Evrópukeppni landsliða í körfuknattleik, þegar þeir báru sigurorð af Króötum í æsispennandi framlengdum leik, 101-85. Spænska liðið náði á ævintýralegan hátt að tryggja sér framlengingu á lokasekúndum venjulegs leiktíma og tóku svo öll völd á vellinum í framlengingunni.

Sport
Fréttamynd

EM í körfubolta

Nú er hálfleikur í viðureign Slóvena og Þjóðverja í átta liða úrslitum á Evrópumeistaramótinu í körfuknattleik sem fram fer í Serbíu. Staðan er jöfn 34-34. Dirk Nowitzki er stigahæstur í liði Þjóðverja með 12 stig og 6 fráköst, en þeir Lakovic og Brezek hafa skorað 11 stig hvor fyrir Slóvena.

Sport
Fréttamynd

Logi farinn til Bayreuth

Logi Gunnarsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, hefur skrifað undir eins árs samning við Bayreuth frá Þýskalandi sem leikur í annari deildinni þar í landi en Logi lék á síðustu leiktíð með Giessen í efstu deild.

Sport
Fréttamynd

New Orleans spilar í Oklahoma

NBA liði New Orleans Hornets hefur verið gert kleift að spila heimaleiki sína í deildarkeppninni í vetur í Oklahoma City, eftir að ekki þótti reynandi að spila leiki liðsins í New Orleans vegna náttúruhamfaranna á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Frábær endasprettur KRinga

KRingar sigruðu Fjölni með 96 stigum gegn 69 í Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik í Grafarvogi í kvöld. Endasprettur KRinga í leiknum var hreint út sagt ótrúlegur, því Fjölnir hafði yfir í hálfleik, 39-38.

Sport
Fréttamynd

Payton á leið til Miami Heat

Leikstjórnandinn Gary Payton, sem lék með Boston Celtics í fyrra, er á leið til Shaquille O´Neal og félaga í Miami Heat ef marka má nýjustu fréttir frá Bandaríkjunum. Samnnigur hans mun verða til eins árs og ekki er búist við að samningurinn hljóði upp á meira en lágmarkslaun, enda eru peningar ekki það sem Payton er á höttunum eftir.

Sport
Fréttamynd

Hanna gengin í raðir ÍS

Hanna Björg Kjartansdóttir hefur ákveðið að skipta yfir í ÍS og leika með liðinu í 1. deild kvenna. Hanna spilar væntanlega sinn fyrsta deildarleik gegn sínu uppeldisfélagi, Haukum.

Sport
Fréttamynd

Grikkir í undanúrslitin

Grikkir unnu góðan sigur á Rússum 66-61 í átta liða úrslitum Evrópukeppninnar í körfuknattleik sem fram fer í Serbíu um þessar mundir. Síðar í kvöld mætast Litháen og Frakkland í síðari leik dagsins, en átta liða úrslitin klárast á morgun.

Sport
Fréttamynd

Frakkar í undanúrslitin á EM

Frakkar eru heldur betur í stuði í Evrópukeppni landsliða í körfuknattleik, sem fram fer í Serbíu um þessar mundir. Eftir að hafa slegið heimamenn nokkuð óvænt út úr keppninni í fyrrakvöld, náðu þeir að leggja núverandi meistara Litháen að velli í kvöld, 63-47 og tryggja sér sæti í undanúrslitum mótsins.

Sport
Fréttamynd

Fjölnir yfir gegn KR í hálfleik

Fjölnir hefur yfir 39-38 í hálfleik gegn KR á Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik, en leikurinn fer fram í Grafarvogi. Staðan eftir fyrsta fjórðung var 22-17 fyrir KR. Jason Clark er stigahæsti maður vallarins með 13 stig, en Brynjar Björnsson hefur skorað 11 stig.

Sport
Fréttamynd

Serbar slógust eftir tapið

Tveir leikir verða á dagskrá í átta liða úrslitum Evrópukeppni landsliða í körfubolta í kvöld, en keppnin fer fram í Serbíu. Rússar taka á móti Grikkjum og Litháar mæta Frökkum, sem öllum að óvörum sigruðu heimamenn í 16 liða úrslitum. Tapið fékk það mikið á Serbana að allt fór í háaloft í búningsklefanum eftir leikinn.

Sport
Fréttamynd

Sverrir Þór snýr aftur

Sverrir Þór Sverrisson, einn besti körfuboltamaður landsins, hefur ákveðið að leika áfram með Íslandsmeisturum Keflavíkur samhliða því að þjálfa kvennalið félagsins, líkt og hann gerði sl. vetur. Sverrir Þór hafði í hyggju að leggja körfuboltaskóna á hilluna en snerist hugur.

Sport
Fréttamynd

Heimsmeistararnir úr leik

Óvænt úrslit urðu á Evrópumótinu í körfuknattleik karla í Serbíu í gærkvöldi, þegar Frakkar sigruðu heimamenn, sem eru núverandi heimsmeistarar, með 74 stigum gegn 71. Frakkar komust þar með í átta liða úrsli en Serbar eru úr leik og misstu um leið af sæti á heimsmeistaramótinu á næsta ári.

Sport
Fréttamynd

Risi til Skallagríms

Úrvalsdeildarlið Skallagríms úr Borganesi hefur fengið til liðs við sig risann Chris Manker frá San Diego State-háskólanum fyrir átökin í körfuboltanum í vetur. Manker, 213 sentimetra hár, er 24 ára gamall og leikur í stöðu miðherja.

Sport
Fréttamynd

Bryant og Jackson hefja störf

Lítið hefur heyrst í Kobe Bryant síðan Phil Jackson tók við liði Los Angeles Lakers í vor, en í gær tjáði hann sig í fyrsta sinn opinberlega um ráðningu Jackson og framtíðaráform liðsins. Bryant var frekar þurr á manninn í viðtalinu og sagði samband sitt við Jackson á faglegum nótum.

Sport
Fréttamynd

Sprewell í viðræðum við Lakers

Bakvörðurinn Latrell Sprewell, sem leikið hefur með Minnesota Timberwolves undanfarin ár er óðum að reyna að finna sér nýtt lið til að spila með í NBA í vetur, en talið er víst að hann fari frá Minnesota fljótlega.

Sport
Fréttamynd

Góð byrjun hjá Hlyni og Sigurði

Félagarnir Sigurður Þorvaldsson og Hlynur Bæringsson, sem leika með hollenska liðinu Woon!Aris þar í landi, byrjuðu feril sinn hjá félaginu á góðum sigri um helgina þegar liðið lagði Polynorm Giants í æfingaleik um helgina, 83-82.

Sport
Fréttamynd

Njarðvíkingar unnu Greifamótið

Úrvalsdeildarlið Njarðvíkur sigraði á Greifamótinu í körfubolta sem fram fór um helgina á Akureyri, þegar liðið vann heimamenn í Þór með 86 stigum gegn 76 í úrslitaleik.

Sport
Fréttamynd

Logi til skoðunar í Þýskalandi

Logi Gunnarsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, er þessa dagana til skoðunar hjá þýska liðinu Bayeruth sem leikur í 2. deild í Þýskalandi. Magnús Gunnarsson, sem leikur með Keflavík, hefur hafnað tilboði frá Lausanne í Sviss en stefnir á atvinnumennsku á næstu leiktíð.

Sport
Fréttamynd

Fjölnir sigraði ÍR

Fjölnir úr Grafarvogi gerði góða ferð í Breiðholtið í Reykjavíkurmótinu í körfubolta í gærkvöld og lagði ÍRinga með 90 stigum gegn 72, eftir að hafa verið yfir 43-38 í hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Valur vann ÍS í körfunni

Á Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik í gær vann Valur ÍS, 95-68, og í kvennaflokki vann KR Fjölni, 70-45.

Sport
Fréttamynd

Njarðvík lagði Keflavík

Njarðvíkingar lögðu granna sína í Keflavík á Reykjanesmótinu í körfuknattleik í gærkvöldi, 82-68. Staðan í hálfleik var 43-40 fyrir Njarðvík. Það var hinn nýi leikmaður Njarðvíkur Jeb Ivey sem var stigahæstur allra á vellinum með 33 stig.

Sport
Fréttamynd

Handtökuskipun gefin út á Rodman

Dennis Rodman verður handtekinn af lögreglu ef hann kemur aftur inn í Coloradofylki í Bandaríkjunum. Þetta úrskurðaði dómari í fylkinu í gær, eftir að fyrrum NBA leikmaðurinn var stöðvaður fyrir gáleysislegan akstur í fylkinu á dögunum.

Sport