Ástin á götunni
327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Íslendingar á leið til Hearts Haraldur Björnsson 16 ára markvörður úr Val og Eggert Gunnþór Jónsson 15 ára Eskfirðingur hafa komist að samkomulagi við Hearts í Skotlandi um að leika með þeim næstu þrjú árin. Sport 13.10.2005 19:32
Sigur hjá Djurgården Kári Árnason spilaði allan leikinn með Djurgården sem burstaði botnlið Sundsvall 4-0 í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Sölvi Geir Ottesen var ekki í leikmannahópi Djurgården. Liðið hefur nú fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar á Malmö FF og Helsingborg. Sport 13.10.2005 19:32
Coleman vill Hartson Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, hefur viðurkennt að hann muni líklega ekki hafa efni á að kaupa sér óskaframherja sinn þegar Andy Cole fer frá félaginu eins og allt útlit er fyrir á næstu dögum. Coleman er mjög hrifinn af framherjanum John Hartson hjá Glasgow Celtic, en viðurkennir að líklega verði hann of dýr. Sport 13.10.2005 19:32
Chelsea - Benfica Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á í hálfleik í æfingaleik Chelsea gegn Benfica sem sýndur var á Sýn í gær. Eiður spilaði á miðjunni og átti ágætisleik. Sport 13.10.2005 19:32
Gilardino til A.C. Milan Markahrókurinn Alberto Gilardino er genginn til liðs við A.C. Milan frá Parma fyrir 17.2 milljónir punda. Gilardino, 23 ára, gerði 23 mörk á nýafstöðnu tímabili fyrir Parma og hélt nánast Parma í A deild eins síns liðs. Sport 13.10.2005 19:32
James aðvarar Wright-Phillips Markvörðurinn David James, fyrrum félagi Shaun Wright-Phillips hjá Manchester City, segist óttast að framtíð leikmannsins hjá Chelsea ætti eftir að verða honum erfið vegna samkeppninnar um hverja stöðu. Sport 13.10.2005 19:32
Gengið frá kaupunum á Foster Manchester United gengur á næstu dögum frá kaupunum á markverðinum Ben Foster frá Stoke. Eins og greint hefur verið frá þá fær Stoke eina milljón punda við undirskrift en alls gæti Stoke fengið 2,5 milljónir punda nái Foster að spila úrvalsdeildarleik, meistaradeildarleik og landsleik sem leikmaður United. Sport 13.10.2005 19:32
Mbesuma vill spila fyrir United Zambíu maðurinn Collins Mbesuma sem skrifaði undir samning hjá enska úrvaldseildarliðinu Portsmouth er kanski ekki sá vinsælasti á meðal stuðningsmanna félagsins. Á blaðamannafundi í gær þar sem Mbesuma var kynntur fyrir stuðningsmönnuum, áformaði hann framtíðar áætlanir sínar. Sport 17.10.2005 23:42
Shearer skoraði í sigri Newcastle Newcastle sigraði slóvaska liðið ZTS Dubnica 3-1 á útivelli í fyrri leik liðanna í Intertoto keppninni í knattspyrnu, Mörk Newcastle gerðu Michael Chopra, James Milner og gamla kempan Alan Shearer. Seinni leikur liðanna fer fram á St.James´Park í Newcastle á laugardaginn kemur. Sport 13.10.2005 19:32
Samið um verð á Wright-Phillips Manchester City og Chelsea hafa komist að samkomulagi um verð á Shaun Wright-Phillips, framherja City. Sky-fréttastofan greindi frá þessu fyrir stundu. Upphæðin hefur þó ekki verið gefin upp. Sport 13.10.2005 19:31
Real vann í fyrsta leiknum Real Madríd vann mexíkóska liðið Chivas Guadalajara, 3-1, í fyrsta æfingaleik liðsins af sex í keppnisferð um Asíu og Bandaríkin. Francesco Palencia kom Chivas yfir á 73. mínútu en Madrídarmenn jöfnuðu metin þegar Alvaro Meija skallaði inn aukaspyrnu frá David Beckham. Sport 13.10.2005 19:31
Benayoun til West Ham Ísraelski landsliðsmaðurinn Yossi Benayoun gekk í gær til liðs við West Ham United. Lundúnaliðið borgar spænska liðinu Racing Santander 2,5 milljónir punda fyrir Benayoun. Sport 13.10.2005 19:31
Henry næsti fyrirliði Arsenal Thierry Henry verður næsti fyrirliði Arsenal. Arsenal vann 3. deildarliðið Barnet, 4-1, í æfingaleik í gær. Hvít-Rússinn Alexander Hleb skoraði fyrsta markið en síðan skoruðu þeir Henry, Dennis Bergkamp og Justin Hoyte áður en Barnett minkaði muninn. Sport 13.10.2005 19:31
Eiður Smári á bekknum gegn Benfica Eiður Smári Guðjohnsen byrjar á varamannabekknum hjá Chelsea í kvöld en liðið spilar þá sinn annan leik á undirbúningstímabilinu gegn portúgalska liðinu Benfica. Chelsea og Benfica spila um Samsung-bikarinn og það verður vítaspyrnukeppni sem ræður úrslitum standi leikar jafnir eftir venjulegan leiktíma. Sport 13.10.2005 19:32
Wright-Phillips til Chelsea Það er nánast frágegnið að sóknar-miðjumaður Manchester City, Shaun Wright-Phillips gangi til liðs við Englandsmeistara Chelsea. Félögin hafa samið um kaupverð sem talið er nema 21 milljón punda og nú á leikmaðurinn eingöngu eftir að semja um kaup og kjör. Wright-Phillips er 23 ára gamall og hefur leikið allan sinn atvinnumannaferil með Man.City. Sport 13.10.2005 19:32
Úrslitin í leik Benfica -Chelsea Leikur Benfica og Chelsea sem nú er sýndur á sjónvarpstöðinni Sýn er lokið. Veldu meira til að sjá úrslit leiksins. Sport 13.10.2005 19:32
Skagamenn í stórsókn Skagamenn hafa gert harða hríð að marki FH í upphafi síðari hálfleiks og áttu nú fyrir stundu þrjú bylmingsskot að marki heimamanna, en náðu ekki að koma knettinum yfir marklínuna. Staðan er því óbreytt í Kaplakrika, gestirnir hafa yfir 1-0. Sport 13.10.2005 19:31
Allan að gulltryggja sigurinn Allan Borgvardt er nánast búinn að gulltryggja sigur FH og sæti í undanúrslitum VISA-bikars karla eftir að hann kom FH í 3-1 á 108. mínútu með skalla úr markteig eftir frábæran undirbúning Guðmundar Sævarssonar. Sport 13.10.2005 19:31
Tvöföld skipting hjá FH og ÍA FHingar hafa gert tvær breytingar á liði sínu. Inná eru komnir Jónas Grani Garðarsson og Jón Þorgrímur Stefánsson og greinlegt að Ólafur Jóhannesson þjálfari ætlar sér að blása til sóknar til að freista þess að jafna leikinn, en það hafa verið Skagamenn sem hafa átt hvert dauðafærið á fætur öðru á síðustu mínútum. Sport 13.10.2005 19:31
Kominn hálfleikur í framlenginu FH-ingar hafa ágæt tök á leiknum gegn Skagamönnum eftir að Jón Þorgrímur Stefánsson kom þeim í 2-1 eftir aðeins 5 mínútna leik í framlenginunni. Það stefnir því í það að FH-ingar hafi sloppið með skrekkinn á heimavelli sínum í dag og séu komnir inn í undanúrslit VISA-bikars karla í knattspyrnu en gestirnir ofan af Skaga hafa 15 mínútur til að breyta því. Sport 13.10.2005 19:31
Jon Dahl Tomasson til Stuttgart Danski landsliðsmaðurinn, Jon Dahl Tomasson er genginn til liðs við þýska liðið Stuttgart frá A.C. Milan. Það hafa orðið miklar breytingar hjá Stuttgart í sumar því Matthias Sammer þjálfari liðsins á síðustu leiktíð er farinn og við starfi hans hefur tekið Giovanni Trappatoni. Sport 13.10.2005 19:31
Atli Viðar kemur FH í 5-1 Atli Viðar Björnsson er búinn að skora fjórða mark FH í framlengingunni og koma FH í 5-1 á 114. mínútu. Markið skoraði Atli Viðar eftir skyndisókn og sendingu Jónasar Grana Garðarssonar en þrír varamenn FH-liðsins eru búnir að skora í leiknum. Það er grátlegt að sjá Skagaliðið hrynja saman eftir frábæra frammistöðu í 90 mínútur. Sport 13.10.2005 19:31
Andri Júlíusson kemur ÍA yfir Andri Júlíusson er búinn að skora fyrir Skagamann eftir aðeins þrjár mínútur með skalla af markteig eftir skallasendingu Igors Pesic. Þetta var fyrsta marktilraun leiksins. Sport 13.10.2005 19:31
Skagamenn með stangarskot Skagamaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson átti rétt í þessu skot sem hafnaði í stönginni á marki FH-inga, en hann hefur verið mjög sprækur á vinstri vængnum í liði ÍA í dag. Staðan eftir rúmlega hálftíma leik er því enn 1-0, Skagamönnum í vil. Sport 13.10.2005 19:31
Landsliðið upp um sjö sæti Íslenska landsliðið í knattspyrnu er hástökkvari mánaðarins á nýjum styrkleikalista alþjóða knattspyrnusambandsins. Ísland er komið í 90.sæti eftir að hafa verið í 97. sæti en það var versta staða liðsins frá því styrkleikalisti alþjóða knattspyrnusambandsins var tekinn upp, í ágúst 1993. Sport 13.10.2005 19:31
Heimir ekki með FH-ingum Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH-inga, er ekki í leikmannahópi liðsins sem mætir Skagamönnum í 8 liða úrslitum VISA-bikars karla. Baldur Bett tekur stöðu fyrirliðans á miðjunni en markvörðurinn Daði Lárusson ber fyrirliðabandið í leiknum. Sport 13.10.2005 19:31
Skagamenn yfir í hálfleik Skagamenn eru 0-1 yfir í hálfleik gegn FH í 8 liða úrslitum VISA-bikars karla en leikurinn fer fram á Kaplakrikavelli. Markið skoraði hinn 19 ára gamli Andri Júlíusson strax á 3. mínútu leiksins með skalla af markteig eftir sendingu frá Igor Pesic. Bjarki Guðmundsson, markvörður ÍA, hefur varið oft mjög vel í markinu þar á meðal vítaspyrnu frá Tryggva Guðmundssyni á lokamínútu fyrri hálfleiks. Sport 13.10.2005 19:31
FH-ingar í undanúrslit bikarsins FH-ingar tryggðu sér sæti í undanúrslitunum VISA-bikars karla í dag með 5-1 sigri á ÍA í framlengdum leik liðanna í Kaplakrika. Skagamenn skoruðu strax á 3 mínútu en FH-ingar tryggðu sér framlengingu 17 mínútum fyrir leikslok og unnu hana síðan örugglega 4-0. Allir varamenn Íslandsmeistaranna skoruðu í leiknum. Sport 13.10.2005 19:31
Niðurlægðir í framlengingu FHingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu með 5-1 sigri á ÍA á heimavelli sínum í Kaplakrika í gær. FH-ingar voru heppnir að koma leiknum í framlengingu en eftir að í hana var komnið var aldrei spurning um hvernig leikar myndu fara. Sport 13.10.2005 19:31
FH hefur ekki slegið út ÍA í 25 ár FH hefur ekki náð að slá út ÍA í bikarkeppninni í 25 ár eða síðan að liðið vann 3-1 sigur í leik liðanna í 16 liða úrslitum keppninnar 1980. Skagamenn hafa unnið þrjár síðsutu bikarviðureignir liðanna og í tvö síðustu skiptin hafa þeir unnið bikarmeistaratitilinn eftir að hafa slegið út FH. Liðin mætast í Kaplakrika klukkan 16.00 í dag. Sport 13.10.2005 19:31