Spænski boltinn
242 243 244 245 246 247 248 249 250 … 268 ›
Valencia lagði Barcelona Valencia vann í kvöld mikilvægan sigur á Barcelona í stórleik helgarinnar í spænska boltanum. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona í kvöld en var skipt af velli eftir klukkutíma leik. Silva og Angulo skoruðu mörk Valencia með þriggja mínútna millibili í upphafi síðari hálfleiks, en Ronaldinho minnkaði muninn í uppbótartíma. Fótbolti 18.2.2007 19:55
Tottenham áfram í bikarnum Tottenham vann nokkuð auðveldan 4-0 útisigur á Fulham í fimmtu umferð enska bikarsins á Craven Cottage í dag. Robbie Keane og varamaðurinn Dimitar Berbatov skoruðu mörk gestanna sem eru komnir í 8-liða úrslitin. Heiðar Helguson var í byrjunarliði Fulham en var skipt af velli eftir klukktíma leik. Enski boltinn 18.2.2007 17:56
Eiður Smári í byrjunarliði Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona í stórleiknum gegn Valencia sem hefst á Mestalla leikvangnum nú klukkan 18 og er sýndur beint á Sýn. Barcelona tekur svo á móti Liverpool í Meistaradeildinni í vikunni. Fótbolti 18.2.2007 17:53
Þrautaganga Real heldur áfram - Beckham sá rautt Real Madrid er enn að hiksta í spænsku deildinni í fótbolta og í kvöld náði liðið aðeins markalausu jafntefli gegn Real Betis á heimavelli sínum Santiago Bernabeu í Madrid. David Beckham fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiksins sem sýndur var beint á Sýn. Bein útsending frá leik Zaragoza og Villarreal hefst klukkan 21. Fótbolti 17.2.2007 20:54
Beckham í liði Real Madrid á ný David Beckham er í byrjunarliði Real Madrid í kvöld þar sem liðið tekur á móti Real Betis í spænsku deildinni. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og hófst nú uppúr klukkan 19. Síðar í kvöld verður leikur Zaragoza og Villarreal sýndur beint á Sýn. Á morgun verður Sýn svo með beina útsendingu frá stórleik Barcelona og Valencia þar sem Eiður Smári Guðjohnsen verður í leikmannahópi Barcelona. Fótbolti 17.2.2007 19:21
Capello vill sjá Beckham í landsliðinu David Beckham er greinlega orðinn að algjöru uppáhaldi hjá stjóra sínum Fabio Capello. Ekki er nóg með að hann skuli aftur vera kominn í byrjunarlið Real Madrid heldur hefur Capello nú hvatt Steve McLaren, þjálfara enska landsliðsins, að velja Beckham á ný í liðið. Capello telur að Beckham geti haft sömu áhrif á enska liðið og hann hafði á lið Real um síðustu helgi. Fótbolti 16.2.2007 18:24
Nistelrooy segir Ferguson hafa sparkað í sál sína Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy hefur tjáð sig í fyrsta sinn um hvað það var sem olli trúnaðarbresti hans og Sir Alex Ferguson, stjóra Man. Utd. á síðustu leiktíð. Ósættið leiddi til þess að Nistelrooy var seldur til Real Madrid í sumar, og segist sá hollenski hafa hafnað AC Milan og Bayern Munchen áður en hann ákvað að skrifa undir hjá spænska stórliðinu. Fótbolti 16.2.2007 18:21
Casillas gagnrýnir spænska fjölmiðla Iker Casillas, markvörður Real Madrid, gerir lítið úr meintu uppþoti í herbúðum Barcelona, hvað meintar deilur Samuel Eto´o, Ronaldinho og þjálfarann Frank Rijkaard varðar. Casillas harmar hvernig spænskir fjölmiðlar hafa blásið málið upp. Fótbolti 16.2.2007 13:49
Canizares framlengir við Valencia Markvörðurinn Santiago Canizares hjá Valencia hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2009 og verður því kominn nær fertugu þegar hann rennur út. Canizares hefur verið mjög sigursæll með Valencia síðan hann gekk í raðir liðsins árið 1998 en hann lék áður með Real Madrid. Fótbolti 15.2.2007 18:49
Robinho: Tottenham er ekki nógu stór klúbbur fyrir mig Brasilíski framherjinn Robinho neitar því alfarið að hann sé á leið til Tottenham á Englandi. Orðrómur þess efnis fór af stað í morgun eftir að Robinho hafði lýst því yfir að hann væri óánægður hjá Real Madrid. "Ef ég fer frá Real verður það til að fara til annars stórs félags - og Tottenham er ekki stórt félag," sagði Robinho. Fótbolti 15.2.2007 15:18
Ronaldinho og Eto´o féllust í faðma á æfingu Þeir Ronaldinho og Samuel Eto´o hjá Barcelona virðast hafa grafið stríðsöxina frá því í gær en þeir félagar féllust í faðma og slógu á létta strengi á æfingu í hádeginu. Eto´o gagnrýndi félaga sinn harðlega í gær en nú virðist hann amk hafa náð sáttum við Ronaldinho. Fótbolti 14.2.2007 14:08
Eiður Smári á hörðum aukaæfingum Spænska fréttasíðan Mundo Deportivo greinir frá því í dag að Eiður Smári Guðjohnsen æfi nú manna mest hjá liði Barcelona og sást hann æfa einn í gær og í morgun. Það er því greinilegt að landsliðsfyrirliðinn ætlar að vinna sér sæti í liðinu á ný og er Frank Rijkaard mjög ánægður með einbeitingu hans. Fótbolti 14.2.2007 13:44
Eto´o hraunar yfir Rijkaard og Ronaldinho Kamerúninn Samuel Eto´o hjá Barcelona segir að Frank Rijkaard og Ronaldinho séu vondir menn í kjölfar þess að þeir gagnrýndu ákvörðun hans um að neita að fara inná í leik gegn Santander um síðustu helgi. Eto´o segist vera fastur í miðju stríði innan liðsins. Fótbolti 13.2.2007 17:23
Robinho íhugar að fara frá Real Madrid Brasilíski sóknarmaðurinn Robinho hefur gefið í skyn að hann vilji fara frá spænska liðinu Real Madrid fái hann ekki tækifæri til að spila meira undir stjórn Fabio Capello þjálfara. Robinho er aðeins 22 ára gamall og gekk í raðir Real árið 2005. Fótbolti 13.2.2007 15:05
Hugo Viana: Ronaldo fer til Spánar í sumar Portúgalski miðjumaðurinn Hugo Viana hjá Valencia fullyrðir að landi hans Cristiano Ronaldo hjá Manchester United muni ganga í raðir Barcelona eða Real Madrid í sumar. Fótbolti 13.2.2007 14:40
Eto´o neitaði að spila í gær Framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona neitaði að fara inná sem varamaður þegar fimm mínútur voru eftir af leik Barcelona og Santander í gærkvöld. Eto´o er hægt og bítandi að ná heilsu eftir hnémeiðsli, en neitaði að fara að hita upp þegar hann var beðinn um það í gær. Fótbolti 12.2.2007 13:31
Ronaldinho tryggði Barcelona sigur Barcelona er komið með þriggja stiga forystu í spænsku úrvalsdeildinni eftir að hafa lagt Racing Santander vandræðalaust af velli, 2-0, á Nou Camp í kvöld. Brasilíski snillingurinn Ronaldinho kom aftur inn í lið Evrópumeistaranna og skoraði bæði mörk liðsins. Fótbolti 11.2.2007 19:51
Rijkaard: Það komast ekki allir í hópinn Eiður Smári Guðjohnsen á ekki við meiðsli eða veikindi að stríða fyrir leik Barcelona gegn Racing Santander í kvöld heldur kemur það einfaldlega í hans hlut að vera utan hóps í þetta skiptið. Þetta segir Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona. Fótbolti 11.2.2007 16:17
Capello hrósar Beckham fyrir frammistöðu sína Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, hrósaði David Beckham í hástert fyrir frammistöðu sína gegn Real Sociedad í gærkvöldi, en Beckham skoraði fyrra mark liðsins í 2-1 sigri eftir að hafa verið óvænt valinn í byrjunarliðið. Capello segist alltaf borið traust til Beckham. Fótbolti 11.2.2007 12:57
Beckham sló rækilega í gegn David Beckham kom, sá og sigraði í leik Real Madrid og Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Beckham var öllum að óvörum í byrjunarliði Real eftir að hafa ekki verið í leikmannahóp liðsins síðustu vikur og skoraði fyrra mark Real í 2-1 sigri liðsins. Fótbolti 10.2.2007 20:44
Eiður Smári ekki í hópnum hjá Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen hefur verið skilinn eftir utan leikmannahópsins hjá Barcelona fyrir viðureign liðsins gegn Racing Santander í spænsku úrvalsdeildinni á morgun. Samkvæmt fréttum frá Spáni á Eiður Smári ekki við meiðsli eða veikindi að stríða - hann þarf einfaldlega að víkja fyrir Lionel Messi, sem er aftur orðinn leikfær eftir þriggja mánaða legu á hliðarlínunni vegna meiðsla. Fótbolti 10.2.2007 13:36
Saviola vill helst fara til Ítalíu Javier Saviola, félaga Eiðs Smára Guðjohsen hjá Barcelona, langar mest að fara til Ítalíu fari svo að spænska félagið bjóði honum ekki nýjan samning eftir núverandi tímabil. Saviola kveðst aldrei munu svíkja Barcelona með því að ganga til liðs við Real Madrid en hann útilokar ekki að vera áfram hjá Barca. Fótbolti 9.2.2007 19:49
Capello: Beckham hefur verið frábær Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, segir að framkoma og metnaður David Beckham á æfingum Real Madrid síðustu vikur hafi sannfært sig um að enski miðjumaðurinn væri tilbúinn í slaginn með spænska liðinu. Capello segir Beckham hafa hagað sér eins og sannur fagmaður eftir að hafa verið tilkynnt um að hann myndi ekki spila meira í vetur. Fótbolti 9.2.2007 14:22
Beckham verður með Real á morgun David Beckham hefur verið kallaður aftur inn í leikmannahóp Real Madrid fyrir leikinn gegn Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni á morgun. Gengi Real hefur ekki verið upp á marga fiska síðustu vikur og hefur þjálfarinn Fabio Capello nú látið undan gríðarlegum þrýstingi um að gefa Beckham tækifæri á ný. Fótbolti 9.2.2007 12:08
Riquelme lánaður til heimalandsins Forseti Boca Juniors í Argentínu segir að félagið sé búið að gera fjögurra mánaða lánssamning við leikstjórnandann Juan Roman Riquelme hjá Villarreal og muni greiða spænska félaginu hátt í tvær milljónir evra fyrir. Riquelme hefur verið úti í kuldanum hjá Villarreal á leiktíðinni eftir deilur við þjálfara sinn. Fótbolti 8.2.2007 14:43
Real og Barcelona ríkustu félögin Real Madrid er komið aftur í efsta sæti yfir ríkustu knattspyrnufélög Evrópu og erkifjendurnir Barcelona sitja í öðru sætinu. Þetta er niðurstaða ítarlegrar könnunar sem gerð hefur verið og sýnir 20 ríkustu félagslið í Evrópu. Fótbolti 8.2.2007 14:27
Capello skammaður fyrir að hrósa öfgasinnuðum stuðningsmönnum Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, var tekinn inn á teppi hjá stjórn félagsins í dag þar sem hann var skammaður fyrir að hafa hrósað öfgasinnuðum stuðningsmönnum liðsins, Ultras Sur, fyrir stuðninginn í háðlegu tapi Real fyrir Levante á dögunum. Fótbolti 7.2.2007 16:28
Ayala fer til Villarreal í sumar Argentínumaðurinn Roberto Ayala gengur í raðir Villarreal frá Valencia í sumar og hefur gegngið frá þriggja ára samningi. Hann er 33 ára gamall og þarf einn landsleik til við bótar til að verða landsleikjahæsti leikmaður Argentínu frá upphafi. Ayala hefur verið kjölfestan í sigursælu liði Valencia um árabil, en flytur sig nú um set til smáliðsins í grennd við Valencia. Fótbolti 7.2.2007 15:39
Við getum ekki haldið í Torres Staðan á framherjanum magnaða Fernando Torres hjá Atletico Madrid verður æ skringilegri með hverjum deginum, en nú nokkrum dögum eftir að leikmaðurinn lýsti því yfir að hann vildi alls ekki fara frá félaginu - hefur yfirmaður liðsins nú komið fram og sagt að félagið eigi ekki möguleika á að halda honum í sínum röðum lengur. Fótbolti 6.2.2007 20:17
Barcelona: Við höfum efni á Ronaldo Ferran Soriano, varaforseti Barcelona, segir að félagið hafi vel efni á því að kaupa Portúgalann Cristiano Ronaldo frá Manchester United, ekkert sé því til fyrirstöðu ef þjálfarinn Frank Rijkaard hafi áhuga á því og ef verðmiðinn flokkist undir "almenna skynsemi." Fótbolti 6.2.2007 20:04