Spænski boltinn
251 252 253 254 255 256 257 258 259 … 268 ›
Töfrabrögðin byrjuð á Nou Camp Síðari leikur Barcelona og Espanyol á Nývangi í Barcelona er nú nýhafinn, en þetta er síðari leikur liðanna í meistarakeppninni á Spáni. Það tók galdramanninn Ronaldinho ekki nema tæpar þrjár mínútur að leika uppi félaga sinn Xavi, sem skoraði með góðum skalla og kom Barca yfir. Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona, sem þar með er komið yfir 2-0 samanlagt í einvíginu. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra. Fótbolti 20.8.2006 20:08
Diarra gerir fimm ára samning við Real Real Madrid hefur gert fimm ára samning við Malímanninn Mahamadou Diarra sem kemur frá frönsku meisturunum Lyon. Diarra verður formlega kynntur til leiks sem nýr leikmaður Real eftir helgina, en á að vísu eftir að standast læknisskoðun hjá spænska félaginu. Fótbolti 20.8.2006 16:00
Barcelona - Espanyol í beinni í kvöld Síðari leikur Barcelona og Espanyol í meistarakeppninni á Spáni verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn Extra í kvöld. Þetta er síðari leikur liðanna, en Barcelona vann þann fyrri 1-0 á útivelli. Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Börsunga í kvöld og fær vonandi að spreyta sig í fyrsta alvöru leik sínum með liðinu. Útsending á Sýn Extra hefst klukkan 19:55. Fótbolti 20.8.2006 14:30
Kallar Eið Smára "Blondie" Samuel Eto`o, sóknarmaður Barcelona og Kamerún, hefur tekið upp gælunafnið ¿Blondie¿ (Ljóska) á Eið Smára Guðjohnsen, félaga sinn í framlínu spænska stórliðsins. Eto"o greindi frá þessu í samtali við spænska vefmiðil þegar hann var spurður út í nýjustu liðsmenn félagsins, þá Eið Smára, Lilian Thuram og Gianluca Zambrotta. Fótbolti 19.8.2006 20:03
Lyon samþykkir að selja Diarra Frönsku meistararnir í Lyon hafa loks gefið eftir og hafa samþykkt að selja Malímanninn Mahamadou Diarra til Real Madrid. Talið er að kaupverðið sé um 17 milljónir punda, en Diarra hafði krafist þess að fá að fara til Spánar og hótaði að fara í verkfall ef forráðamenn franska félagsins yrðu ekki að kröfum hans. Fótbolti 19.8.2006 13:27
Forráðamenn Espanyol kæra Barcelona Forráðamenn spænska knattspyrnufélagsins Espanyol sendu spænska knattspyrnusambandinu kærubréf skömmu fyrir fyrri leik liðsins gegn Barcelona í meistarakeppninni í gær, því þeir segja granna sína hafa brotið reglur FIFA þegar þeir tefldu þeim Xavi og Carles Puyol fram í leiknum. Fótbolti 18.8.2006 16:51
Ósáttur við vinnubrögð Real Madrid Arsene Wenger er lítt hrifinn af vinnubrögðum stjórnar spænska knattspyrnufélagsins Real Madrid og segir endalausar yfirlýsingar félagsins um leikmannakaup koma sér afar illa fyrir leikmenn annara liða. Fótbolti 18.8.2006 16:43
Barcelona lagði Espanyol Barcelona er í ágætum málum í meistarakeppninni á Spáni eftir 1-0 sigur á grönnum sínum í Espanyol í fyrri viðureign liðanna í kvöld, en leikurinn fór fram á heimavelli Espanyol. Ludovic Giuly skoraði sigurmark Barca rétt áður en flautað var til leikhlés eftir frábæran undirbúning Ronaldinho, en Eiður Smári Guðjohnsen fékk ekki tækifæri með liðinu að þessu sinni. Liðin eigast við öðru sinni á Nou Camp á sunnudag og verður sá leikur einnig sýndur beint á Sýn. Fótbolti 17.8.2006 21:50
Barcelona yfir í hálfleik Barcelona hefur yfir 1-0 gegn Espanyol þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna um meistarabikarinn á Spáni. Það var Ludovic Giuly sem skoraði mark Börsunga á 43. mínútu eftir glæsilegan undirbúning Brasilíumannsins Ronaldinho. Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona og kemur vonandi við sögu í síðari hálfleik. Leikur kvöldsins er sýndur beint á Sýn, líkt og síðari leikur liðanna á heimavelli Barcelona á sunnudaginn. Fótbolti 17.8.2006 20:50
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona í kvöld þegar liðið mætir Espanyol í meistarakeppninni á Spáni sem er árleg viðureign Spánar- og bikarmeistaranna. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Fótbolti 17.8.2006 20:12
Eiður Smári í leikmannahópi Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen verður í leikmannahópi Spánar- og Evrópumeistara Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti Espanyol í meistarakeppninni sem markar upphaf keppnistímabilsins þar í landi. Þeir Gianluca Zambrotta og Lilian Thuram eru einnig í leikmannahópi Barcelona, en þeir komu til félagsins fyrir skömmu líkt og Eiður Smári. Fótbolti 17.8.2006 16:56
Barcelona - Espanyol í beinni í kvöld Fyrsti alvöruleikur Eiðs Smára Guðjohnsen með Evrópumeisturum Barcelona verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í kvöld klukkan 20. Hér er á ferðinni viðureign Spánar- og bikarmeistara Barcelona og Espanyol. Það verður hinn óviðjafnanlegi Guðjón Guðmundsson sem lýsir leiknum og hefst útsendingin klukkan 19:50. Fótbolti 17.8.2006 15:53
Diarra er efstur á óskalistanum Ramon Calderon, forseti spænska knattspyrnufélagsins Real Madrid, segir það algjört forgangsatriði fyrir félagið að landa afríska miðjumanninum Mahamadou Diarra frá franska liðinu Lyon. Real hefur einnig mikinn áhuga á að fá Jose Reyes frá Arsenal, en þó komi það ekki til greina nema Arsenal samþykki að selja hann á hóflega upphæð. Fótbolti 17.8.2006 14:24
Nýr samningur í sjónmáli fyrir Beckham Forráðamenn Real Madrid segja stutt í að samningur David Beckham verði framlengdur við félagið og gæti nýr samningur náð allt fram til ársins 2009. Beckham gekk í raðir Real árið 2003 og líkar lífið vel á Spáni með fjölskyldu sinni. Hann mætti raunar of seint á æfingu liðsins í gærkvöldi eftir að hafa verið í heimalandi sínu að fylgjast með leik Englendinga og Grikkja og gæti átt yfir höfði sér sekt vegna þessa. Fótbolti 17.8.2006 13:40
Meiddist lítillega á ökkla Fernando Torres, leikmaður Atletico Madrid á Spáni, meiddist lítillega í leik Íslands og Spánar á Laugardalsvelli í fyrrakvöld. Hann snerist á ökkla í fyrri hálfleik en hélt engu að síður áfram. Fótbolti 16.8.2006 21:11
Stoltur af 100 leikjum Landsliðsfyrirliði Spánar, Madrídingurinn Raul Gonzalez, sagði í samtali við spænska fjölmiðla eftir leikinn gegn Íslandi í fyrrakvöld að hann væri stoltur af 100 landsleikjum sínum fyrir Spán. "Ég var mjög hamingjusamur og stoltur," sagði kappinn. "Það er mjög mikilvægt fyrir mig að hafa náð þessum áfanga. Það var synd að úrslit leiksins hafi ekki verið betri en þetta var erfitt fyrir okkur." Fótbolti 16.8.2006 21:11
Newcastle eða Celtic? Newcastle United og Glasgow Celtic eru bæði talin vera að berjast um danska miðjumanninn Thomas Gravesen sem leikur með Real Madrid. Fótbolti 16.8.2006 21:11
Á leið til Real Madrid Nú virðist fátt geta komið í veg fyrir að spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes hja Arsenal gangi í raðir Real Madrid. Reyes segir í samtali við breska fjölmiðla í dag að það sé draumur hans að spila fyrir Real og þakkar knattspyrustjóra sínum fyrir að greiða sér leiðina aftur heim til Spánar. Fótbolti 15.8.2006 12:27
Snýr sig fimlega út úr yfirlýsingum sínum Ramon Calderon, nýráðinn forseti spænska knattspyrnufélagsins Real Madrid, hefur viðurkennt að ekkert verði af loforðum hans um að fá þá Kaka, Cesc Fabregas og Arjen Robben til félagsins eins og hann lýsti yfir í forsetakosningunum fyrr í sumar. Fótbolti 14.8.2006 16:18
Gravesen á leið aftur í enska boltann? Umboðsmaður Tomas Gravesen hefur viðurkennt að Real Madrid vilji losna við þennan fyrrum leikmann Everton og að endurkoma í ensku úrvalsdeildina sé líkleg. Fótbolti 2.8.2006 15:37
Eiður og félagar í æfingabúðum í Mexíkó Eiður Smári Guðjohnsen og félagar hans í Evrópumeistaraliði Barcelona komu saman á æfingu í Katalóníu í gær eftir vel heppnaða ferð til Danmerkur. Þeir halda á morgun í æfingabúðir til Mexíkó og Bandaríkjanna. Fótbolti 2.8.2006 15:23
Draumur að ganga í raðir Real Madrid Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy gekk formlega í raðir spænska stórliðsins Real Madrid í dag og lýsti félagaskiptunum sem draumi sem hefði orðið að veruleika. Hann kallaði Real Madrid stærsta félagslið í heiminum og segist ekki geta beðið eftir að leika við hlið fyrrum félaga síns David Beckham. Fótbolti 28.7.2006 18:34
Stóðst læknisskoðun hjá Real Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy hefur nú staðist læknisskoðun hjá spænska stórliðinu Real Madrid og verður kynntur formlega sem nýr leikmaður félagsins undir síðla dags. Fótbolti 28.7.2006 13:18
Real segist vera búið að kaupa Nistelrooy Real Madrid hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að félagið hafi gengið frá kaupum á hollenska framherjanum Ruud Van Nistelrooy. Sagt er að leikmaðurinn hafi samþykkt að undirrita þriggja ára samning og er kaupverðið sagt vera um 15 milljónir evra. Nistelrooy mun að sögn félagsins gangast undir læknisskoðun á morgun. Fótbolti 27.7.2006 17:55
Ég fer ekki frá Atletico Madrid Framherjinn Fernando Torres hjá spænska liðinu Atletico Madrid gaf út sérstaka yfirlýsingu á blaðamannafundi í dag þar sem hann undirstrikaði að hann færi ekki frá félaginu. Þessi frábæri 22 ára gamli framherji hefur verið einhver eftirsóttasti og umtalaðasti leikmaður Evrópu á liðnum árum, en þó hann sé hvað eftir annað orðaður við lið eins og Manchester United, virðist hann ætla að klára ferilinn með uppeldisfélagi sínu. Fótbolti 25.7.2006 14:16
Hundfúll yfir að vera fallinn úr Evrópukeppninni Manuel Pellegrini, þjálfari spænska liðsins Villarreal, var mjög óhress með að liðið félli óvænt úr Intertoto keppninni gegn slóvenska liðinu NK Maribor í gær. Pellegrini gagnrýndi leikmenn liðsins harðlega eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við Slóvenana á útivelli og féll því úr keppni eftir að hafa tapað heimaleiknum 2-1. Fótbolti 23.7.2006 14:55
Del Horno skrifar undir hjá Valencia Spænski landsliðsmaðurinn Asier del Horno skrifaði í dag undir sex ára samning við Valencia í heimalandi sínu, en félagið keypti hann frá Englandsmeisturum Chelsea á dögunum. Talið er að kaupverðið sé tæpar fimm milljónir punda. Fótbolti 22.7.2006 15:26
Laporta gefur aftur kost á sér Joan Laporta ætlar að gefa aftur kost á sér sem forseti Evrópumeistara Barcelona, en á stjórnarfundi á föstudag var ákveðið að boða til forsetakosninga hjá félaginu eftir að í ljós kom að kjörtímabil Laporta væri úti þó hann hefði í raun aðeins setið í þrjú ár í valdastóli. Laporta segist gefa kost á sér í áframhaldandi embætti því hann beri hagsmuni félagsins í brjósti. Fótbolti 22.7.2006 14:27
Ég er kominn til Real Madrid til að vinna Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro segist ekki skilja hvernig standi á því að stórlið Real Madrid hafi ekki unnið titil í þrjú ár, en segist staðráðinn í að gera sitt til að breyta því á næstu leiktíð. Cannavara gekki í raðir spænska liðsins frá Juventus á dögunum og leikur nú undir stjórn gamla stjóra síns frá því hjá Juventus, Fabio Capello. Fótbolti 22.7.2006 14:17
Zambrotta og Thuram til Barcelona Evrópumeistarar Barcelona hafa gefið það út að félagið sé búið að ná samningi við þá Gianluca Zambrotta og Lilian Thuram frá ítalska liðinu Juventus. Zambrotta er 29 ára og hefur skrifað undir fjögurra ára samning og Thuram, sem er 34 ára, hefur skrifað undir tveggja ára samning. Samanlagt kaupverð þeirra er sagt vera um 19 milljónir evra. Fótbolti 21.7.2006 14:36