Bylgjan
1 2 3 4 5 6 … 17 ›
Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu segir kostnað við byggingu nýs fangelsis hafa aukist til muna eftir að framkvæmd var þarfagreining. Einungis lítill hluti upphæðarinnar fari í fangaklefana og þess í stað sé umgjörðin sem kosti bróðurhluta af þrjátíu milljörðunum sem verja á í fangelsið. Innlent 23.10.2026 11:05
Jólabylgjan komin í loftið Í dag eru 63 dagar í aðfangadag jóla og Jólabylgjan er komin í loftið. Tónlistarstjóri Bylgjunnar segir fjölda fólks hafa hringt inn síðustu daga og spurt hvenær stöðin færi í loftið. Jól 23.10.2026 10:47
Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Formaður Sameykis segir að Reykjavíkurborg sé stjórnað með ótta. Fólk upplifi sig mjög óöruggt þar sem uppsagnarhrinu sé ekki lokið enn og að margir hefðu þegar leitað annað ef atvinnuástandið á landinu væri betra. Innlent 22.10.2026 09:29
Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Af þeim tugum sem sagt var upp störfum hjá Reykjavíkurborg í hagræðingaraðgerðum hafa um það bil fimm verið ráðnir aftur. Þetta segir Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar. Innlent 21.10.2026 11:27
Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Framkvæmdastjóri samtaka frumlyfjafyrirtækja á Íslandi segir verðkröfur stjórnvalda fæla erlend lyfjafyrirtæki frá því að markaðssetja lyf hér á landi. Ísland teljist örmarkaður á þessu sviði og öll Norðurlöndin myndi saman um fimm prósent af lyfjamarkaði Evrópu. Innlent 14.10.2026 23:15
„Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, hefur kært menntamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir að neita að afhenda sveitarfélaginu niðurstöður úr PISA-könnunum. Hún segir það skjóta skökku við að ráðuneytið afhendi stærstu sveitarfélögunum slíkar upplýsingar en ekki minni sveitarfélögum á landsbyggðinni. Innlent 11.10.2026 19:21
Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Fádæma góðir gestir verma sætin í hljóðverinu á Sprengisandi í dag. Fjörutíu ár eru liðin frá Höfðafundinum og skærur í verkalýðshreyfingunni eru meðal umfjöllunarefna þáttarins í stjórn Páls Magnússonar sem hefst klukkan tíu. Innlent 11.10.2026 09:30
Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Harpa Söring Ragnarsdóttir hefur hýst fjölda au pair-stúlkna, til að mynda frá Filippseyjum, og segir aðstoð þeirra hafa gjörbreytt heimilislífinu til hins betra. Lítið sem ekkert eftirlit hafi verið með au pair, sem ætti að bæta í stað þess að banna komu filippseyskra stúlkna alveg. Innlent 7.10.2026 10:25
Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Bókun 35 verður lögð fyrir Alþingi í vikunni í kjölfar þess að máli íslenska ríkisins var vísað til EFTA-dómstólsins. Þingmenn Viðreisnar og Miðflokksins tókust á um málið í Sprengisandi. Innlent 4.10.2026 17:02
Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Nýr formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl segir samtökin alls ekki vilja þrengja að gegn einkabílnum heldur sé tilgangur samtakanna að gera það auðveldara að velja að vera bíllaus. Sumir gætu sleppt því að kaupa fleiri bíla á heimilið og skoðað það frekar að kaupa gott hjól í staðinn. Innlent 29.9.2026 20:51
„Sorglegt að þetta sé staðan“ Dómsmálaráðherra segir hótanir í garð ráðamanna vera ömurlegt frávik frá því sem að öðru leyti einkenni íslenskt samfélag. Hún sé sjálf meðal þeirra ráðamanna sem hafi borist hótanir. Innlent 28.9.2026 21:12
Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Páll Magnússon þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Að vanda er dagskráin fjölbreytt en þáttur dagsins einkennist af alvöru og gamni. Innlent 27.9.2026 09:57
Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ „Ég var komin á fjórða lag og þá fer fólk að týnast úr salnum þangað til að hann er alveg tómur. Þetta var óþægileg tilfinning, ég þurfti að halda áfram, klára lagið og svo þurftum við að pakka öllu saman og fara. Ég fór heim og ég bara grét,“ segir tónlistarkonan Brynja Valdimarsdóttir um mjög mótandi lífsreynslu fyrir tæpum tveimur árum. Erfiðleikarnir urðu til þess að hún fékk nokkurs konar hugljómun og fann aukna trú á sjálfri sér. Tónlist 23.9.2026 13:00
Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Félags- og húsnæðisráðherra telur að það skorti traust og virðingu gagnvart kjarasamningum, bæði hjá atvinnulífinu og hinu opinbera. Ekki sé langur tími til stefnu til að bregðast við brostnum forsendum kjarasamninga. Innlent 22.9.2026 11:30
Bakaríið í beinni útsendingu Þau Júlíana Sara og Svavar Örn heilsa hlustendum Bylgjunnar og áhorfendum Vísis þennan laugardagsmorguninn í morgunþættinum Bakaríið. Lífið 19.9.2026 08:56
Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Grunnskólakennari telur að íslenskt samfélag hafi misst sjónar á því hvað skólinn standi fyrir. Námið sé aftast í forgangsröðun heimilisins og kallar hún eftir því að foreldrar sýni jafn mikla ástríðu fyrir náminu og á hliðarlínunni á Símamótinu. Innlent 17.9.2026 22:23
Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir að nýjar tillögur um að færa þingsæti á milli kjördæma geti þaggað niður rödd heilu byggðasvæðanna. Það að öll atkvæði gildi jafnt sé ekki endilega sanngjarnt. Innlent 16.9.2026 20:00
„Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Stjórnarformaður Tækniskólans telur að Hafnarfjarðarbær þurfi að standa undir tjóni sem verður af því að skólinn fékk ekki lóð í Hafnarfirði. Fjölmörg sveitarfélög hafa boðað fram aðstoð, þar á meðal Reykjavíkurborg. Innlent 15.9.2026 22:18
Ekki víst að asbestmengun hafi borist með reyknum Sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun segir íbúa í grennd við Toppstöðina í Elliðaárdal ekki þurfa að óttast asbestmengun þrátt fyrir að asbest sé í húsinu. Heljarinnar tiltekt sé fram undan. Innlent 15.9.2026 17:34
Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Snæbjörn Ragnarsson, tónlistarmaður og sköpunarstjóri á auglýsingastofunni Pipar TBWA, segir gervigreind vera gagnlegt tól í hönnunarvinnu en hún eigi ekki að koma að lokaafurð hönnunarinnar. Umræðan sé strembin en enn eigi almenningur eftir að átta sig á því hvað gervigreind raunverulega sé. Innlent 14.9.2026 23:10
Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna segir það algengt að leita þurfi með börn á bráðamóttöku eftir að þau hafi innbyrt nikótínpúða. Börn allt að níu ára prófi að stinga slíku upp í sig. Innlent 11.9.2026 08:18
Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Tvöhundraðasti þátturinn af Heimsókn með Sindra Sindrasyni fer í loftið í kvöld og kíkir hann þar til fjölmiðlakonunnar Valgerðar Matthíasdóttur, sem landinn þekkir sem Völu Matt. Hún hefur haldið einkalífi sínu fyrir sig síðustu fjörutíu árin og sýnir loks á sér nýja persónulegri hlið í þættinum. Lífið 10.9.2026 13:32
Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Staða hjúkrunarheimila á landinu hefur batnað til muna að mati forstjóra Heilsuverndar en þó er enn langt í land. Eitt vandamálanna sé skortur á mannskap en litið er til tæknilausna á við gervigreind til að leysa þann vanda að hluta. Innlent 10.9.2026 08:30
Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Formaður Framsóknarflokksins, sem áður var með málefni fjölmiðla á sinni könnu, segir að mikilvægi fjölmiðla sé vanmetið á Alþingi. Umfang Ríkisútvarpsins sé að stækka á kostnað einkarekinna fjölmiðla. Innlent 7.9.2026 08:53
Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og prófessor í sagnfræði, hefur tekist á hendur mikið verk sem er að skrásetja hvað gekk á í þorskastríðunum. Að efni til kallast bókin óbeint á við nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðna finnst þægilegt að fela sig í fortíðinni öfugt við annan fyrrverandi forseta sem heitir Ólafur Ragnar Grímsson. Honum finnst hann enn fulltrúi afla sem hann er ósammála og geti því ekki tjáð sig fyrirvaralaust. Lífið 6.9.2026 11:20
Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Stjórnmálafræðingur og prófessor í fjölmiðlafræði segir óljóst hver eftirmál þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið eigi að vera. Þau eigi þó eftir að hafa áhrif á þingveturinn framundan. Innlent 3.9.2026 21:37
Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Formaður Bændasamtakanna á ekki til orð eftir að brotist var aftur inn í svínabú Stjörnugríss og svínunum hleypt út. Bændur þurfi að leita leiða til að tryggja öryggi búskapsins. Innlent 2.9.2026 20:01
„Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Fólki er misvel við máva en íbúar höfuðborgarsvæðisins segja margir farir sínar ekki sléttar af fuglunum og atgangi þeirra síðastliðnar vikur. Ekki sé við þá að sakast enda um svanga og óharðnaða unglinga að ræða, að sögn fuglafræðings. Innlent 1.9.2026 21:03
„Ríkið á stóra sök á þessu“ Fyrsti fréttastjóri Stöðvar 2 segir það að hluta til sök ríkisins að kvöldfréttir Sýnar, áður Stöðvar 2, hafi verið lagðar niður. Staðan sé dapurleg. Innlent 31.8.2026 18:09
Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Útvarpsstöðin Bylgjan fagnar 40 ára afmæli í dag og verður tímamótunum fagnað í allan dag með sérstakri afmælisdagskrá. Gamalkunnir þáttastjórnendur snúa aftur í hljóðverið og fjölmargir gestir úr sögu stöðvarinnar líta við. Lífið 28.8.2026 08:00