Snjóflóð á Íslandi

Fréttamynd

Snjó­flóð þveraði veginn þegar opið var fyrir um­ferð

Hættustig hefur verið sett á Flateyrarveg og veginn um Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu og óvissustig er víða í gildi. Hættustig er einnig í gildi vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og nokkur fjöldi snjóflóða hefur fallið á norðanverðum Vestfjörðum og Tröllaskaga í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Hefur ekki minnstu á­hyggjur af bænum sem þurfti að rýma

Símon Símonarsson, íbúi á Steinaflötum við Siglufjörð, segist engar áhyggjur hafa þótt honum og syni hans hafi verið gert að yfirgefa heimilið vegna snjóflóðahættu á svæðinu. Hann bíður rólegur eftir því að fá leyfi til að fara aftur heim.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er ekkert grín“

Ofanflóðasérfræðingur á Siglufirði segist aldrei hafa séð annað eins á þeim slóðum og vísar þar til stærðarinnar snjóflóðs sem féll í nótt. Mikil lukka er að enginn hafi verið á ferli þegar það féll. Ískyggilegt er að sjá snjóflóðið innan við kílómetra frá byggð. 

Innlent
Fréttamynd

„Undar­legt að það hafi ekki orðið manns­lát þarna“

Sveitastjóri Súðavíkurhrepps segir það tímaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist við Súðavíkurhlíð. Löngu sé kominn tími á göng á svæðinu enda hafi fjölmargir lent í hremmingum, þar sem litlu mátti muna, á leið sinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur. 

Innlent
Fréttamynd

Sex snjó­flóð fallin og veginum lokað

Veginum um Súðavíkurhlíð verður lokað hálf tólf en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Erfið færð er um veginn. Einnig hafa fallið snjóflóð í fjallinu fyrir ofan Flateyri.

Innlent
Fréttamynd

Á rann­sókn á Flat­eyri að bíða?

Snjóflóðið sem féll á Flateyri árið 1995 hefur aldrei verið tekið til sjálfstæðrar og heildstæðrar rannsóknar. Ég lifði sjálf af flóðið og missti systur mína í því.

Skoðun
Fréttamynd

Kallar eftir rann­sókn á snjóflóðinu á Flat­eyri

Kona sem komst lífs af í snjóflóðinu á Flateyri árið 1995 hefur lagt fram formlegt erindi til Alþingis um rannsókn á snjóflóðinu líkt og gert var í tilfelli snjóflóðsins sama ár í Súðavík. Sé rannsókn réttlætanleg í Súðavík vegna manntjóns og samfélagslegra afleiðinga hljóti sami mælikvarði að gilda á Flateyri. Annað kalli á skýran og rökstuddan mun.

Innlent
Fréttamynd

Af hverju var snjó­flóðið á Flat­eyri ekki rann­sakað?

Árið 1995 féllu tvö mannskæð snjóflóð á Íslandi, í Súðavík í janúar og á Flateyri í október sama ár. Bæði leiddu til manntjóns og víðtækra samfélagslegra afleiðinga. Atburðirnir áttu sér stað innan sama stjórnsýslulega ramma og á tímabili þar sem hættumat og viðbúnaður voru í mótun.

Skoðun
Fréttamynd

Lítið snjó­flóð féll á snjótroðara í Hlíðar­fjalli

Lítið snjóflóð féll á snjótroðara sem var við vinnu í Hlíðarfjalli í gær. Starfsmaður slasaði sig ekki og ekkert tjón varð á troðaranum þegar flóðið féll á hliðina á honum. Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls, segir starfsmann hafa komið sér niður af fjallinu eftir flóðið.

Innlent
Fréttamynd

Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við

Faðir sem missti þrjú börn í snjóflóðinu í Súðavík árið 1995 segir nýja skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem kynnt var í dag ekki til neins ef ekki verði brugðist við henni. Hann segir ekki dag líða þar sem hann hugsi ekki til dagsins örlagaríka í janúar þetta ár, stjórnvöld hafi með því að neita að horfast í augu við ábyrgð látið eins og fráfall íbúa í Súðavík hafi ekki skipt neinu máli.

Innlent
Fréttamynd

Ekki lengur hægt að breiða yfir sann­leikann

Í dag mun rannsóknanefnd sem Alþingi skipaði til að rannsaka aðdraganda og eftirmál snjóflóðsins í Súðavík fyrir þrjátíu árum skila skýrslu sinni. Kona sem missti dóttur sína í flóðinu segist vona að sannleikurinn fái loksins að koma í ljós.

Innlent
Fréttamynd

Vest­firðingar sjá fram á þrenn ný jarð­göng

Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi.

Innlent
Fréttamynd

Snjóhengjur geti skapað hættu

Enn er viðvörun um aukna snjóflóðahættu í gildi á Suðvesturlandi. Gefin var út slík viðvörun í gær vegna mikillar snjókomu. Þá var hættan metin töluverð en er nú búin að lækka hana í nokkra hættu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er viðvörunin í gildi þar til klukkan 19 í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Hinna látnu minnst í Flateyrarkirkju

Minningarstund fer fram í Flateyrarkirkju í dag í tilefni þess að þrjátíu ár eru liðin frá því að tuttugu manns létust þar í snjóflóði. Sóknarprestur segir það gefa samfélaginu mikið að finna samhug þjóðarinnar, sorg sé í lofti í bænum í dag.

Innlent
Fréttamynd

Er enn að vinna úr því að hafa lifað

„Mér þykir þetta dálítið skrýtið, að það séu komin þrjátíu ár. Sérstaklega af því að ég er bara að vinna mjög mikið í hlutum sem tengjast þessu,“ segir Sóley Eiríksdóttir, sem var ellefu ára þegar hún lenti í snjóflóðinu á Flateyri. Tuttugu létust í náttúruhamförunum, þeirra á meðal Svana, eldri systir Sóleyjar, og Sólrún Ása, frænka hennar.

Innlent
Fréttamynd

Sumarið verður nýtt vel til upp­byggingar snjó­flóða­varna

Hraðari uppbygging ofanflóðavarna á hættusvæðum er eitt af áherslumálum nýrrar ríkisstjórnar. Þrátt fyrir að lagt sé kapp á útgjaldaaðhald og hagræðingu í fjármálaáætlun okkar, þá höfum við ákveðið að setja aukna fjármuni í ofanflóðavarnir í þeim tilgangi að hraða brýnustu verkefnum.

Skoðun
Fréttamynd

„Mér finnst þetta ekki rosa­lega pent“

Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps segir það viðvarandi vandamál að fólk dvelji í íbúðarhúsum í eldri byggðinni sem er ekki varin fyrir snjóflóðum. Það geti sett viðbragðsaðila í mikla hættu ætli fólk ekki að fylgja reglunum. 

Innlent