Sveitarstjórnarkosningar 2026
1 2 3 4 5 6 … 10 ›
Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Brynjar Níelsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, er á leið í borgarstjórn. Hann ætlar að gefa kost á sér og mun væntanlega skipa þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Morgunblaðið boðar miklar hreinsanir á núverandi borgarstjórnarfulltrúum. Innlent 23.2.2026 12:00
Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Sameiginlegt framboð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og Vors til vinstri í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum heitir Vinstrið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vori til vinstri. Innlent 23.2.2026 11:10
Líf bar sigur úr býtum Líf Magneudóttir, núverandi oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, sigraði í forvali flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún mun vera í öðru sæti á sameiginlegum lista VG og Vors til Vinstri. Sanna Magdalena Mörtudóttir mun hins vegar leiða listann. Innlent 22.2.2026 17:29
Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð samþykkti framboðslistann fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Ragnar Sigurðsson formaður bæjarráðs verður áfram oddviti listans. Innlent 21.2.2026 14:09
Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Forval Vinstri grænna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor stendur nú yfir og lýkur klukkan fimm á morgun. Í morgun höfðu 27 prósent á kjörskrá greitt atkvæði en fjölgað hefur töluvert í flokknum undanfarnar vikur. Innlent 21.2.2026 11:51
„Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Tveir frambjóðendur vilja oddvitasætið í forvali Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Sitjandi oddviti segir vinstrið þurfa á reynslu að halda en mótframbjóðandinn boðar meiri róttækni í húsnæðis- og samgöngumálum. Innlent 20.2.2026 20:26
Regína lætur staðar numið í Mosó Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri í Mosfellsbæ hefur ákveðið að hætta störfum að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor hver sem útkomin verði. Ákvörðunin sé ekki léttvæg en hún vilji að framboð viti að hverju þau gangi nú þegar kosningabaráttan fer í hönd. Innlent 20.2.2026 12:29
Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Alþingi hefur samþykkt bráðabirgðaákvæði í lögum um sveitarstjórnarkosningar vegna kosninga í Grindavík. Lögin gera það að verkum að þeir Grindvíkingar, sem fluttu lögheimili sín í kjölfar rýmingar þann 10. nóvember 2023, geta nú valið hvort þeir kjósi í nýju sveitarfélagi í kosningum í vor eða í Grindavík. Innlent 19.2.2026 16:50
Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir Björk Vilhelmsdóttur, formann uppstillingarnefndar í borginni, hafa farið með ósannindi í samtali við blaðamann. Guðmundur Ingi er nú í viðræðum við önnur framboð í borginni. Innlent 19.2.2026 15:17
Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Leikskólar í Ölfusi verða gjaldfrjálsir frá og með næstu mánaðamótum. Á fundi bæjarráðs í dag var samþykkt að öllum börnum verði boðin 36 tíma vistun á viku án endurgjalds, óháð tekjum foreldra. Með þessu fellur tekjutenging niður og sama fyrirkomulag gildir um öll börn. Innlent 19.2.2026 14:20
Guðmundi Inga hafnað Björk Vilhelmsdóttir formaður uppstillinganefndar Samfylkingarinnar segir að ekki hafi tekist að myndast traust milli flokksins og Guðmundar Inga Þóroddssonar frambjóðanda. Innlent 19.2.2026 13:10
Annað hvort í pólitíkina eða á eftirlaun Brynjar Níelsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur dregið umsókn sína um embætti héraðsdómara til baka. Hann segist ekki frágengið hvað taki við. Innlent 17.2.2026 16:00
Fyrrverandi markvörður vill fram fyrir Miðflokk Beitir Ólafsson, fyrrverandi markvörður KR og HK, hefur óskað eftir sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Í tilkynningu frá Beiti segir hann að flokkurinn hafi skapað sér sess með orðræðu sem hann tengi við. Innlent 17.2.2026 14:41
Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Hlynur Bæringsson, sem setti körfuboltaskóna á hilluna eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Stjörnunni síðasta vor, segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann gefi kost á sér fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Innlent 17.2.2026 11:11
Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, mun áfram leiða lista Sjálfstæðisflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Næstu sæti skipa Björg Fenger, formaður bæjarráðs, og Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar. Innlent 16.2.2026 20:30
Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi og eigandi Extraloppunnar, vill áfram leiða lista Framsóknar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún var oddviti flokksins í kosningunum 2022 og tók í kjölfarið sæti í bæjarstjórn. Innlent 16.2.2026 15:59
Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Ellefu einstaklingar vilja vera á lista Pírata í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Fram kom í fyrr í dag að Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, sækist eftir því að leiða listann ásamt Alexöndru Briem borgarfulltrúa. Innlent 16.2.2026 15:26
Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, gefur kost á sér til þess að leiða lista flokksins í komandi kosningum. Til þessa hefur Alexandra Briem ein gefið kost á sér en prófkjör Pírata í Reykjavík fer fram rafrænt dagana 26. febrúar til 6. mars. Innlent 16.2.2026 12:24
Stillir sér upp á miðjunni Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins segist ekki hafa áhuga á að færa flokkinn til hægri líkt og hann telur klofningsflokkinn Miðflokkinn hafa gert. Hann segist ætla að efla flokkinn á miðjunni þar sem hann hafi sögulega verið. Innlent 16.2.2026 09:22
„Eins og knattspyrnuþjálfari sem er á bekknum“ Lilja Alfreðsdóttir, nýr formaður, Framsóknarflokksins segist ætla að vinna náið með þingflokknum þrátt fyrir að eiga ekki sæti þar sjálf. Hún líkir því að vera knattspyrnuþjálfari. Þingflokksformaðurinn laut í lægra haldi í formannskjörinu. Innlent 15.2.2026 17:11
Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Landsmálafélagið Rósin hefur sagt sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar í Reykjavík. Varaformaður segir er ósáttur við að formanni félagsins hafi ekki fengið sæti á lista. Innlent 14.2.2026 17:01
Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Tæplega 70 prósent Vestmannaeyinga segjast ánægðir með störf Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra en þó hyggjast talsvert fleiri kjósa Sjálfstæðisflokkinn en H-listann samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Innlent 14.2.2026 12:23
Óðinn Svan leiðir L-listann Fréttamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson mun leiða L-listann í komandi bæjarstjórnarkosningum á Akureyri. Innlent 13.2.2026 17:40
VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Framboðið Vor til vinstri auglýsir nú eftir fólki sem hefur áhuga á að gefa kost á sér í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Sanna Magdalena Mörtudóttir fer fyrir framboðslistanum sem ætlar að bjóða fram í bandalagi við Vinstri græn í borginni í vor. Þá hefur félögum í Vinstri grænum í Reykjavík fjölgað um tæplega tuttugu prósent á síðustu vikum en VG heldur forval um efstu sæti sem falla í hlut VG á sameiginlegum lista flokkanna. Innlent 13.2.2026 12:12
Íhugar að bjóða fram til varaformanns Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, íhugar nú að bjóða sig fram til varaformanns Framsóknarflokksins. Stefán Vagn Stefánsson þingmaður flokksins er sá eini sem hefur gefið kost á sér til embættisins en tvær hafa boðið fram til formanns. Innlent 12.2.2026 16:09
Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? Lífið 12.2.2026 07:01
Upplausn á Vopnafirði: Starfslok sveitarstjórans, oddviti hættir og rifist á fundum Á einni viku má segja að öllu hafi verið snúið á hvolf hjá sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps. Samið var um starfslok sveitarstjórans, í kjölfarið hætti oddviti meirihlutans og nú hefur sveitarstjórnarfulltrúi ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi kosningum eftir að oddviti minnihlutans gerði athugasemd við að hún talaði ensku. Innlent 11.2.2026 22:31
„Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Nú þegar sjö flokkar hafa kynnt oddvita sína í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar vekur athygli að þar af eru fimm sem hafa með einum eða öðrum hætti tekið þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins. Oddvitarnir hafa tekið misvirkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins áður en þeir tóku oddvitasæti fyrir aðra flokka í Reykjavík, en þetta hefur vakið athygli netverja sem hafa tjáð sig um þessa forvitnilegu staðreynd á samfélagsmiðlum. Innlent 10.2.2026 13:42
Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Sósíalistafélag Reykjavíkur hefur tilkynnt um hverjir verma efstu tíu sæti á lista Sósíalista í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Oddviti flokksins er hin 25 ára gamla Silja Sóley Birgisdóttir, stuðningsfulltrúi. Líkt og kunnugt er hyggst sitjand oddviti Sósíalista í Reykjavík bjóða fram undir formerkjum annars lista, Vors til vinstri í komandi kosningum. Innlent 10.2.2026 10:39
Hættir í Samfylkingunni og gengur til liðs við nýjan flokk fyrir kosningar Kolbrún Magnúsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og fulltrúi í fræðsluráði bæjarins, hefur sagt skilið við flokkinn og hyggst færa sig yfir í Framsókn og bjóða sig fram fyrir flokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum. Kolbrún segist hafa eftir vandlega íhugun komist að þeirri niðurstöðu að hún finni meiri samhljóm með áherslum Framsóknar í Hafnarfirði. Innlent 10.2.2026 09:59