Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 3. apríl 2026 23:09 Fréttir af því að tvær orrustuþotur hefðu verið skotnar niður bárust í dag. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti vildi ekki tjá sig um mögulegar afleiðingar þess að flugmaður sem saknað er eftir að orrustuþota var skotin niður yfir Íran komi til skaða.
Leit stendur yfir af manninum sem skaut sér úr orrustuþotu af gerðinni F-15 þegar hún var skotin niður yfir Íran í dag. Þeir voru tveir í áhöfninni en hinn hefur fundist heill á húfi. Önnur orrustuþota af gerðinni A-10 Warthog var einnig skotin niður yfir Persaflóa í dag en flugmaður hennar hefur einnig fundist lifandi. Í samtali við The Independent í kvöld neitaði Bandaríkjaforseti að segja til um hver viðbrögð hans yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins. Samkvæmt umfjöllun þeirra er flugmaðurinn fyrsti bandaríski flugmaðurinn sem skotinn er niður yfir óvinasvæði frá því að flugmaður orrustuþotu varð fyrir loftvarnaeldflaug í apríl ársins 2003, skömmu eftir að innrás Bandaríkjanna í Írak hófst. Inntur eftir því hvað hann tæki til ráðs yrði flugmaðurinn tekinn til fanga eða særður í haldi Írana sagðist hann ekki vilja tjá sig um það. „Við vonum að það muni ekki gerast,“ sagði hann. Íranskir ríkismiðlar hafa frá því að fréttir af málinu bárust biðlað til íbúa að afhenda lögreglu hvern þann „óvinaflugmann“ sem finnst og lofað fundarlaunum. Ríkisstjóri Kohgiluyeh- og Boyer-Ahmad-héraðs í suðvesturhluta landsins heufr heitið því að sá sem handsamaði eða dræpi flugmanninn yrði „sérstaklega heiðraður“.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira